Læknablaðið - 01.12.2021, Blaðsíða 41
L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107 605
F R É T T I R
Tveggja ára vinna siðfræðiráðs Læknafé-
lags Íslands við endurskoðun siðareglna
lækna (Codex Ethicus) var samþykkt með
miklum meirihluta á aðalfundi Læknafé-
lagsins nú í október lok. Þær verða birtar í
janúarblaði Læknablaðsins 2022.
„Laga þurfti ótrúlega margt,“ segir
formaður siðfræðiráðs félagsins. Til að
mynda hafi verið farið yfir alþjóða-
siðareglur lækna; Genfar- og Helsinki-yf-
irlýsingu Alþjóðafélags lækna (WMA),
Lissabon-sáttmálann og sérstakar yfirlýs-
ingar frá Alþjóðafélaginu sem bornar voru
saman við íslensku reglurnar.
„Það var nær ekkert sem vantaði út frá
þeim hlutum,“ segir Svanur. „Hins vegar
vantaði bæði í megin alþjóðasiðareglur
WMA og okkar ákvæði um hlutverk
lækna að líkna, skyldu upplýsingagjafar
og hið þekkta ákvæði mannhelgi um
að læknar umfram allt skaði ekki. Þetta
stóð hvergi í meginsiðareglum.“ Þá hafi
áminning lækna til annarra heilbrigðis-
stétta um þagmælsku verið tekin út en
viðbætur vegna persónuverndar og var-
kárni í notkun samfélagsmiðla sett inn.
Horfðu til máttarstólpa
Svanur segir margt það nýja liggja í aug-
um uppi en þurfi þó að standa í siða-
reglum. „Þess vegna fórum við mjög
ígrund að yfir meginreglurnar. Þær eiga að
tryggja að þau fjögur meginviðmið sem
hafa verið almennt viðurkennd í samfé-
lögum lækna síðustu 50 árin; velgjörð,
mannhelgi, sjálfræði og óhlutdrægni.
Þessi fjögur atriði hafa þótt máttarstólp-
arnir í grund vallar gildismatinu.“
Svanur segir nýju útgáfuna einnig lýsa
siðferðilegum tíðaranda. „Við tökum út
karllæg orð eins og bræðralag og setjum
Læknar endurskoða
Codex
„Siðareglur lækna eru nú efnismeiri en þó jafnlangar,“
segir Svanur Sigurbjörnsson, formaður siðfræðiráðs LÍ
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
inn að forðast skuli áreitni og kynbundið
ofbeldi. Hegningarlög taka á því en þó er
rík ástæða til að leggja áherslu á það í ljósi
baráttunnar í samfélaginu.“
Svanur hefur leitt þessa gagngeru
endurskoðun á reglunum. Vinnan hófst
í ársbyrjun 2018 og lauk vorið 2020.
„Sjónar horninu hefur verið breytt þannig
að Læknafélagið setur ekki lengur félags-
mönnum reglurnar heldur gangast
læknarnir sjálfir undir þær og tengsl
þeirra við læknaeiðinn eru styrkt.“
Svanur bendir á að eina lagalega skylda
siðfræðiráðsins sé reglubundin endur-
skoðun á siðareglunum. „Ég vissi af þessu
þegar ég tók við formennsku í siðfræði-
ráði 2015 og fór að skoða reglurnar. Þær
voru að meginhluta frá árinu 2005 þegar
síðasta heildarendurskoðunin var gerð út
frá reglunum 1992. Þá urðu einnig lítils-
háttar breytingar 2013.”
Nýtti siðfræðinám
Svanur segir að meistaranám hans í
hagnýtri siðfræði við HÍ hafi nýst sem
grundvöllur breytinganna. „Ég var í
áfanga um sið fræði fagstétta og skrifaði
ritgerð þar sem ég kannaði hvort nægi-
legar og nauðsynlegar ástæður væru til að
breyta Codex Ethicus. Það kom ýmislegt
í ljós. Kennaranum fannst niðurstaðan
vel ígrunduð og ég lagði hana fram sem
upphafsreit við þessa endurskoðun,“ segir
Svanur.
Fjöldi lækna hefur unnið að endur-
skoðuninni. Níu meðlimir siðfræðiráðs og
10 álitsgjafar. Auk Svans hafa þau Áslaug
Heiða Pálsdóttir, Gunnar Thorar ensen,
María Soffía Gottfreðsdóttir, Ólafur Árni
Sveinsson, Þórunn Jóhanna Júlíusdóttir og
Björn Hjálmarsson, frá byrjun 2020, setið í
Svanur Sigurbjörnsson nýtti þekkingu sína úr siðfræði
fagstétta í hagnýtri siðfræði við HÍ við endurskoðunina.
„Ég kannaði hvort nægilegar og nauðsynlegar ástæður
væru til að breyta Codex Ethicus.“ Mynd/gag
Sérstakir álitsgjafar
siðfræðiráðs LÍ
• Jón Snædal læknir, fyrrverandi formaður
siðfræðiráðs LÍ. Fulltrúi LÍ hjá WMA
• Sigurður Guðmundsson læknir, prófessor
emeritus, fyrrv. landlæknir
• Ástríður Stefánsdóttir læknir, BA og MA
í heimspeki
• Björn Einarsson læknir, BA í heimspeki
• Guðmundur Þorgeirsson læknir, prófessor
• María Sigurjónsdóttir læknir, BA í heim-
speki
• Stefán Hjörleifsson læknir, prófessor,
BA í heimspeki
• Vilhjálmur Árnason, heimspekingur, pró-
fessor
Álitsgjafar frá opna
umsagnarferlinu
• Halldóra Ólafsdóttir, læknir
• Arnar Hauksson, læknir
ráðinu og þær Rún Halldórsdóttir, sem sat
í rúm tíu ár og Þórhildur Kristinsdóttir á
árunum, sem var í tvö ár, til ársins 2019.
„Já, ég er mjög ánægður með verkið og
ánægður með þau öll sem tóku þátt. Þetta
var afskaplega gefandi ferli. Frjóar og góð-
ar umræður, málefnalegar og gagnlegar.“