Læknablaðið - 01.12.2021, Síða 46
610 L ÆKNABL AÐIÐ 2021/107
„Stór hópur heimilislækna er að kom-
ast á aldur. Við getum því áætlað að á
næstu 5-10 árum verði erfitt að manna. Á
sama tíma og heilsugæslan fær stærra og
stærra hlutverk í heilbrigðisþjónustunni,“
segir Margrét Ólafía, heimilislæknir á
heilsugæslunni í Efstaleiti, lektor í HÍ og
nýr formaður FÍH. Þessi áskorun í manna-
haldi komi því á sama tíma og staða
heimilislækna sé almennt að batna.
„Það er afar mikilvægt að við komumst
í gegnum þessa mönnunarlægð og að
sérnámið í heimilislækningum líði ekki
fyrir það,“ segir hún við borðstofuborðið
á heimili sínu. Ljóst er að Margrét Ólafía
heldur þétt um taumana rétt eins og hún
heldur nú öruggum höndum um dóttur
sína meðan á viðtalinu stendur. Hún er í
fæðingarorlofi fram yfir áramót en vinn-
ur þó í Selmu-teymi Læknavaktarinnar;
bráðateymi sem afstýrir því að fólk þurfi
þjónustu bráðavaktarinnar.
Sérnámið styrki enn stöðuna
Margrét Ólafía segir stöðu heimilislækna
hafa styrkst verulega á undanförnum 5
til 10 árum. „Sérnámið hefur aldrei verið
fjölmennara,“ segir hún. „Við þurfum að
forða heimilislæknum frá þeim vanda sem
Landspítali glímir við. Þeim veruleika að
sérnámslæknar kjósi aðra kosti því þeim
lítist ekki á álagið sem þar er,“ segir hún.
„Það viljum við alls ekki.“
Hún segir þetta hafa komið skýrt
fram á heilaroksfundi 70 heimilislækna í
október. „Þar ræddum við að ef fleiri væru
við störf gætum við sinnt verkefnum
okkar betur. Þá væri álagið minna og við
gætum tekið að okkur enn fleiri verkefni.
„Tryggja þarf að álagið á heimilis-
lækna verði ekki of mikið,“ segir Mar-
grét Ólafía Tómasdóttir, nýr formaður
Félags íslenskra heimilislækna. Hún
tók við formannskeflinu af Salóme Ástu
Arnardóttur. Margrét Ólafía bendir á að
verkefnum á borði heilsugæslunnar fjölgi
stöðugt
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Mikilvægt að stjórna
álagi á breytingatímum
árunum. Hún hafi verið umsjónardeildar-
læknir í sérnáminu, í doktorsnámi hafi
hún horft til faghlutans. „Ástríðan fyrir
faginu keyrir mig áfram,“ segir hún.
En hvers vegna er hún læknir? „Ég
rambaði inn í læknisfræði. Þetta átti að
vera síðasti klásusinn og læknisfræði var
á listanum yfir það sem mig langaði til
að gera. Ég hafði ekki trú á að ég kæmist
í gegn um inntökuprófin en ég ákvað að
taka þátt og komst áfram,“ segir hún.
„Ég var örlítið tvístígandi með fagið
þangað til ég fór að vinna í klíník. Þá fann
ég þessa mannlega tengingu og vilja til
að hjálpa. Ég féll fyrir því. Heimilislækn-
ingar eru mitt fag því þar kemur þessi
mannlegi þáttur ennþá sterkari inn, sem
mér finnst ótrúlega skemmtilegt.“
En hvernig sér hún félagsstarfið þró-
ast? „Eflast. Það vilja heimilislæknar. Þeir
vilja góða fræðslu, regluleg tækifæri til
að hittast og ræða sama. Góð mönnun er
okkar baráttumál og að tryggja að lands-
menn eigi sinn heimilislækni,“ segir hún.
Núna er verið að bæta á okkur verkefnum
á sama tíma og við höfum ekki mannskap
til að takast á við þau,“ segir hún um
helstu áskoranirnar.
En hvernig er félagsstarfinu almennt
háttað? „Félag íslenskra heimilislækna
er, rétt eins og Læknafélagið, fagfélag
og stéttarfélag. Félagið er samansett af
ólíkum hópum. Hluti heimilislækna er
sjálfstætt starfandi, aðrir hjá ríkinu; sumir
á landsbyggðinni og aðrir á höfuðborgar-
svæðinu.“ Stjórnin endurspegli breiddina
og því þrír frá Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, þrír frá landsbyggðinni og þrír
sem starfi sjálfstætt.
Kjarabaráttan sé fyrst og fremst fyrir
þá sem starfi hjá hinu opinbera. „Svo
höfum við verið öflugt fagfélag líka. Við
berjumst fyrir grunngildum fagsins okk-
ar, erum með fræðslu, vísindaþing; bæði
íslenskt vísindaþing heimilislækna annað
hvert ár og svo norræn þing, sem fram
fara á Íslandi, 10. hvert ár.“ Þá haldi þeir
hugarflugsfundi.
Rétt yfir 220 eru í félaginu. Starfið
er í fullum gangi. „Mér skilst að þegar
félagið var stofnað á áttunda áratugnum
hafi hópurinn, sem var minni, verið tölu-
vert virkari.“ Barist hafi verið fyrir því
að kjarasamningur heimilislækna yrði
jafngóður og annarra læknastétta. Einnig
hafi verið barist fyrir því að koma heim-
ilislækningum að sem fagi í háskólanum.
Félagið hafi því kostað stöðu prófessors
fyrstu tvö árin.
„Þessi grunnbarátta er liðin og því
kannski ekki eins stór hluti félagsmanna
virkur dags daglega,“ segir hún. Stjórnin
vinni þó þétt saman og finni fyrir því að
unga kynslóðin hafi mikinn áhuga á fag-
hluta félagsins.
Virk í félagsstarfi
„Við héldum heilaroksfund núna í
október. Ræddum ákveðin málefni. Það
var metþátttaka og 70 heimilislæknar tóku
þátt. Það er til marks um að heimilislækn-
ar séu mjög virkir.“
Sjálf segir Margrét Ólafía að áhugi
hennar á félagsstörfum hafi aukist með
Margrét Ólafía nýr formaður FÍH með dóttur sína Nínu
Vigdísi og fjölskylduhundinn Snjólf. Hún er í fæðingar-
orlofi, en sinnir formennskunni, vinnur á Læknavaktinni
og kemur aftur til fullra starfa á nýju ári. Síðasta eitt og
hálft ár var hún í ritstjórn Læknablaðsins en hætti þar í
október þegar hún tók við FÍH. Mynd/gag