Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.2012, Blaðsíða 42
42 – Sjómannablaðið Víkingur
Gámaþungi
Eitt af stærstu vandamálum gámaflutningaskipa er röng þyngd
gáma sem lestaðir eru um borð í skipin. Þetta vandamál hefur
nú ratað inn til Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar IMO. Þar á
bæ var þessi vandi ræddur á fundi nefndar sem haldinn var í
september. Þetta er heimsvandamál og hafa menn áhyggjur af
því að IMO muni ekki geta tekið á málinu því það sé einfald-
lega ekki í þeirra valdi. Það hefur verið skýlaus krafa frá útgerð-
um og samtökum þeirra um að settar séu strangari alþjóðaregl-
ur um viktun gáma en þar sem gámarnir eru í höndum annarra
aðila en skipaútgerða séu líkurnar á því að árangur náist hverf-
andi. Slysum af völdum of þungra gáma og rangt skráðrar
þyngdar í þeim hefur fjölgað í seinni tíð.
Dæmdir
Skipstjóri og annar stýrimaður gámaskipsins Rena, sem strand-
aði við Astrolabe rif á Nýja Sjálandi 5. október 2011, hafa verið
dæmdir í sjö mánaða fangelsi fyrir strandið. Báðir tveir lýstu sig
seka af mörgum hlutum ákærunnar þá meðal annars að hafa
stjórnað skipinu með glæpsamlegum hætti sem varð til þess að
skipið strandaði. Þá að hafa losað olíu í sjóinn, að hafa breytt
skjölum og að fikta við skráningu GPS tækja skipsins í kjölfar
strandsins til að hagræða málsgögnum sér í hag. Gerð hafði
verið ferðaáætlun en skipstjórinn gaf öðrum stýrimanni heimild
til að víkja frá henni til að fá betri komutíma til hafnar. Sú
breyting sem gerð var á ferðaáætluninni var ekki skráð og held-
ur ekki staðfærð með tilliti til öryggi siglingaleiðarinnar. Tíu
mínútum fyrir strandið kom rifið fram á ratsjá skipsins en skip-
stjórinn ákvað að um væri að ræða lítið skip sem endurvarpið
bærist frá. Þegar ekkert skip var sjáanlegt með berum augum
ákvað skipstjórinn að endurvarpið frá skerinu væri falskt end-
urvarp. Ekki er búið að ákæra útgerð skipsins en þess er beðið.
Sjómannavinnulöggjöfin
Nýlega var stórum og reyndar mjög mikilvægum áfanga náð í
réttindabaráttu sjómanna þegar Rússar og Fillipseyingar undir-
rituðu sjómannavinnulöggjöf (MLC 2006) Alþjóðavinnumála-
stofnunar ILO. Þrjátíu þjóðríki, sem ráða samanlagt yfir 33%
tonnafjölda heimsflotans, þurfti til að samþykktin öðlaðist
alþjóðlegt gildi. Árið 2009 náðist 33% tonnafjöldinn en það
var ekki fyrr en nú í ágúst, með undirritum fyrrnefndra 30
þjóðríkja að takmarkinu var náð. Ná ákvæði samþykktarinnar
til allra flutningaskipa yfir 500 BT í alþjóðasiglingum sem talin
eru vera um 65.000 skip og hafa áhrif á líf 1,2 milljóna sjófar-
enda. Öðlast samþykktin gildi hjá öllum aðildarríkjum IMO,
þar með talið Ísland, í ágúst 2013. Bætist þá eitt skipskjalið til
viðbótar í skjalasafn skipstjóra. En um hvað fjallar þessi sam-
þykkt og hvaða áhrif hefur hún hér á Íslandi? Það er kannski
fljótlegra að svara síðari spurningunni: Áhrifin eru hverfandi
þar sem öll okkar kaupskip sigla á erlendum fánum. Þau skip
þurfa að vísu einnig að uppfylla ákvæði samþykktarinnar. Í
MLC 2006 eru ákvæði um lágmarkskröfur til vinnuumhverfis,
um starfssamninga, launagreiðslur, vinnutíma og hvíld, að-
búnað, frístundaaðstöðu, mat og framreiðslu, heilsuvernd,
læknishjálp, velferðarmál og almannatryggingar. Það verður
mikið að gera hjá útgerðum í því að láta gera úttektir á skipum
sínum til að tryggja að þau uppfylli ákvæði samþykktarinnar.
Efasemdir MARAD
Á undanförnum árum hefur verið unnið markvisst að því að
koma úr umferð tankskipum sem eru með einfaldan botn vegna
umhverfisslysahættu sem þau skip eru lífríkinu. Nýlega ákvað
bandaríska siglingamálastofnunin MARAD að rannsaka hvort
skip með tvöföldum byrðingum væru betri en þau með einföld-
um með tilliti til umhverfismála. Þetta hefur sett tankskipa-
bransann í uppnám enda er þar búið að eyða síðustu 20 árum í
að útrýma einföldum byrðing. Vill stofnunin draga fram í dag-
sljósið hvaða áhrif byrðingskrafan hefur á öryggi, hagkvæmni
og umhverfistengdar afleiðingar þessara skipagerða. Sérstak-
lega vilja þeir ná fram hvaða fjárhagslegu afleiðingar þessi krafa
hefur haft í för með sér með tilliti til hærri byggingakostnaðar,
töpuðu flutningsrými og hver loftmengun hefur orðið.
Fjáður um stund
Fyrrum breskur starfsmaður DFDS Seaways skipafélagsins varð
heldur betur hissa þegar hann skoðaði bankareikninginn sinn
og sá að hann var rúmum 5 milljónum „ríkari“ en hann gerði
ráð fyrir. Áttaði hann sig strax á því að vinnuveitandinn hefði
gert mistök en ákvað að láta sem ekkert væri – eða þannig.
Hann dreif sig í að nota aurana í skartgripi handa kærustunni
sinni og ferðalög. Það kom loks að því að skipafélagið áttaði sig
á því að eigendur Eddie‘s Transport væru ekki glaðir yfir því að
hafa ekki fengið reikninga sína borgaða og haft var samband við
starfsmanninn sem aurana hafði fengið inn á reikninginn um
mistökin. Næstu 13 daga spýtti starfsmaðurinn í lófana því
hann eyddi öllum peningunum líklegast í þeirri trú að mistökin
yrðu talin honum í hag og ekki yrði hægt að endurheimta féð ef
það væri ekki lengur aðgengilegt á reikningnum. Eins og segir í
upphafinu þá er hann fyrrverandi starfsmaður sem situr í sex
mánaða fangelsi fyrir þjófnað.
Guðs hönd
Bréf Francesco Schettino, skipstjóra Costa Concordia, til lög-
fræðinga sinna lak nýverið til fjölmiðla. Skipstjórinn, sem er
sakaður um manndráp ásamt því að hafa valdið strandi skips-
ins, var um miðjan júli sleppt úr stofufangelsi. Í bréfinu til
verjenda sinna segir hann að það hafi verið „guðs hönd“ sem
hafi leiðbeint honum við að koma hinu skaðaða skipi upp að
klettum. Þar með hefði hann komið í veg fyrir að skipið sykki
á dýpra vatni með enn skelfilegri afleiðingum en þeim 32
mannslífum sem glötuðust. Skipstjórinn hefur einnig verið
sakaður um að hafa siglt svo nálægt landi til að sýnast fyrir
Utan úr heimi
Hilmar Snorrason skipstjóri
Strand Rena á eftir að hafa miklar afl eiðingar í för með sér en nú hafa skip-
stjóri og stýrimaður skipsins verið dæmdir.