Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Síða 17
Norrœn jól
Hér er um að ræða almenna, ákveðna og skýra yfirlýsingu, er ætla má, að
öll þjóðin standi að baki, þó að áhugi manna sé aS sjálfsögðu misjafn. Og það
var einnig mjög eftirtektarvert og gleðilegt, að í yfirlýsingu sænsku ríkisstjórn-
arinnar og viSurkenningu á stofnun lýSveldis á íslandi var vitnað til ákveðins
vilja íslendinga til norræns samstarfs.
Þó að Islendingar hafi þannig lýst yfir ákveðnum vilja sínum til norræns
samstarfs, verða þeir að sjálfsögSu að beygja sig fyrir þeirri staSreynd, að ekki
er enn unnt að ákvarða skipulag þess né móta þaS í fasta farvegi. En þó er mikils
um það vert, að einlægur vilji og áhugi sé til staðar sem grundvöllur að því sam-
starfi, sem koma á, koma þarf og koma skal. Og vissulega má ganga út frá því,
að sá vilji og áhugi sé ríkjndi á öllum NorSurlöndum. ÞaS er því engin ástæSa
til að óttast um framtíðina í þessum efnum.
Þess virðist verulega gæta í stríSslokin, að stórþjóðirnar verði umsvifamiklar
og mestu ráðandi um alþjóðasamtök. Gera má og ráS fyrir því, aS Norðurlanda-
þjóðirnar verði þátttakendur í alþjóðasamtökum. En það ætti á engan hátt að
hindra náið og mikið samstarf þeirra innbyrðis. Því samstarfi verður að sjálfsögðu
á engan hátt beint gegn öSrum ríkjum þeim til árása né miska. ÞaS verður
svæðislegt (regionalt) samstarf, er á engan hátt þarf að brjóta í bága við heildar-
samtök annarra friðar- og frelsisunnandi ríkja, og ætti vissulega að rúmast innan
alþjóðasamtakanna. Þess vegna verður að vænta þess, að skynsamlegt, eSlilegt og
náið samstarf Norðurlanda muni á engan hátt verða hindraS né truflað af al-
þjóðasamtökum þeim, er rísa munu upp að stríði loknu.
Norrænu félögin eru engin stjórnmálafélög. Innan þeirra vébanda rúmast
allir, sem áhuga og trú hafa á norrænni samvinnu. En um leið hljóta þessi félög
aS vinna að því á allan hátt, að sem öflugast og tryggast samstarf hefjist á milli
þessara þjóða, bæði í menningar-, félags- og fjármálum. Og þeir tímar nálgast
nú óðum, þar sem finna þarf því samstarfi sem bezt og tryggust form og inni-
hald. Þar liggja fyrir hin mikilvægustu verkefni norrænu félaganna, ekki síður
en stjórnmálamannanna og kaupsýslumannanna. AS þeim verkefnum þarf að
ganga með ötulu starfi, trú og einlægum áhuga. Efdr því fer árangurinn. Og
þaS skiptir miklu fyrir framtíð Norðurlandanna, að sá árangur verði sem mestur
og glæsilegastur.