Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Qupperneq 79
Norrœn jól
þessara tímamóta með samsæti að Hótel Borg. Samsætið hófst með því að formaður
félagsins, Stefán Jóh. Stefánsson, bauð gesti velkomna og minntist ástæðunnar til
þessarar hátíðar. B.iörn Þórðarson forsætisráðherra flutti síðan aðalræðuna, um norræna
samvinnu og gildi hennar, og er ræðan birt á öðrum stað í ritinu. Sveinn Björnsson
ríkisstjóri var kjörinn heiðursfélagi og afhenti formaður honum skírteini, skrautritað af
Tryggva Magnússyni, ásamt merki félagsins úr gulli og þakkaði honum margvísleg störf
í þágu félagsins. En Sveinn Björnsson núverandi forseti hefur jafnan sýnt mikinn
áhuga á samstarfi Norðurlandaþjóðanna og er einn af forgöngumönnum fyrir stofnun
félagsins hér á landi. Meðan hann var sendiherra í Kaupmannahöfn mætti hann oft
sem fulltrúi íslandsdeildarinnar á fulltrúafundum félagsins. Síðan hann varð ríkisstjóri
og nú forseti íslands hefur hann jafnan í opinberum ræðum, er hann hefur flutt til
þjóðarinnar, undirstrikað gildi og nauðsyn hinnar norrænu samvinnu fyrir okkur ís-
Iendinga og hvatt þjóðina til slíkrar samvinnu. Ríkisstjóri þakkaði með ágætri ræðu,
sem einnig er birt á öðrum stað í ritinu. Tómas Guðmundsson skáld las upp snjallt
kvæði um Norðurlönd, er liann hafði ort í tilefni þessa afmælis. Tvöfaldur kvartett
undir stjórn Halls Þorleifssonar skemmti undir borðum með ágætum söng. Að síðustu
var dansað. Samsætið sátu um 200 manns og var það hið virðulegasta. — Á sunnudaginn
5. marz voru norrænir hljómleikar haldnir í Gamla Bíó í tilefni afmælisins. Strengja-
hljómsveit undir stjórn dr. V. v. Urbantscitsch lék norræn tónverk eftir J. Sibelius, K.
Atterberg, Grieg og Helga Pálsson, en karlakórinn Fóstbræður söng Norðurlandalög
undir stjórn Jóns Halldórssonar. Hljómleikar þessir tókust ágætlega og var húsið nær
því fullskipað. Félagsmenn fengu ókeypis aðgöngumiða fyrir sig og forgangsrétt að
miðum fyrir gesti sína. — Um kvöldið hafði félagið útvarpsdagskrá. Þessir töl-
uðu: Stefán Jóh. Stefánsson flutti stutt ávarp, Guðl. Rósinkranz flutti erindi um
starfsemi Norræna félagsins og sögu allt frá undirbúningi að stofnun þess fyrir rúml.
25 árum, Pálmi Hannesson rektor talaði um gildi norrænnar samvinnu og Tómas
Guðmundsson skáld las kvæði, er hann orti í tilefni afmælisins. Á milli ræðanna voru
leikin og sungin norræn lög og dagskránni lauk með því að útvarpshljómsveitin lék
þjóðsöngva allra Norðurlanda.
Skemmtifundir hafa verið þrír fyrir utan árshátíð félagsins. Þann 14. apríl
var skemmtifundur að Hótel Borg. Ole Kiillerich ritstjóri hélt fyrirlestur um Danmörku
eftir hernámið og framtíð norrænnar samvinnu, Pétur Jónsson óperusöngvari söng
dönsk lög með undirleik Páls ísólfssonar og loks var dansað. Þann 2G. sept. var sam-
koma haldin að Hótel Borg í tilefni af afmæli Kristjáns konungs X. Félagið Frie
Danske i Island stóð að þessari samkomu með Norræna félaginu. Sendiherra Dana
Fontenay flutti fyrirlestur um baráttu Dana heima í Danmörku og minntist konungs-
ins, Ásgeir Ásgeirsson bankastjóri talaði um Dani, G. E. Nielsen form. Frie Danske
talaði um heimavígstöðvarnar, Lárus Pálsson leikari Ias upp, frú Guðrún Ágústsdóttir
77