Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Blaðsíða 74
Norrœn jól
órækur vottur um hátíðaskapið, að þetta veður drap ekki hátíðina eða spillti ró
og reglu fólksins.
íslendingar höfðu lengi þráð þennan dag. Þeir höfðu keppt að því með
seiglu og marksækni, að fá það form fyrir frelsi sitt og sjálfstæði, sem nú er
fengið með stofnun lýðveldisins. Stundum fannst manni áður fyrr, eftir það, sem
á vannst 1918, hugurinn vera hálfur og deigur, eða kæruleysið meira en vera ætti
hjá nýrri kynslóð, sem sjálf hafði ekki séð eða tekið þátt í baráttunni fyrir sjálf-i
stæðinu. En þegar á þurfti að herða var hugurinn einn.
Nú er komið í einn áfanga og lagt upp í nýja ferð. Nú er það verkefnið að
standa vörð um frelsið og framtíðina og skapa nýtt líf í landinu. íslendingar eiga
nú fyrir höndum það verkefni, að koma sér fyrir í nýju umhverfi, í verzlun og
samgöngumálum og ýmis konar öðrum utanríkismálum. Þeirra bíður það verk
að hagnýta land sitt betur en áðu, á vísindalegan hátt með hagnýtum rannsókn-
um og framkvæmdum. Þeir þurfa að búa æskuna í landinu undir nýtt líf í starf-
semi og stórhug, þó að eitthvað af þeirri auðsæld, sem atvikin hafa nú skolað
upp að strönd þess, kunni að fjara út aftur fyrr en varir. Vísindalegar rannsókna-
stofnanir þarf að efla. Nýjum skólum þarf að koma upp. Finna þarf eða full-
komna hentugt byggingarlag og byggingarefni, og nýtt fyrirkomulag á ýmsum
heimilisstörfum og híbýlaskipulagi til þæginda og verksparnaðar. Rannsaka þarf
mataræði og matvælaþörf og möguleika á bættri og ódýrri matvælaframleiðslu í
landinu, bæði frá hagfræðilegu og heilsufræðilegu sónarmiði, hvað við getum flutt
út okkur til framdráttar í öðrum efnum og hvað við þurfum að fá að. Orkulindir
landsins þarf að rannsaka áfram til aukinnar hagnýtingar.
Nú er mest þörf vakandi og vinnandi manna, manna með staðfestu og trú,
manna með frjósamt ímyndunarafl og hagnýta skynsemi og raunhæfa þekkingu.
Hið nýja lýðveldi þarfnast manna, sem þekkja og virða sögu okkar og þjóðleg
verðmæti, sem verið hafa lífsþróttur liðinna kynslóða. Þeir menn þurfa þó einnig
að hafa opin augu fyrir hverju því í andlegu og hagnýtu lífi umheimsins, sem
samþýðst getur íslenzku þóðlífi og atvinnulífi og orðið því dl eflingar.
Sjálfsagt þurfum við að sækja fyrirmyndir víða að og leita viðskipta í mörg-
um löndum. Eftír stríðið munu einnig vera tekin upp aftur ýms sambönd við
Norðurlönd. I því mun Norræna félagið eiga sinn hlut.
Norrænu félögin héldu 25 ára afmæli sitt á þessu ári. Þess var einnig minnzt
hér á landi, enda er Norræna félagið á íslandi fyrst stofnað 1919. í nóvember það
72