Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Síða 73
#
STOFNUN lýðveldisins var vitanlega höfuðatburður ársins 1944 hér á landi.
Þrátt fyrir nokkurn skoðanamun um sum atriði málsins greiddi yfirgnæf-
andi meirihluti kjósenda atkvæði með niðurfellingu sambandslaganna og lýðveldis-
stjórnarskránni. Kjósendur voru rúmlega 74 þúsund og rúmlega 73 þúsund greiddu
atkvæði (98,61%). Af þeim greiddu 71 122 atkvæði með sambandsslitunum, eða
97,35%, en 377 á móti, hitt voru auðir og ógildir seðlar. í tveimur kjördæmum,
Seyðisfirði og Vestur-Skaftafellssýslu, greiddi hver einasti kjósandi atkvæði. í
þremur öðrum kjördæmum vantaði aðeins einn. Það var t Vestur-Húnavatns-,
Dala- og Austur-Skaftafellssýslum. Þessi þátttaka í atkvæðagreiðslu er einsdæmi.
Hún sýnir áhuga manna, einlægni og ákafa. Hún ætti einnig að sýna trú manna
á framtíðina.
Þessi sami áhugi kom fram við hátíðahöldin, þegar lýst var stofnun lýð-
veldisins. Mög mikill mannfjöldi sótti þá til Þingvalla. Hátíðahöldin fóru skipu-
lega og virðulega fram, þrátt fyrir slæmt veður. A Þingvöllum er dásamlegt há-
tíðarsvæði, þegar vel viðrar, svo að þar þarf engu eða lidu við að bæta af mann-
virkjum. Tign og fegurð landsins, víðáttan og heiðríkjan tjalda þar veizlusalinn í
sólskini og litskrúði. í rigningu verður hraunlendið drúpandi og dapurlegt og
sums staðar ferlegt. 17. júní var lengstum hellirigning á Þingvöllum. Það er
71