Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Side 39

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Side 39
Norrœn jól landaþjóðirnar skilja okkur bezt, þekkja okkur bezt, vilja okkur bezt, að öllum öðrum ólöstuðum. Menn segja, að Norðurlöndin séu lítils megnug, og satt er það, að fjármagn þeirra og herstyrkur vegur lítið, en hitt er jafnvíst, að til samans standa þau stórveldunum á sporði um menningu og andleg afrek. Þau eru andlegt stórveldi, og hvar sem mál eru að lögum sótt, þá er atfylgi þeirra ótrúlega mikils virði. Því er einnig haldið fram, að Norðurlönd séu sundruð. Þetta er aðeins rétt að því leyti, sem tekur til hinna ytri forma og stjórnarhátta. Þau eru menningarleg heild og tengd traustum böndum, þótt ósýnileg séu. Hvað tengir brezka heimsveldið annað en slík bönd sameiginlegrar menningar? Loks er þess að geta, að í samvinnu við Norðurlönd þurfum við ekki aðeins að vera þiggjendur, heldur einnig veitendur. Við höfum gefið þeim hina dýrustu gjöf, arfleifðina, er við varðveittum í fásinni og fátækt. — Þetta er næsta mikils vert sjálfsvirðingu okkar, mun meira en margir ætla, að við séum veitandi, því að „viður- gefendur eru vinir lengst“, og það ljós, sem engum lýsir, er lítils virði. Það þykja hvarvetna meðmæli að teljast til norrænna þjóða, og í þeirra hópi hygg ég veg okkar munu mestan verða, en hættuna minnsta frá hálfu þeirra. Sjálfsagt er, að við reynum að hafa vináttu allra þjóða, en Norðurlandaþjóðunum erum við tengdir bróðurböndum, sem ekki má slíta heldur treysta, einkum nú, er á reynir. Og nú skulum við aftur víkja að ævintýrinu um bræðurna fimm. Á örlaga- stundinni sótti þá svefn, en Velvakandi vakti og sá, er tröllið teygði loppuna inn um Ijórann, og Velhaldandi tók í hana og hélt meðan Velhöggvandi hjó. Ég þarf ekki að rekja sögu þessa lengur, nema þeim bræðrunum tókst í sameiningu — og aðeins þannig — að vinna flögðin og frelsa kóngsdæturnar úr ánauð. — Nú eru hugsjónir hins norræna manns í hættu fyrir hamslausum tröllum, og sumar kvelj- ast í dimmum hellum harðstjórnar og ofbeldis. Ég el þann þótta fyrir hönd hinna norrænu þjóða, að þær megi ekki unna sér hvíldar fyrri en þær hafa frelsað þessar fögru konungadætur og leitt þær fram fyrir hið einræðisþjakaða mannkyn. — Við íslendingar erum ekki mikils megnugir að ytri sýn, þó sýnist mér við geta tekizt á hendur hlutverk Velvakanda, ef við hvikum hvergi, og þetta hlutverk hefur framvís kona, sagan sjálf, selt okkur í hendur.

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.