Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Qupperneq 58

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Qupperneq 58
Norrœn jól furðu hve mjög er margt, sem bendir til þess, að Finnar skoða sig sem eina þjóð, hvað sem uppruna og máli líður. Þessi staðreynd stendur alveg óhögguð, þrátt fyrir það þó að stundum hafi mjög hitnað í kolunum, einkum meðal ungra menntamanna á meðan finnskan var að vinna sig fram til jafnréttis við sænskuna. Sameiginlegt föðurland, sameiginleg saga, sameiginlegar raunir og barátta, sam- eiginleg mótun af náttúru landsins og lífsskilyrðum, hefur þarna á furðulegan og aðdáunarverðan hátt brætt þjóðabrotin saman. Þessi þróun hefst sennilega fyrst fyrir alvöru í landinu eftir að yfirráðum Svía yfir því lauk og stjórnmálaleg að- staða Svía dl þess að skoða sig sem yfirþjóð í landinu var raunverulega úr sög- unni. Hitt hefur og engu minna valdið um, að á nítjándu öld verður stórkostleg þjóðernisleg og menningarleg vakning meðal Finna sjálfra. Menningarbarátta þeirra minnkar þá óðfluga þann mun, sem áður var á þeim og Svíunum. Og þar sem þeir voru langsamlega fleiri, hlaut svo að fara, að þeir yrðu jafnokar Svíanna um öll áhrif og atkvæði, þegar hvorirtveggju stóðu jafnt að vígi stjórnarfarslega. Af þessu leiðir, að manni finnst einatt minni munur á hugsunarhætti og skaplyndi sænskra Finna og Tavasta, en tíl dæmis sænskra Finna og Svía. Áhrifin, sem saman drógu, virðast hafa orðið þyngri á metunum en upprunalegur mismunur ætternis. Sænskir Finnar eru þyngri í vöfunum en Svíar, skortír glæsibrag þeirra og fornræktaða stórmennsku þeirra, sem eitt sinn hafa verið heimsveldi. Sænsku Finnarnir eru þunglyndari, skapið dulúðugra, og það er oft yfir persónu þeirra, eins og Tavastanna, hálfþunglyndislegur blær, jafnvel þó að þeir hafi gamanyrði á vörum og séu hlýjan og ástúðin ein. Þetta einkenni kemur mjög greinilega fram í bókmenntum Finna og tónlist. Alvaran, dulúðin, einhver nálega harmsöguleg undiralda er ábærilegra einkenni en léttleiki, glaðværð og glæsibragur. Hins vegar eru Finnar miklir tilfinningamenn, öldur allra geðbrigða brýtur djúpt í skapinu og þau fyrnast seint. í sambandi við þetta einkenni stendur og það, að Finnar þykja trygglyndir og drottinhollir, hverju því, er þeir hafa bundizt tryggðum við. Ég get sagt það fyrir mitt leyti, þó að kynni mín af Finnum yrðu ekki löng né ýtarleg, að ég hef vart verið með geðfelldari mönnum né hugþekkari þjóð. Annars voru Finnar á þessum árum fullir af framtaki og áræði. Iðnaður landsins, pappírs- og trjáiðnaðurinn, stóð með miklum blóma. Finnar stóðu á gömlum merg með alþýðumenntun, en höfðu á þessum örfáu árum frá 1918 endurbætt skólakerfi sitt og heilsuverndarstarfsemi, íþróttamál sín og æskulýðs- 56
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.