Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Side 71

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1944, Side 71
Norrœn jól Það er viðbúið, að einhverjir góðir frændur vorir og unnendur norrænnar samvinnu telji það varhugaverðar aðgerðir fyrir framtíð vora að leysa á þessum tímum aldagömul stjórnarfarsleg bönd við annað Norðurlandaríki, og bendi oss á, hver áhætta það sé fyrir vora litlu þjóð að ætla sér að sigla sinn eigin sjó. En það er nú einu sinni svo, að þessi sjálfstæðisþrá er oss í blóð borin. Góð ráð og bendingar stöðva hana ekki. Að þessu leyti rennur víkingablóðið oss enn í æðum. Vér sjáum, að oss er háski búinn á margan veg, en vér látum oss ekki skiljast, að hann verði umflúinn, þótt hin fyrri stjórnarfarslegu bönd væru hnýtt saman aftur að styrjöldinni lokinni. Þjóðin teldi sig bregðast hugsjón sinni, ef hún léti hætturnar og óvissuna, sem framundan eru, aftra sér frá því að renna skeiðið á enda. Nálægt fjórðung af síðustu 30 árum hefur leiðin austur á bóginn héðan verið annað hvort lokuð með öllu eða lítt fær, en aðrar leiðir opnar. Hér við bætist svo það, að stórveldin uppgötvuðu landið, ef svo má að orði kveða. Ný viðhorf hafa myndazt, og vér verðum að laga háttu vora eftir þessum aðstæðum. En það eru fleiri en frændur vorir austan hafs, sem telja tvísýnt, hvert leið vor liggur. Eitt merkasta dagblað heimsins minntist íslenzku þjóðarinnar, að gefnu dl- efni, 11. október 1941. Eftir nokkur hlý og lofsamleg ummæli um þjóðina, kemst blaðið að orði á þessa leið: „Hið hernaðarlega mikilvægi Islands í nútíma styrjöld hefur sýnt sig að fullu, og landið hefur, góðu heilli, komizt réttu megin inn í stjórnmál heimsins. En hvort þetta leiðir til þess, að hin þjóðlega menning landsins deyr smám saman út eða ekki, mun seinni tíminn leiða í ljós.“ Hér er talað aí raunsæi og rósemi um efnið, eins og við mátti búazt. Mér urðu þessi orð minnissstæð af því, að þau voru sögð með svo miklu látleysi, en einnig festust þau í minni mínu sökum þess, að í ríkisútvarpið íslenzka var fluttur um sama leyti langur erindaflokkur um þjóðir, sem týndust. Þessi erindaflokkur var óskemmtilegur. Það kemur við hjartað í Islending- um, þegar talað er um þjóð, sem dó út eða týndist. Islendingar fóru einu sinni í vesturveg og festu þar byggðir og bú. Þeir mynduðu þjóðfélag, sem stóð um nokkrar aldir, en svo fór að lokum, að þetta fólk týndist. Þetta fólk var snar þáttur af íslenzku þjóðinni, og það hvarf með öllu, af því að norræn samvinna brást. Þetta er ein hin ömurlegasta saga í annálum Norðurlanda. Það vill engin þjóð týnast, og það er því ekkert sérkennilegt, þótt íslenzka þjóðin sé ráðin í að reyna að týnast ekki. Hún trúir því, að henni muni takast að lifa enn um langan aldur, þrátt fyrir allan heimsósóma, sem kann að hafa hent hana nú allra síðustu ár. Það ætti einnig að verða henni stoð í lífsbaráttunni, að „landið hefur, góðu heilli, komizt réttu megin inn í stjórnmál heimsins“, það er, sama megin og hinar Norðurlandaþjóðirnar eru í hjarta sínu. 69

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.