Peningamál - 04.05.2022, Page 13
PENINGAMÁL 2022 / 2 13
Olíuverð hefur hækkað enn frekar …
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur hækkað nær sam-
fleytt undanfarin tvö ár eftir mikla lækkun þegar farsóttin
skall á (mynd I-14). Verðið lækkaði tímabundið í desem-
ber sl. vegna áhyggna af þróun farsóttarinnar og hertum
sóttvarnaraðgerðum en hækkaði á ný í janúar og hafði
þá ekki verið hærra í átta ár. Skýrðist það af betri horfum
um olíueftirspurn, minnkandi birgðastöðu og áhyggj-
um af olíuframleiðslu OPEC-ríkja og nokkurra annarra
tengdra olíuframleiðenda. Olíuverð fór áfram hækkandi
um miðjan febrúar vegna vaxandi vísbendinga um að
Rússar hygðust ráðast inn í Úkraínu og enn frekar þegar
það raungerðist. Mikil óvissa ríkir um olíuframboð vegna
árásarinnar og refsiaðgerða Vesturlanda enda Rússar
annar stærsti olíuútflytjandi heims. Endurspeglast það
í óvenju miklum verðsveiflum á markaði en dagsloka-
verð á Brent-hráolíu fór hæst í um 130 Bandaríkjadali
á tunnu snemma í mars og hafði ekki verið hærra síðan
árið 2008. Þá hækkaði verð á öðrum orkugjöfum einnig
skarpt, ekki síst á jarðgasi í Evrópu enda vegur innflutn-
ingur frá Rússlandi þungt í orkunotkun þeirra.
Hækkun olíuverðs hefur að hluta gengið til baka
síðan í mars þótt það sé enn töluvert hærra en fyrir
stríðsátökin. Aukin framleiðsla í Bandaríkjunum ásamt
ákvörðun þarlendra stjórnvalda og allra annarra aðildar-
ríkja Alþjóðaorkumálastofnunarinnar að setja fordæma-
laust magn af olíuvarasjóðum sínum á markað hefur
dregið úr óvissu og stuðlað að verðlækkun. Þá ríkir einnig
aukin bjartsýni um að Bandaríkjastjórn dragi úr viðskipta-
þvingunum á Íran sem hafa haldið aftur af olíuútflutningi
þeirra undanfarin ár. Auknar áhyggjur af áhrifum hertra
sóttvarnaraðgerða í Kína á olíueftirspurn hefur jafnframt
leitt til verðlækkana að undanförnu. Brent-hráolíuverð
mældist 106 Bandaríkjadalir á tunnu að meðaltali í apríl
sem er um 24% hærra verð en í janúar sl. og 63% hærra
en í apríl í fyrra. Þótt verð í framvirkum samningum
bendi til þess að olíuverð lækki á spátímanum er útlit fyrir
að það verði töluvert hærra á honum öllum í samanburði
við febrúarspá bankans.
… og hefur verð á annarri hrávöru einnig hækkað
mikið
Verð á annarri hrávöru en orkugjöfum hækkaði einnig
mikið milli ára í fyrra og var verð margra þeirra nálægt
eða við sögulegt hámark (myndir I-7 og I-13). Eftirspurn
hefur aukist samhliða auknum efnahagsumsvifum á sama
tíma og framboðshnökrar hafa haldið aftur af framleiðslu
margra hrávara. Verðhækkun þeirra hafði stöðvast á
seinni árshelmingi í fyrra og var búist við að hrávöruverð
myndi hjaðna lítillega í ár. Það tók hins vegar að hækka
á ný í upphafi þessa árs samhliða hækkun orkuverðs og
Alþjóðlegt olíuverð
Janúar 2010 - júní 2025
Heimildir: Refinitiv, Seðlabanki Íslands.
Hráolíuverð (Brent)
Framvirkt verð PM 2022/1
Framvirkt verð PM 2022/2
USD á tunnu
Mynd I-14
0
20
40
60
80
100
120
140
‘22‘20‘18‘16‘14‘12‘10 ‘24‘23‘21‘19‘17‘15‘13‘11