Peningamál - 04.05.2022, Qupperneq 17

Peningamál - 04.05.2022, Qupperneq 17
PENINGAMÁL 2022 / 2 17 þegar það lækkaði skarpt á ný (mynd II-5). Hækkun á gengi krónunnar fram að innrásinni endurspeglaði að hluta aukna bjartsýni um slökun sóttvarnaraðgerða og bjartari horfur í efnahagsmálum. Aukin framvirk sala á gjaldeyri studdi enn frekar við gengi krónunnar en heimildir til afleiðuviðskipta með krónuna voru auknar töluvert um mitt síðasta ár. Útflutningsfyrirtæki hafa nýtt þetta aukna svigrúm til að selja framtíðargjaldeyristekjur sínar framvirkt en líklega hefur spákaupmennska með krónuna einnig aukist. Innrásin í Úkraínu olli hins vegar mikilli óvissu á fjármálamörkuðum og um tíma sóttu fjárfestar í öruggar fjáreignir og gjaldmiðla sem eru eftir- sóttir á óvissutímum. Í kjölfarið var töluverður þrýstingur til lækkunar á gengi krónunnar og Seðlabankinn seldi umtalsvert af gjaldeyri í lok febrúar og á fyrstu dögum marsmánaðar í samræmi við inngripastefnu sína. Skörp gengislækkun í kjölfar stríðsátakanna kann þó einnig að skýrast af því að hluti þeirra fjárfesta sem höfðu selt gjaldeyri framvirkt hafi lokað samningum sínum þegar óvissa jókst. Gengi krónunnar tók þó að hækka á ný snemma í mars en hafði þá lækkað um 3,3% frá upphafi innrásarinnar. Það er nú 1% hærra en fyrir innrásina og 3,9% hærra en á sama tíma fyrir ári. Það er nú á svipuð- um stað og það var rétt áður en farsóttin barst til landsins seint í febrúar 2020. Fjármagnsflæði vegna nýfjárfestingar var tiltölu- lega takmarkað frá miðju síðasta ári fram í mars sl. þegar það jókst lítillega, að hluta vegna sölu ríkissjóðs á hluta í Íslandsbanka en einnig vegna aukinna kaupa á ríkisbréfum. Ekki er útilokað að fjármagnsinnflæði aukist enn frekar er líður á árið þar sem innlendur hlutabréfa- markaður verður færður í flokk nýmarkaðsríkja hjá FTSE- Russell í september nk. Hrein gjaldeyriskaup innlendra lífeyrissjóða námu 14,6 ma.kr. á fyrstu þremur mánuðum ársins en gjaldeyriskaup þeirra hafa minnkað frá því sem var fyrir faraldurinn þar sem erlendar eignir þeirra hafa aukist töluvert og hluti lífeyrissjóða nálgast fjárfestingar- markmið um hlutfall erlendra eigna. … og helst svipað út spátímann Gengisvísitala krónunnar var um 191 stig á fyrsta fjórð- ungi ársins sem er rúmlega 1% hærra meðalgengi en gert var ráð fyrir í febrúarspá Peningamála. Samkvæmt grunnspánni helst hún svipuð út spátímann (mynd II-6) og verður raungengið því tæplega 6% hærra árið 2024 en það var að meðaltali árið 2021 en ríflega 8% lægra en það var hæst árið 2017. Gengi krónunnar1 2. janúar 2015 - 29. april 2022 1. Verð erlendra gjaldmiðla í krónum. Þröng viðskiptavog. Heimild: Seðlabanki Íslands. Vísitala Mynd II-5 140 160 180 200 220 2021202020192018201720162015 ‘22 Gengi krónunnar 2015-20241 1. Gengisvísitala er þröng viðskiptavog. Raungengi miðað við hlutfallslegt verðlag. Grunnspá Seðlabankans 2022-2024. Brotalínur sýna spá frá PM 2022/1. Heimild: Seðlabanki Íslands. Gengisvísitala (v. ás, andhverfur) Raungengi (h. ás) Vísitala Mynd II-6 Vísitala, 2005 = 100 220 200 180 160 140 120 100 50 60 70 80 90 100 110 2024202320222021202020192018201720162015

x

Peningamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.