Peningamál - 04.05.2022, Side 24
PENINGAMÁL 2022 / 2 24
vegafjárfestingar. Vöxtur atvinnuvegafjárfestingar í fyrra
var heldur meiri en gert hafði verið ráð fyrir í febrúarspá
bankans.
... og útlit fyrir áframhaldandi vöxt í ár
Horfur eru á að fjármunamyndun hafi einnig verið sterk
á fyrsta fjórðungi þessa árs þrátt fyrir að vísbendingar
séu um að dregið hafi úr ársvextinum frá fyrri fjórðungi.
Innflutningur almennra fjárfestingarvara jókst t.d. minna
milli ára á fjórðungnum en á sama tíma í fyrra (mynd
III-6). Þá kunna umsvif í byggingarstarfsemi og mann-
virkjagerð að hafa verið minni á fyrsta ársfjórðungi en í
venjulegu árferði vegna slæms tíðarfars.
Könnun Seðlabankans á fjárfestingaráformum fyrir-
tækja sem framkvæmd var í febrúar og mars bendir
til þess að þau áformi að auka við fjárfestingu í ár um
u.þ.b. 30% að nafnvirði frá fyrra ári (mynd III-7). Það er
mun meiri aukning fjárfestingarútgjalda en kom fram í
samsvarandi könnun frá því í september. Niðurstöðurnar
benda til þess að vöxtur verði í flestum atvinnugrein-
um en framlag fjármunamyndunar í ferðaþjónustu og
flutningastarfsemi vegur þyngst. Niðurstöður fyrirtækja-
könnunar Gallup á meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins
sem framkvæmd var í febrúar og mars benda einnig til
þess að stjórnendur séu bjartsýnir um fjárfestingu ársins.
Samkvæmt þeirri könnun telur um þriðjungur stjórnenda
að fjárfesting í ár verði meiri en í fyrra, tvöfalt fleiri en þeir
sem telja að fjárfesting verði minni í ár.
Þessar kannanir voru ýmist gerðar fyrir innrás Rússa
í Úkraínu eða stuttu eftir að hún hófst en óvíst er hver
áhrif hennar verða á fjárfestingaráform fyrirtækja (sjá
rammagrein 2). Einhver fyrirtæki kunna þó að fresta
áformum sínum vegna aukinnar óvissu um innlenda og
erlenda eftirspurn, hækkandi aðfangaverðs eða skorts á
aðföngum.
Vísbendingar gefa engu að síður tilefni til að ætla
að fjárfesting atvinnuveganna verði meiri í ár en talið var
í febrúarspá bankans. Nú er gert ráð fyrir 9,5% vexti milli
ára sem er liðlega 6 prósentum meiri vöxtur en gert var
ráð fyrir í febrúar. Talið er að almenn atvinnuvegafjár-
festing hafi aukist um 12,7% á fyrsta ársfjórðungi sem
er minni vöxtur en í síðustu spá en að vöxtur á árinu
öllu verði ívið meiri en í febrúar eða 10,8%. Við þetta
bætist kröftugur vöxtur stóriðjufjárfestingar en sam-
kvæmt áætlunum fyrirtækja í orkufrekum iðnaði eykst
hún um 43% á árinu. Þá er búist við minni samdrætti
atvinnuvegafjárfestingar á næsta ári en í fyrri spá en
mikil fjárfesting í flugvélum og skipum í ár veldur því að
fjárfestingarstigið lækkar milli ára.
Vísbendingar um almenna atvinnuvegafjárfestingu
1. ársfj. 2018 - 1. ársfj. 2022
1. Samanlögð velta í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð. Gögnin eru eftir tveggja
mánaða virðisaukaskattstímabilum og staðvirt með byggingavísitölu. 2. Samanlagt
innflutningsverðmæti almennra fjárfestingarvara og flutningatækja til atvinnurekstrar,
þó ekki skipa og flugvéla, staðvirt með gengisvísitölu. 3. Punkturinn sýnir áætlun fyrir
fyrsta ársfj.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Velta í byggingastarfsemi og mannvirkjagerð (v. ás)¹
Innflutningur almennra fjárfestingarvara (v. ás)²
Umsóknir um nýskráningar bílaleigubíla (h. ás)3
Breyting frá fyrra ári (%)
Mynd III-6
Breyting frá fyrra ári (%)
2018 2019 2020 2021 ‘22
-300
-200
-100
0
100
200
300
400
500
600
700
-30
-20
-10
0
10
20
30
40
50
60
70
Fjárfestingaráform fyrirtækja 20221
1. Könnun Seðlabankans á fjárfestingaráformum fyrirtækja (að undanskilinni fjár-
festingu í skipum og flugvélum). Könnun Gallup á fjárfestingaráformum 400 stærstu
fyrirtækja landsins. Sýnd eru hlutföll fyrirtækja sem ætla að auka og minnka
fjárfestingu.
Heimildir: Gallup, Seðlabanki Íslands.
Sjávarútvegur
Iðnaður
Flutningar og ferðaþj.
Verslun
Breyting frá fyrra ári (%)
Mynd III-7
Fjölm. og upplýsingat.
Þjónusta og annað
Alls
Hlutfall (%)
Könnun Seðlabankans Könnun Gallup
-20
-10
0
10
20
30
40
20222022
-20
-10
0
10
20
30
40
Auka
Minnka