Peningamál - 04.05.2022, Qupperneq 27
PENINGAMÁL 2022 / 2 27
Uppsafnaður halli í nýrri fjármálaáætlun stjórnvalda
minnkar verulega frá fyrri áætlun
Í nýlega birtri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er að
finna uppfært mat á afkomu ársins í ár og er þar búist
við minni halla um sem nemur ½% af landsframleiðslu
en kveðið var á um í fjárlögum ársins eða 4,6% (A-hluti
samtals). Afkoma ríkissjóðs fer batnandi milli ára og
gerir fjármálaáætlunin ráð fyrir að aukning skulda ríkis-
sjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu stöðvist árið 2025.
Veruleg breyting er á afkomuhorfum frá síðustu fjár-
málaáætlun sem að mestu leyti endurspeglar breyttar
efnahagshorfur. Þannig er uppsafnaður halli ríkissjóðs
yfir tímabilið 2021-2026 nú talinn verða minni um sem
nemur rúmum 6% af landsframleiðslu samanborið við
fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar frá síðasta ári (mynd
III-12).
Utanríkisviðskipti og
viðskiptajöfnuður
Áframhaldandi bati í ferðaþjónustu á fjórða árs
fjórðungi en á móti vó samdráttur annarrar þjónustu
Útflutningur vöru og þjónustu jókst um 8,6% milli
fjórðunga á fjórða fjórðungi síðasta árs (mynd III-13).
Á árinu í heild nam ársvöxturinn 12,3% sem er tæpum
2 prósentum undir því sem gert var ráð fyrir í febrúar.
Þjónustuútflutningur jókst um 36% milli ára á fjórð-
ungnum, sem er nokkru hægari vöxtur en fjórðungana
á undan, og um 20,3% á árinu í heild. Hann er þó enn
um fjórðungi minni en í lok árs 2019 áður en COVID-
19-faraldurinn hófst. Vöxtur þjónustuútflutnings á fjórð-
ungnum skýrist einkum af bata í ferðaþjónustu líkt og
gert var ráð fyrir. Það hægði þó lítillega á batanum í
kjölfar fjölgunar smita og útbreiðslu Ómíkron-afbrigðis
veirunnar og námu heildartekjur af ferðaþjónustu um
62% af tekjum sama tímabils á árinu 2019 á föstu gengi.
Meðalútgjöld á hvern ferðamann jukust töluvert í kjölfar
faraldursins en dregið hefur úr þeim áhrifum eftir því sem
ferðamönnum hefur fjölgað og á fjórða ársfjórðungi voru
meðalútgjöld þeirra um fimmtungi hærri en þau voru að
jafnaði áður en faraldurinn hófst.
Önnur útflutt þjónusta hélt aftur á móti áfram að
dragast saman á fjórðungnum og nam samdrátturinn
9,2% á árinu í heild sem má einkum rekja til um fjórð-
ungs samdráttar í útflutningi tengdum afnotatekjum
af hugverkum lyfjafyrirtækja auk tæplega þriðjungs
samdráttar rannsókna- og þróunarþjónustu. Frávikið
frá spá bankans í febrúar um vöxt útflutnings mátti að
mestu leyti rekja til þess að búist var við minni samdrætti
þessara liða.
Uppsafnaður halli ríkissjóðs áranna 2021-2026
í Fjármálaáætlun
Heimildir: Fjármálaáætlun 2022-2026, Fjármálaáætlun 2023-2027.
Fjármálaáætlun 2023-2027
Fjármálaáætlun 2022-2026
% af VLF
Mynd III-12
0
5
10
15
20
25
30
202620252024202320222021
Útflutningur vöru og þjónustu1
1. ársfj. 2010 - 4. ársfj. 2021
1. Árstíðarleiðréttar magnvísitölur.
Heimild: Hagstofa Íslands.
Útflutningur alls Þjónusta
Vísitala, 2010 = 100
Mynd III-13
40
60
80
100
120
140
160
180
200
220
‘21‘20‘19‘18‘17‘16‘15‘14‘13‘12‘11‘10
Vörur