Fréttablaðið - 25.02.2023, Page 22

Fréttablaðið - 25.02.2023, Page 22
Vinir og vandamenn Ástráðs Haraldssonar eru sammála um að hann sé stórskemmtilegur og fyndinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Ástráður ásamt nýjasta barnabarninu sínu, Huga. Snorri og Egill Ástráðssynir ásamt pabba sínum. MYNDIR/AÐSENDAR Ástráður Haraldsson hefur verið áberandi í umræðunni undanfarið og er af mörgum álitinn alvarlegur og fámáll. Vinir hans og vandamenn bera honum ólíka söguna. Ást ráðu r Haraldsson var nýlega settur ríkis- sáttasemjari í deilu Ef lingar og Samtaka atvinnulífsins. Hann stendur í ströngu þessa dagana við að leysa deiluna og eru miklar vonir bundnar við að honum takist ætl- unarverkið. Ástráður er fæddur þann 27. ágúst árið 1961, hann lauk embættisprófi í lögfræði árið 1990. Ástráður var þá gjarnan kallaður Stráði af vinum sínum. Hann starfaði sem lög- maður í Reykjavík frá árinu 1992 og öðlaðist málf lutningsréttindi fyrir Hæstarétti árið 1995. Ástráður starfar nú sem héraðsdómari og telja margir hann mann fárra orða. Ástráður lét meðal annars þau fleygu orða falla nýverið að tal væri silfur en þögnin gull. Vinir og vandamenn Ástráðs eru sammála um að hann sé stór- skemmtilegur og fyndinn. Hann þurfi alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni og sé söngmaður mikill og partípinni, fáir kunni annan eins hafsjó af textum. Ástráður er giftur Eyrúnu Finn- bogadóttur tónmenntakennara og saman eiga þau tvo syni, Egil og Snorra. Eyrún segir Ástráð umfram allt einstaklega fallega, góða og hjartahlýja manneskju. „Ástráður er eðaleintak sem hefur verið mikil gæfa að hafa sér við hlið í lífinu. Skemmtilegur og drífandi, með mikla réttlætiskennd og afar lítinn verkkvíða,“ segir Eyrún. Egill sonur þeirra segir margt hægt að segja um pabba sinn. Hann sé fyrst og fremst stórskemmtilegur, fyndinn og það sé gaman að vera í kringum hann. Hann láti sér sjaldan leiðast, sé afar músíkalskur og gefi aldrei neinn afslátt á skoðunum sínum. „Að vakna við háan hljóm af Ste- vie Wonder eða David Bowie á laug- ardagsmorgni er til dæmis eitthvað sem ég var löngu hættur að kippa mér upp við á meðan ég bjó enn hjá foreldrum mínum,“ segir Egill. Þá segir hann mjög skemmtilegt að ferðast með pabba sínum út á land, hann sé kunnugur staðar- háttum víða og skemmtilegur sögu- maður. „Ég stóð mig til dæmis að því um daginn á ferð um norðurlandið með félögum mínum að tilkynna þeim að í Akrahreppi í Skagafirði byggi ómerkilegasta fólk landsins. Þeir kannski réttilega furðuðu sig á þessari ályktun minni en ég greindi þeim einfaldlega frá því að það væri vegna þess að þau hefðu verið vond við Bólu-Hjálmar. Þessi samfélags- greinandi landafræði og óafsakandi frásagnarstíll kemur þráðbeint frá pabba.“ Snjall og lausnarmiðaður Ástráður var giftur Svandísi Svav- arsdóttur matvælaráðherra og saman eiga þau tvö börn, Auði og Odd. Auður segir pabba sinn snjallan og lausnamiðaðan karakt- er. Hann sé gríðarlega bóngóður og að uppáhaldið hans sé sennilega að hafa eitthvað fyrir stafni. „Hann gengur raunar eiginlega í allt, góður í ótrúlega mörgu. Til dæmis að smíða, brasa og hanna og búa til falleg heimili, elda frábæran mat og bjóða í rausnarleg og f lott boð,“ segir Auður. „Hann er mjög ákveðinn og viss þegar hann hefur tekið ákvörðun. Hann er alltaf stundvís og nákvæm- ur með tíma og klæðaburð og Söngelskur og skemmtilegur gleðipinni NÆRMYND | Birna Dröfn Jónasdóttir birnadrofn @frettabladid.is Kannski er hans helsti galli hversu lélegur hann er að tjilla og staldra við. Auður Ástráðsdóttir Hjónin Ástráður og Eyrún saman í skíðaferð. snyrtimennsku. Svo er hann líka öf lugur í kórastarfi, útivist og hreyfingu og hefur hlaupið mikið í gegn- um tíðina. Kannski er hans helsti galli hversu lélegur hann er að tjilla og staldra við, en það verður verkef ni sem hann mun taka alvarlega að tileinka sér líka, það er alveg öruggt.“ Þá segir Auður pabba sinn frægan fyrir að fara fyrstur úr öllum boðum, hann hafi til að mynda gert sér það að leik á aðfangadag að vera kominn heim úr messusöngnum áður en eftirspili ljúki til þess að hræra í sósunni. „Það er dýrmætt og mikil lukka að eiga slíkan hauk í horni þegar taka skal stórar ák varðanir eða f r a m- kvæma eitt- hvað, þá er hann „mætt- astur“ og alveg á h rei nu að hann er í viðeig- andi klæðnaði.“ Eftirlæti allra kórstjóra Á st ráðu r hef u r leng i sungið í Dómkórnum í Reykjavík ásamt Eyrúnu og fleiri vinum og vandamönnum. Ein þeirra er Þórunn Björnsdóttir, oftast kölluð Tóta, en hún segir Ást- ráð eftirlæti allra kórstjóra. Hann mæti á nánast allar kóræfingar og sé meira og minna ofvirkur þátt- takandi meðan á þeim stendur. „Hann er ferlega skemmtilegur félagi, alltaf tilbúinn með smáskít- legar athugasemdir um lagaval og efnistök, aldrei meiðandi en oftast reglulega sjarmerandi,“ segir Tóta. „Hann er gleðipinni í öllum partí- um og þegar byrjað er að glamra á gítarinn, svona upp úr miðnætti, þá halda honum engin bönd. Fáir kunna annan eins hafsjó af textum og nauðsynlegt er að mæta vel upp- lagður og taka hressilega undir í við- lögunum,“ segir hún. „Fyrir honum er messusöngur ekkert vandamál, ekki einu sinni eldsnemma á nýárs- dagsmorgni,“ bætir hún við. Kári Þormar, fyrrum stjórnandi dómkórsins tekur undir orð Tótu og segir Ástráð frábæran meðlim í kórnum. „Þegar ég tók við kórnum 2010, hafði Ástráður verið í smá pásu í kórnum. Mér leist nú þá síður á manninn, enda hafði ég frekar myndir af honum í huganum úr viðtölum í sjónvarpi og útvarpi, sem mjög formlegum manni sem virkaði frekar húmorslaus og alvar- legur. Dómkórinn hefur ávallt skartað skemmtilegu fólki og ég sá strax er hann kom til baka að vísi- tala gleðinnar í kórnum hækkaði ansi mikið. Þarna var nú kominn allt annar maður en sá sem ég hafði kynni af á opinberum vettvangi,“ segir Kári. „Eins og er í kórum þá eru oft aukaæfingar eða raddæfingar og þar sem ég er nú ekki alltaf með puttann á púlsinum hvað varðar fótboltann þá boðaði ég aukaæfingar á tíma þegar landsleikur var. Ástráður var nú f ljótur að hringja í mig og gera mér grein fyrir að það stæðist nú ekki landslög að hafa kóræfingar á sama tíma.“ n 22 HELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 25. FEBRÚAR 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.