Fréttablaðið - 25.02.2023, Page 24
María Carmela, sem oftast er
kölluð Carmela, segist alltaf hafa
verið skapandi og fann fljótt að
listgreinar voru hennar áhugasvið.
„Myndlistin var alltaf uppá-
haldsfagið mitt í grunnskóla. Ég
fann mig aldrei í bóklegu fögunum
í skóla og gekk því ekkert sérlega
vel þar, ég verð bara góð í því sem
ég hef áhuga á. Ég fór síðan í FÁ
[Fjölbrautaskólann við Ármúla]
þar sem ég fór í kvikmyndagerð,
myndlist og leiklist og það var
tímabilið þar sem ég byrjaði að
blómstra,“ segir hún.
Þegar Carmela er beðin að lýsa
sjálfri sér segist hún elska pasta
og risaeðlur en vera hrædd við
þvottavélar og kaffikönnur. Hún
er hálf íslensk og hálf ítölsk, sem er
kannski ástæða þess að hún elskar
pasta.
„Það er mjög auðvelt að gleðja
mig og ég finn hamingjuna í hvers-
dagsleikanum, verð auðveldlega
spennt og mér leiðist aldrei. Ég er
mikill safnari og mér finnst æðis-
legt að finna nýja hluti í söfnin
mín.“
Carmela býr til mjög litríkar
myndir og hefur greinilega mjög
gott auga fyrir smáatriðum. Hún er
einhverf og segist upplifa umhverf-
ið og tilfinningarnar mjög sterkt
og tjái það í gegnum listina.
„Ég tek mikið eftir smáatriðum,
það sem er kannski lítið fyrir
mörgum gæti verið risastórt fyrir
mér. Þess vegna hef ég oft gaman
af því að teikna hluti í stærri eða
minni hlutföllum en þeir eru vana-
lega,“ segir hún og bætir við að allt
geti veitt henni innblástur.
„Ég fæ innblástur úr spag-
ettí-disknum mínum, þegar ég
reima skóna mína eða þegar það
er rigning úti og droparnir búa
til mynstur á gluggann. Hvítir
og auðir fletir færa mér mikinn
innblástur því þar eru endalausir
möguleikar. Það getur verið svo
margt, til dæmis norðurljósin og
stjörnurnar á himninum veita mér
svo hlýlega tilfinningu að ég gæti
fengið þrá til að setja þá tilfinn-
ingu á blað,“ útskýrir hún.
„Ég fæ líka mikinn innblástur úr
tónlist, alltaf þegar ég hlusta á lög
sé ég liti og mynstur í huganum,
sem gefa mér hugmyndir að nýjum
teikningum og verkum. Áferð veit-
ir mér innblástur, hvort sem það
er af mat eða á fötum eða öðrum
hlutum. Fólk veitir mér innblástur,
sama hvort það sé frábært fólk
eða kúkalabbar, það er alltaf hægt
að læra eitthvað. Hugmyndirnar
koma úr hinum furðulegustu
áttum hjá mér, fæðingarblettir og
tásveppir geta allt eins veitt mér
innblástur.“
Tré eru fullkomnir vinir
Á myndum Carmelu má sjá litríkar
plöntur og dýr og fleira úr nátt-
úrunni, enda er Carmela mikið
náttúrubarn.
„Það besta sem ég geri er að fara
út í skóg og vera hluti af náttúrunni,
tré eru hinir fullkomnu vinir. Á
vorin þegar gróðurinn er að vakna
úr dvala flyt ég nánast út í skóg og
er þar að taka inn náttúruna. Ég
finn fyrir svo miklum skilningi frá
náttúrunni, þar eru bara allir að
gera sitt besta, lifa. Hún býst ekki
við neinu frá þér heldur er hún
bara ánægð að þú sért hér. Það er
engin pressa að þurfa alltaf að vera
að gera eitthvað til að meika það
heldur fær maður bara að njóta þess
að anda og vera í núinu,“ útskýrir
þessi klára, unga kona.
„Eitt af uppáhaldinu mínu að
teikna eru dýr, það er af því þau eru
svo alls konar og það er endalaust
hægt að fá innblástur frá þeim. Það
skín frá þeim svo mikill karakter
og það er svo gaman að reyna að
ná þessum karakter á pappír. Mig
dreymir um að flytja á bóndabæ
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Efst er Carmela með hundinum sínum Bamba sem er
ellefu ára en hér að ofan má sjá litríkar myndir eftir hana.
Þessi mynd
heitir Rulers of
the mushroom
kingdom sem
má þýða sem
stjórnendur
sveppaveldisins.
Cosmic girl kallast þessi litríka mynd
þar sem margt er um að vera.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
þar sem ég er með hænur, endur
og minn eigin matjurtagarð. Mig
langar líka rosalega mikið í svín
sem ég gæti dekrað í botn og leikið
mér við úti í drullunni, gefa því
besta líf sem svín getur átt. Ég
myndi vera með lítinn kofa í garð-
inum sem væri vinnustofan mín,
það væri staður þar sem málningin
mætti fara út um alla veggi og loft.“
Carmela hefur gert eftir-
prentanir af myndunum sínum
og hefur líka látið prenta þær á
töskur og púða. Hún vinnur að
því að gera líka teppi, límmiða og
fleira og dreymir um að prenta
teikningarnar líka á föt, þar sem
henni finnst vanta úrval af litríkari
fötum. Verkin selur hún oftast í
gegnum Instagram og Facebook.
„Það er hægt að finna mig á
Instagram undir nafninu: mct.
art. Margir hafa pantað í gegnum
Instagram eða komið þegar ég er
að halda sýningar eða er á mörk-
uðum,“ segir Carmela.
„Ég hélt síðast sýningu í október,
þar voru töskur og púðar til sýnis
og hægt að kaupa eftirprent á
staðnum.“
Býr til nýjan heim
Carmela býr ekki bara til litríkar
myndir, hún er líka mikið fyrir
kvikmyndagerð og segir áhugann
hafa byrjað af því að pabbi hennar
var alltaf með myndavélina í and-
litinu á henni þegar hún var barn,
eins og hún orðar það.
„Síðan byrjaði ég að taka upp á
því sjálf að áreita fjölskyldumeð-
limi mína með myndavélinni. Þau
eru samt öll virkilega ánægð með
það núna, því ég á svo mikið af
minningum á myndböndum.“
Carmela skrifaði sína fyrstu
stuttmynd tólf ára gömul. Hún átti
erfitt í skólanum og var þess vegna
oftast heima. Þá tók hún upp á því
að byrja að skrifa handrit. Þegar
henni fannst handritið tilbúið
sendi hún tölvupóst á útskriftar-
nemendur í Kvikmyndaskólanum
til að vita hvort þau vildu taka upp
mynd eftir handritinu. Hún fékk
engin svör fyrst en gafst ekki upp.
Eftir þrjá tölvupósta hafði hún loks
erindi sem erfiði og stuttmynd
varð að veruleika.
„Við gerðina á myndinni kynnt-
ist ég frábæru fólki sem var til í að
vinna með tólf ára gömlu mér og
frænkum mínum tveim, sem voru
svo yndislegar að leika í myndinni
með mér. Ég eignaðist þar vini fyrir
lífstíð og fékk að sjá inn í heim
kvikmyndagerðarinnar. Eftir það
þá varð ég heilluð af kvikmynda-
gerð! Hvernig fólk kemur saman og
býr til nýjan heim!“
Seinna þegar Carmela fór að læra
kvikmyndagerð í FÁ kynntist hún
bestu vinum sínum og kærasta.
Þau gerðu stuttmynd saman sem
heitir Reglur leiksins. Myndina má
finna á YouTube en hún fjallar um
Lúnu, einhverfa stelpu sem þarf
að takast á við erfiðar aðstæður.
Við gerð myndarinnar fóru þau á
bakvið kennarann sinn með því að
leigja tæki hjá Kukl og fá styrki úr
ýmsum áttum, án þess að láta hann
vita. Þegar kennarinn komst að því
var hann ekki sáttur og Carmela
segir að þau hafi aldeilis fengið að
heyra það. Seinna vann myndin til
verðlauna á tveimur kvikmynda-
hátíðum, svo þeim var fyrirgefið.
„Verðlaunin fyrir aðra kvik-
myndahátíðina var að fara á nám-
skeið í New York Film Academy
og héldum við þangað sumarið
2018. Ég hef fengið að heyra að
myndin sé sýnd sem kennsluefni í
grunnskólum á ýmsum stöðum á
landinu. Markmiðið með mynd-
inni var að reyna að útskýra ein-
staka upplifanir eða tilfinningar
sem er erfitt að koma í orð, fyrir
þeim sem ekki finna fyrir þeim,“
útskýrir Carmela, sem er núna að
leggja lokahönd á aðra mynd sem
heitir Fiskur á Mars.
„Það er er hjartnæm gaman-
mynd um geimveru, tileinkuð
pabba mínum, sem kvaddi
skyndilega árið 2019. Þar var ég í
samvinnu við fullt af hæfileikaríku
fólki og við gátum sameinað krafta
okkar til að búa til töfra.“
Orð eru flókin
Þegar Carmela er spurð hverra hún
líti helst upp til í listinni segir hún
að þau séu mörg.
„Ég elska að fylgjast með fólki og
sjá hvað það er að skapa. Mamma
mín, Regína Magdalena, er mynd-
listarkona og ég hef alltaf verið
aðdáandi hennar númer eitt. Ég
hef lært heilmikið af henni og
fylgst með heilu málverkunum
koma til lífsins, hún gerir mig svo
stolta. Svo er kærasti minn hann
Mummi tónlistarmaður undir
nafninu Oddweird. Hann býr til
tónlist sem ég vil gjarnan kalla
geimdjassfunkadelic! Ég hlusta
einmitt mikið á hann þegar ég er
að teikna og hann veitir mér einnig
mikinn innblástur,“ segir hún.
Carmela segist einnig vera
heppin að því leyti að hún á hæfi-
leikaríka vini sem hún fer oft
með á kaffihús. Þar teikna þau og
skiptast á hugmyndum og vinna
saman.
„List er ekki keppni, hún er tján-
ing og enginn tjáir sig á sama hátt,
þess vegna er pláss fyrir alla. Svo er
líka svo gaman að fá þann heiður
að vinna með öðru listafólki,
geta verið í samvinnu. Sameinað
hæfileika og fært fjöll. Ég hef alltaf
haft þörf fyrir að skapa. Ég elska
að láta annað fólk brosa, hlæja og
sýna fólki fegurðina í hversdags-
leikanum. Mér finnst eins og listin
mín, mitt innra barn, dragi fram
annarra manna innri börn og það
er svo mikilvægt, því þau vilja
fá að koma út að leika sér. Ég hef
alltaf hugsað mjög myndrænt, mín
tjáning hefur alltaf verið í gegnum
teikningar, liti og sköpun. Orð eru
mér svolítið flókin. Stundum á ég
erfitt með tjáningu þegar það er
mikið um að vera í kringum mig
eða ef ég er stressuð eða spennt,“
segir hún.
„Mér finnst mjög gott að vera
ein, þó ég njóti mín líka vel í nær-
veru fjölskyldu og vina. En einvera
mín gefur mér margar hugmyndir,
ég er miklu meira meðvituð um
hugsanir mínar þegar ég fæ að
vera algjörlega frjáls í mínum eigin
heimi án truflana. Ég upplifi yndis-
lega ró þegar ég teikna, það er svo
frelsandi. Síðan verður til mynd
sem á sér uppruna í undirmeðvit-
undinni og færir hugmyndina út
í hendurnar, ég er í rauninni bara
tól fyrir eitthvað annað sem er að
koma í gegn.“ n
Mér finnst eins og
listin mín, mitt
innra barn, dragi fram
annarra manna innri
börn og það er svo mikil-
vægt, því þau vilja fá að
koma út að leika sér.
2 kynningarblað A L LT 25. febrúar 2023 LAUGARDAGUR