Fréttablaðið - 25.02.2023, Page 25
NEU er glæný vörulína frá
fyrirtækinu Neubria, sem
hefur það að markmiði að
mæta þörfum okkar dag
hvern með einstökum
vörum fyrir hann, hana og
breytingaskeið kvenna.
Hjá Neubria starfar úrvalslið sér-
fræðinga sem hafa það að mark-
miði að skapa fæðubótarefni sem
mæta þörfum nútímans. Neubria
hefur nú þróað nýja einstaka
vörulínu sem tileinkuð er karl-
mönnum, konum og breytinga-
skeiði kvenna. Blöndurnar eru
sérstaklega hannaðar af sérfræð-
ingum í bætiefnum og jurtum og
mikill metnaður er lagður í að setja
saman öflugar blöndur af vítamín-
um, steinefnum og jurtum, sem
hafa það að markmiði að stuðla
að eðlilegri líkamsstarfsemi. Allar
þrjár vörurnar í NEU línunni eiga
það sameiginlegt að vera glúten-,
laktósa- og gerlausar.
Sérhönnuð blanda sem
styður við þarfir karlmanna
Heilbrigði og lífskraftur er það
sem karlmenn vilja eflaust upplifa
dag hvern, en NEU Him formúlan
inniheldur 42 tegundir mikilvægra
vítamína og steinefna, ásamt
mikilvægum jurtum sem henta
afar vel fyrir karlmenn dags dag-
lega. Blandan inniheldur til dæmis
E-, B1-, B2-, B3-, B6-, B9- og B12-
vítamín sem stuðla að eðlilegri
starfsemi ónæmiskerfisins.
NEU Him formúlan inniheldur
jafnframt frábært úrval plöntuefna,
meðal annars jurtina grikkjasmára
(e. fenugreek) sem talin er auka
testósterónmagn hjá karlmönnum,
ásamt L-arginine sem sýnt hefur
verið fram á að geti verið gagnlegt
fyrir þá sem glíma við hvers konar
stinningarvandamál. Formúlan
hefur það að markmiði að auka við-
nám líkamans gegn streitu sem og
auka orkuframleiðslu karlmanna.
Auk þess er blandan hönnuð til að
auka vitræna virkni svo þú haldir
einbeitingu allan daginn.
Öflug formúla fyrir konur
styður við huga og líkama
NEU Her formúlan frá Neubria
inniheldur 36 tegundir nauðsyn-
legra vítamína og steinefna sem öll
gegna mikilvægum hlutverkum í
líkama okkar. Formúlan inniheldur
til dæmis D-, B1-, B2-, B3-, B6-, B9-
og B12-vítamín ásamt fólínsýru,
sem öllum konum á barneignar-
aldri er ráðlagt að taka inn, sem og
steinefnin kalk, magnesíum, sink
og járn, sem stuðlar að eðlilegri
myndun rauðra blóðkorna.
Að auki inniheldur NEU Her
formúlan náttúruleg plöntuefni
sem hafa það að markmiði að
styðja við huga og líkama kvenna,
svo sem trönuber, sem lengi hafa
verið notuð gegn hinum ýmsu
kvillum sem tengjast þvagfærum
kvenna, ásamt macarót sem er hvað
þekktust fyrir að hafa orkugefandi
og hormónajafnandi áhrif. Blandan
hefur það að markmiði að auka
viðnám líkamans gegn streitu, sem
gerir okkur kleift að takast á við
daglegar áskoranir.
Breytingaskeið kvenna er
fullkomlega eðlilegur kafli
Breytingaskeiðið er eðlilegur hluti
af lífsskeiði kvenna og eitthvað
sem allar konur ganga í gegnum.
Hins vegar er einstaklingsbundið
hvernig konur upplifa tiltekið skeið.
Flestar konur finna fyrir því þegar
hormónabreytingar hefjast þó svo
þær geri sér ekki alltaf grein fyrir
því að um upphaf breytingaskeiðs-
ins sé að ræða. Einkenni geta verið
afar mismunandi milli kvenna
en helstu einkenni eru svitakóf,
nætursviti og óreglulegar eða engar
blæðingar.
Önnur einkenni geta einnig
verið óútskýrð þyngdaraukning,
svefnleysi og depurð, en 9 af
hverjum 10 konum finna fyrir
andlegri vanlíðan. Breytinga-
skeiðið er fullkomlega eðlilegur
kafli í lífi kvenna, ekki láta það
trufla.
Einstök blanda fyrir og
eftir tíðahvörf kvenna
NEU Phase er sérhönnuð blanda
fyrir og eftir tíðahvörf kvenna
en varan hefur það að markmiði
að styðja við almenna vellíðan.
Blandan inniheldur 36 tegundir
virkra næringarefna, en þar má
helst nefna E-, C-, B-, B2-, B3-,
B6- og B12-vítamín, fólínsýru og
A-vítamín, sem stuðlar að við-
haldi eðlilegrar slímhúðar, húðar
og sjónar, ásamt B6-vítamíni sem
stuðlar að því að halda reglu á
hormónastarfsemi.
Blandan inniheldur að auki
náttúruleg plöntuestrógen sem
sýnt hefur verið fram á að hafa
jákvæð áhrif á heilsu okkar og
geta jafnvel haft fyrirbyggjandi
áhrif á hina ýmsu kvilla, svo
sem Dong Quai sem lengi hefur
verið notuð gegn vandamálum
tengdum tíða óreglu og tíða-
hvörfum. NEU Phase formúlan
hentar konum, sem farnar eru að
finna fyrir hormónabreytingum,
afar vel. n
NEU fæðubótarefnin fást í Nettó,
Hagkaupum og Fjarðarkaup.
NEU er glæný vörulína
fyrir hann, hana og
breytingaskeiðið
NEU Him formúlan hefur það að markmiði að auka viðnám
líkamans gegn streitu sem og auka orkuframleiðslu karlmanna.
NEU Her hefur það að markmiði að auka viðnám líkamans gegn
streitu svo við getum tekist á við daglegar áskoranir.
NEU Phase er sérhönnuð blanda fyrir og eftir tíðahvörf kvenna
en varan hefur það að markmiði að styðja við almenna vellíðan.
Blöndurnar eru
sérstaklega hann-
aðar af sérfræðingum í
bætiefnum og jurtum og
mikill metnaður er
lagður í að setja saman
öflugar blöndur af víta-
mínum, steinefnum og
jurtum, sem hafa það að
markmiði að stuðla að
eðlilegri líkamsstarf-
semi.
LIPINORM A-800
Fæst í apótekum og almennum verslunum.
Ert þú að glíma við of hátt
gildi kólesteróls í blóðinu?
Besta ráðið er aukin dagleg hreyfing og breytt matarræði.
Lipinorm A-800 er góð viðbót við þá lífsstílesbreytingu.
Virk náttúrleg innihaldsefni í Lipinorm stuðla að eðlilegri
blóðfitu og hjartastarfssemi.
Ekki slá vandamálinu á frest og hugsaðu með hjartanu.
ALLT kynningarblað 3LAUGARDAGUR 25. febrúar 2023