Fréttablaðið - 25.02.2023, Side 26

Fréttablaðið - 25.02.2023, Side 26
starri@frettabladid.is Seinni umferð undankeppni Söngvakeppninnar fer fram í kvöld á RÚV. Þar munu seinni fimm lögin af tíu keppa en tvö þeirra komast áfram auk þess sem dómnefnd mun velja fimmta lagið úr hópi þeirra sem ekki eru kosin áfram. Stór hluti þjóðarinnar verður límdur við skjáinn í kvöld og þá er fátt betra en að gæða sér á góðu sjónvarpssnarli. Hér er uppskrift af bombu sem gleður, beikon-ostborgaraídýfa. Beikon-ostborgaraídýfa 6 sneiðar beikon, skornar í litla bita 1 bolli smátt skorinn laukur 2 hvítlauksgeirar, smátt skornir 450 g nautahakk 1 bolli rifinn mozzarella ostur 1 bolli rifinn cheddar ostur 170 g rjómaostur ¼ bolli sýrður rjómi ¼ bolli majónes 1 msk. Worcestershire sósa 1 msk. tómatsósa 2 tsk. gult sinnep Steikið beikonbitana á pönnu þar til þeir verða stökkir. Setjið til hliðar á eldhúspappír. Hellið olíunni af pönnunni þannig að um 1 msk. sé eftir. Steikið næst laukinn þar til hann er mjúkur og ljósbrúnn. Bætið næst hvítlauknum út í og eldið þar til mjúkur. Nautahakkið fer svo á pönnuna og er steikt í gegn. Brjótið það vel í sundur. Lækkið hitann örlítið og bætið út í helmingnum af bæði mozzarella- og chedder ostinum, öllum rjómaostinum, sýrða rjómanum og majónesinu, Worcestershire sósunni, tómat- sósunni og sinnepinu. Hrærið þar til osturinn hefur bráðnað. Bætið þá helmingnum af beikoninu út í og hrærið saman. Setjið ídýfuna í eldfast mót og stráið afganginum af ostinum yfir. Setjið undir heitt grill í ofni þar til ostur hefur bráðnað. Þegar ídýfan er borin fram skal strá afganginum af beikoninu yfir hana ásamt smátt skornum tóm- ötum og vorlauk. Borið fram með þunnt skornu ristuðu snittubrauði eða góðum flögum. n Ídýfa sem gleður MgB ISGLÝSÍN A T 300 mg 5 mg 75 mg 100 mg 200 mcg B6 vítamín Schisandra Burnirót B9 vítamín (fólinsýra) Magnesíum bisglýsínat Léttari lund, alla daga MAG-YOUR-MIND® vinnur gegn streitu og skerpir hugsun Nettó, Fjarðarkaup, Hagkaup, Krónunni, Lyf og heilsu og á goodroutine.is fæst í Apótekaranum, GOOD ROUTINE® K AV IT A Jón Theodór með viðurkenningu sína, sem Dagur Sveinn Dagbjartsson frá KSÍ afhenti honum. MYND/KSÍ Jón Theodór Jónsson, yfirþjálfari yngri flokka Skallagríms í Borgarnesi og framkvæmdastjóri knatt- spyrnudeildar félagsins, hlaut í vikunni viðurkenn- ingu frá Knattspyrnusam- bandi Íslands. gummih@frettabladid.is Jón Theodór varð fyrir valinu sem „Grasrótarpersóna ársins“ en í umsögn sem fylgdi með til- nefningu hans segir meðal annars: „Jón Theodór sýnir mikla ástríðu fyrir þjálfun yngri flokka og hefur rifið upp knattspyrnustarfið í Borgarnesi. Sérstaklega hefur hann lagt alúð við þá miklu fjölgun sem hefur orðið hjá stúlkum í knattspyrnu. Hann sýnir öllum iðkendum áhuga og hvetur ein- staklinginn til þess að vilja bæta sig. Krakkarnir dýrka hann og mæta á æfingar þrátt fyrir mis- góða æfingaaðstöðu. Hann lætur hverjum iðkanda líða eins og hann skiptir máli sem hluti af heildinni.“ Uppskera laun erfiðisins Fréttablaðið sló á þráðinn til Jóns og spurði hann fyrst hvernig tilfinning það sé að bera titilinn Grasrótarpersóna ársins. „Það er bara stórkostlegur heiður og er alveg meiriháttar. Það má kannski segja að ég sé að uppskera laun erfiðisins. Maður er nánast aldrei heima hjá sér enda í ansi mörgu að snúast hjá mér í þessu starfi sem ég er í. En ég tel mig vera í skemmtilegustu vinnu sem hægt er að vinna við. Maður er í því hlutverki að móta einstakl- inga, kynnast þeim og leiðbeina og sinna áhugamáli sínu,“ segir Jón Theodór. Jón og eiginkona hans, Guðlaug Jónsdóttir, eru búsett á Hvanneyri ásamt þremur börnum sínum en Jón tók við starfi yfirþjálfara Skallagríms fyrir þremur árum og gegnir sömuleiðis stöðu fram- kvæmdastjóra. „Ég er yfirþjálfari og er í raun þjálfari allra flokka og sé auk þess um rekstur knattspyrnudeildar- innar. Ég sé um allt sem tengist meistaraflokknum en ég þjálfa hann ekki,“ segir Jón Theodór. Hann segist hafa mikla ástríðu fyrir þjálfuninni og er ánægður með hversu vel hefur gengið að fjölga yngri iðkendum hjá félaginu. „Það er búin að vera töluverð fjölgun hjá okkur og við höfum sérstaklega farið í þá herferð að sækja stelpur í fótboltann sem hefur gengið mjög vel. Við erum komin með mjög stóra og öfluga flokka. Ég held að það sé alveg óhætt að segja að mér hafi tekist bara vel að efla áhugann í bænum og hér er nánast annar hver krakki að æfa fótbolta,“ segir Jón Theodór. Spenna beltin og halda sér fast Um aðstöðuna í Borgarnesi fyrir knattspyrnuiðkendur segir Jón Theodór: „Hún er mjög slök yfir vetrartímann en yfir sumartím- ann er hún mjög flott. Á veturna erum við æfa úti í öllum veðrum á hálffrosnum „battavöllum“ en á sumrin getum við æft og spilað á góðum grasvöllum,“ segir Jón. Er framtíðin björt í fótboltanum í Borgarnesi? „Ég get lofað því og sagði það þegar ég tók á móti viðurkenningu minni hjá KSÍ að menn þurfa bara að spenna beltin og halda sér fast því framtíðin hjá Skallagrími er mjög björt.“ Það er ansi langt um liðið frá því Skallagrímur átti síðast sæti í efstu deild en meistaraflokkur karla Er stórkostlegur heiður  vann sér sæti á meðal þeirra bestu árið 1997 eða fyrir 26 árum síðan. Veran í efstu deild var einungis eitt tímabil. Síðan þá hafa Borg- nesingar spilað í neðri deildum og í ár spilar karlaliðið í 4. deild. „Sennilega gerist það ekki aftur að Skallagrímur verði með lið í efstu deild en við stefnum á að gera Skallagrím að 1. eða 2. deildarliði í karlaflokki, búa til sterka kvenna- flokka líka og tefla fram meistara- flokki eftir nokkur ár,“ segir Jón Theodór en að hans sögn er góð samvinna á milli Akraness og Borgarness í fótboltanum og vegna aðstöðuleysis eftir vetrartímann æfa nokkrir flokkar félagsins í Akraneshöllinni. Knattspyrnusamband Íslands veitti tvenn önnur grasrótarverð- laun í vikunni. Hamar úr Hvera- gerði hlaut viðurkenninguna „Grasrótarfélag ársins“ fyrir þraut- seigju í starfi yngri flokka við erf- iðar aðstæður. Þróttur Reykjavík fékk viðurkenninguna „Grasrótar- verkefni ársins“ fyrir grasrótarfót- bolta eldri flokks félagsins. Þetta er í annað sinn sem verð- laununum er þrískipt með þessum hætti en margar tilnefningar bár- ust í öllum flokkum og greinilegt er að grasrótarstarf er í miklum blóma víðs vegar um land. n Það má kannski segja að ég sé að uppskera laun erfiðisins. Ég tel mig vera í skemmtilegustu vinnu sem hægt er að vinna við. Jón Theodór Jónsson 4 kynningarblað A L LT 25. febrúar 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.