Fréttablaðið - 25.02.2023, Síða 33

Fréttablaðið - 25.02.2023, Síða 33
Allar nánari upplýsingar er að finna á Coripharma.is Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd. Nánari upplýsingar veitir Þórey Jónsdóttir mannauðsstjóri í síma 420 6710 eða í tölvupósti, thoreyj@coripharma.is Aðstoðarmaður á rannsóknarstofu Aðalstarf aðstoðarmanns á rannsóknarstofum eru leysnimælingar, sýnaundirbúningur, framkvæmd tækniprófa, kvarðanir og eftirlit á tækjabúnaði ásamt margvíslegum og fjölbreyttum störfum tengdum gæðakerfi og skjölun gagna. Helstu verkefni: • Framkvæmd UV leysniprófana • Sýnataka fyrir HPLC leysniprófanir • Sýnaundirbúningur fyrir HPLC mælingar • Tæknipróf – Prófun á tæknilegum eiginleikum framleiðsluvöru • Kvarðanir og eftirlit á tækjabúnaði rannsóknarstofunnar • Skráning á niðurstöðum og skjölun á geymsluþolsskrám Umsóknarfrestur er til og með 12. mars nk Sérfræðingur á rannsóknarstofu Aðalstarf sérfræðings á rannsóknarstofu eru mælingar á lyfjum með HPLC mælingum, undirbúningur sýna og uppsetning mælinga, mat á stöðugleika lyfja í þróun og á markaði, viðhald og umsjón tækjabúnaðar á rann- sóknarstofum ásamt margvíslegum og fjölbreyttum störfum tengdum gæðakerfi og skjölun gagna. Helstu verkefni: • Undirbúningur sýna og framkvæmd HPLC mælinga • Skráning á niðurstöðum og skjölun á rannsóknarskrám • Utanumhald og yfirsýn með stöðu verkefna á þróunarstigi og á markaði • Önnur almenn störf á rannsóknarstofum Umsóknarfrestur er til og með 12. mars nk Viðskipta-og fjármálasérfræðingur Við leitum að reynslumiklum greiningaraðila á fjármálasvið Coripharma. Um nýtt starf er að ræða á sviðinu og því spennandi tækifæri til að koma að mótun þess. Helstu verkefni: • Gagnaöflun, greining og skýrslugerð á viðskipta-og fjárhagsgögnum fyrirtækis- ins ásamt tillögum að úrbótum á rekstri byggða á tölulegum gögnum • Uppsetning mælikvarða og eftirfylgni þeirra • Áætlanagerð ásamt samanburði á fjárhagsáætlun og raun árangri hverju sinni • Kostnaðargreiningar og – útreikningar nýrra verkefna, fjárfestinga, vara og samninga • Framkvæmd viðskiptaáætlana og verðmatsútreikningar Umsóknarfrestur er til og með 12. mars nk. Prentumsjón Innkaupa- og áætlanadeild Coripharma leitar að einstaklingi í Prentumsjón (artwork coordinator). Helstu verkefni: • Yfirferð frumgagna (technical approval) • Yfirferð prófarka og gangsetning prentunar • Samskipti við viðskiptavini og prentsmiðjur • Miðla upplýsingum til annarra deilda um stöðu verkefna • Tryggja að verkefni séu unnin innan skilgreindra tímamarka • Önnur tilfallandi verkefni Umsóknarfrestur er til og með 12. mars nk. Sérfræðingur á framleiðslusviði Framleiðslusvið Coripharma leitar að traustum og ábyrgum einstaklingi í sérfræðingahóp sinn. Sérfræðingur í framleiðslu og pökkun sinnir afar fjölbreyttu starfi sem snýr að undirbúningi og stuðningi við lyfjaframleiðslu og pökkun, bæði eigin lyfjaþróun og framleiðslu fyrir þriðja aðila (contract manufacturing). Helstu verkefni: • Gerð framleiðslugagna fyrir lyfjafram- leiðslu og pökkun • Mastervinnsla, gerð skriflegra leið- beininga auk umbótarverkefni • Fagleg afgreiðsla á cGMP málefnum framleiðslu og pökkunar • Þátttaka í úttektum innri og ytri aðila sem og afgreiðsla frávika • Gildingavinna tengd framleiðslu og pökkun á nýjum lyfjum Umsóknarfrestur er til og með 12. mars nk Deildarstjóri á framleiðslusviði Erum við að leita að þér? Coripharma er ört stækkandi fyrirtæki í lyfjaiðnaði sem leitar að öflugum einstaklingum í spennandi framtíðarstörf. Hjá Coripharma starfar fjölbreyttur hópur einstaklinga með ólíka menntun og bakgrunn, í dag starfa um 180 einstaklingar hjá fyrirtækinu. Félagið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja ásamt því að sinna verktökuframleiðslu fyrir önnur lyfjafyrirtæki. Frá því að félagið hóf starfsemi árið 2018 hefur það hafið framleiðslu á 20 lyfjum og er með 18 ný lyf í þróun. Coripharma leitar nú að öflugum einstaklingi í stöðu deildarstjóra pökkunardeildar á framleiðslusviði fyrirtækisins. Í dag starfa 35 í pökkun á tveimur vöktum. Við leitum að kraftmiklum og áreiðanlegum einstaklingi með framúrskarandi samskipta- og stjórnunarhæfni sem og jákvætt viðmót. Helstu verkefni: • Dagleg stjórnun deildarinnar í takt við sett markmið • Framkvæma árlega fjárhagsáætlun fyrir deildina • Samþykkt reikninga og launa • Val á tækjabúnaði fyrir deildina • Taka þátt í úttektum og eftirfylgni þeirra • Hluti af frávika- og gæðaráði fyrir- tækisins Umsóknarfrestur er til og með 5. mars nk. Störf á rannsóknarstofu í stöðuleikadeild Við leitum að sérfræðingi og aðstoðarmanni í stöðugleikamælingar. Stöðugleikadeild er hluti af Þróunarsviði Coripharma og sér um mælingar á stöðugleika lyfja í þróun og á markaði.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.