Fréttablaðið - 25.02.2023, Page 45

Fréttablaðið - 25.02.2023, Page 45
Það er sturluð upplifun að sjá bók sem maður hefur skrifað og hugs- að fyrir öllu lifna við. Mér fannst ég bara ömurlegur. Mér fannst ég svo lélegur í leikritinu því að ég var ekkert að leika, ég var bara að dást að hinum. af bókum. Á heimilinu fengu systk- inin, sem eru auk Gunnars og Ása, Nína Helgadóttir og Hallgrímur Helgason, fullkomið frelsi til að lifa og starfa við það sem þau langaði. „Það var vel talað um listafólk heima hjá okkur og móðursystir mömmu var fyrsta íslenska konan sem lærði málaralist, Kristín Jóns- dóttir. Það var talað af virðingu um list og listafólk,“ segir Gunnar. „Hallgrímur lærði málaralist og varð svo rithöfundur og ég lærði leiklist og varð svo rithöfundur. Hann gekkst bara við rithöfund- areðlinu miklu fyrr en ég,“ bætir hann við. „Ási bróðir minn og Elín mágkona mín eru svo með Gráa köttinn og Drápu bókaútgáfu en systir okkar er langbest af okkur, hún vinnur hjá Rauða krossinum, er í því að bjarga heiminum.“ Draumaþjófurinn Árið 2019 kom út barnabókin Draumaþjófurinn eftir Gunnar. Bókin fjallar, ólíkt öðrum bókum hans, ekki um íslenskan veruleika sem við þekkjum svo vel heldur fjallar hún um rottur og þeirra líf og ævintýri. Um næstu helgi verður söng- leikurinn Draumaþjófurinn frum- sýndur í Þjóðleikhúsinu, Gunn- ar segir það ótrúlega tilfinningu. „Björk skrifar leikgerðina, ég fékk aðeins að fylgjast með en stóð mig vel í því að skipta mér ekki of mikið af. Hún skrifaði líka leikgerðina af Mömmu klikk sem var sett á svið í Gaf laraleikhúsinu og þá var ég alltaf að rífast við hana, var alveg óþolandi,“ segir hann. „En þetta hefur gengið vel og ég er búinn að vera mjög góður við hana núna. Þetta hefur allt gerst mjög hratt og þegar við frumsýnum 5. mars eru ellefu eða tólf mánuðir síðan við byrjuðum. Og mér finnst eiginlega bara leikritið sem hún er búin að skrifa hreinlega betra en bókin.“ Gunnar segist afar spenntur að sjá sýninguna, eins og staðan sé núna viti hann lítið um það hvernig loka útkoman verði. „Mig langar ekkert meira en að sjá þetta,“ segir hann. „Ég kíkti aðeins inn um daginn og fékk að sjá leikgervin sem var búið að búa til og búningana sem eru algjör listaverk og skipa svo stórt hlutverk í sýningunni.“ Bók Gunnars Víti í Vestmanna- eyjum var gerð að kvikmynd árið 2018 og Mamma klikk sett á svið í leikhúsi líkt og fram hefur komið. Gunnar þekkir því tilfinninguna sem fylgir því að sjá persónurnar sem hann skapar lifna við. „Það er sturluð upplifun að sjá bók sem maður hefur skrifað og hugsað fyrir öllu lifna við. Maður fer bara út úr líkamanum,“ útskýrir hann. Þegar Mamma klikk var sett á svið fór Gunnar með hlutverk í sýningunni, hann segist hafa átt erfitt með einbeita sér við leikinn, slík hafi aðdáun hans á samleikur- unum verið. „Það kom fyrir á svona helmingi sýninganna að ég stóð á hliðarsvið- inu að bíða eftir að ég ætti að fara Gunnar og Felix kynntust við talsetningar á barnaefni á tíunda áratugn- um, þeir hafa unnið að fjölda verkefna saman. Þekktasta sam- starf þeirra er Stundin okkar. MYND/AÐSEND Það er öllu tjaldað til í upp- færslu Drauma- þjófsins og bæði gervi og búningar spila stórt hlutverk í sýningunni. MYND/AÐSEND inn, en gleymdi mér. Ég var bara að hlusta og horfa og mér fannst leikararnir svo skemmtilegir og mér fannst svo ótrúlegt að þetta væri lifnað við,“ segir hann og ljómar. „Ég var að dást að þeim og svo kom þögn og ég bara: Af hverju er þögn hér? Svo hrökk ég við af því að ég átti að fara inn,“ bætir Gunn- ar við. Í Covid var gert hlé á sýningum á Mömmu klikk líkt og svo mörgum öðrum verkum. Til að geta gert sýn- inguna eins að hléinu loknu var hún tekin upp og þegar Gunnar horfði á upptökuna var hann ekki ánægður með sína frammistöðu. „Mér fannst ég bara ömurlegur. Mér fannst ég svo lélegur í leikritinu af því að ég var ekkert að leika, ég var bara að dást að hinum. Ég lagði mig mikið fram við að bæta mig þegar við komum til baka og þetta var eins og að vera staddur í draumi. Þegar þig dreymir góðan draum og allt er geggjað, þetta var bara þann- ig.“ Gunnar er þv í einstak lega spenntur að geta notið þess að horfa á Draumaþjófinn á sviðinu í Þjóðleikhúsinu og segist hlakka til að upplifa vellíðunartilfinn- inguna sem hann veit að því fylgir. „Þetta er svo stórt og mikið. Þarna eru fjórtán ný lög eftir snillinginn Þorvald Bjarna og söngtextar eftir Björk, Hallgrím og mig og fullt af frábærum leikurum. Stebbi Jóns að leikstýra og Ilmur með leikmynd- ina. Þetta verður algjörlega klikkað og er eins stórt og það gerist,“ segir hann. „Ef við horfum aðeins til baka þá er ekki mikið um nýjar barna- og fjölskyldusýningar af þessari stærðargráðu. Stóru leikhúsin eru dugleg að setja upp klassíkina en það er ekki nóg. Við verðum að gera nýtt íslenskt efni, það eru bara mjög fáir í heiminum sem geta gert nýtt íslenskt efni og það er mikilvægt fyrir okkur sem samfélag og ekki síst fyrir börnin að það sé fjallað um okkur og okkar raunveruleika,“ segir Gunnar. Hann fer mikið í skóla þar sem hann ræðir við börn og unglinga og segir þau áhugasöm um lestur þrátt fyrir að kannanir bendi til annars. „Það eru mjög fáir Íslendingar að skrifa bækur fyrir unglinga, þeir eru auðvitað til en eru mjög fáir,“ segir Gunnar. „Unglingar sem eru með mikinn áhuga á lestri, þeir kannski klára bara allar nýjar bækur í janúar og fara svo að lesa á ensku. Það mætti því kannski alveg huga að því að þýða fleiri bækur,“ segir hann. „Þá lesa börnin á íslensku en það er samt öðruvísi. Það mætti því líka huga að því að staðfæra barna- og unglingabækur. Ég segi bara af hverju ekki? Það skiptir ekki máli hvort þær gerist í Kópavogi eða Karlskrona, það skiptir bara máli að við náum til barnanna.“ Myndir þú vilja láta staðfæra þínar bækur við þýðingu? „Já ég lagði það til þegar Mamma klikk var gefin út í Danmörku, en það var ekki gert. Dönsk börn tengja ekkert við Ísland, þau eiga að fá að lesa um sinn raunveruleika.“ Bella gella krossari Það er margt fleira fram undan hjá Gunnari en frumsýning Drauma- þjófsins. Hann hefur nýlega lokið við nýja bók í Stellu-flokknum sem ber heitið Bella gella krossari. „Það var geggjað að gera þessa bók,“ segir hann. „Ég var í sundi á Hellu og þar er fimmti bekkur í skólasundi. Í sturtuklefanum koma allir strák- arnir, það er alltaf pínu erfitt þegar maður er í sturtunni en í klefanum segja þeir að ég verði að skrifa eina Stellu-bók í viðbót og að hún verði að heita Bella gella krossari,“ útskýr- ir Gunnar en Bella er einn karakt- eranna úr bókunum um Stellu. „Þeir halda áfram og segja að Bella sé komin í mótorkross og þeim fannst það svo geggjað. Þeir áttu allir mótorkrosshjól og tengdu við það. Mér fannst þetta bara góð hug- mynd og er búinn að skrifa bókina,“ segir hann. „Svo fékk ég póst frá einni mömmunni sem spurði hvort þetta væri satt og ég bara já. Ég hélt að þeir væru búnir að gleyma þessu en þetta er geggjað og nú verðum við bara að hafa útgáfupartí á Hellu,“ segir Gunnar að lokum. n FRÉTTABLAÐIÐ HELGIN 2525. FEBRÚAR 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.