Fréttablaðið - 25.02.2023, Síða 57

Fréttablaðið - 25.02.2023, Síða 57
Á tónleikunum í Salnum í Kópavogi komu fram Egill Árni Pálsson, Harpa Ósk Björnsdóttir, Hrönn Þráinsdóttir, Matthildur Anna Gísladóttir, Hanna Dóra Sturludóttir og Unnsteinn Árnason. MYND/JÓN KRISTINN CORTEZ TÓNLIST Ár íslenska einsöngslagsins Lög eftir mismunandi íslenska höfunda Flytjendur: Egill Árni Pálsson, Hanna Dóra Sturludóttir, Harpa Ósk Björnsdóttir, Unnsteinn Árnason, Hrönn Þráinsdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir Salurinn í Kópavogi sunnudaginn 19. febrúar Jónas Sen Bindindishreyfingin IOGT (Interna- tional Organization of Good Templ- ars) var í mínu ungdæmi uppnefnd „Íslenskir ofdrykkjumenn og gamlir tugthúslimir“. Hreyfingin starf- rækti lúðrasveit á sínum tíma, og þar spilaði Karl O. Runólfsson þegar hann var ungur drengur. Starfið hafði djúpstæð áhrif á hann og var hann áhugamaður um lúðrablástur alla tíð. Enda er oft mikið fjör og hnitmiðaður taktur í tónlist hans. Gott dæmi um það mátti heyra á tónleikum í röðinni Ár íslenska einsöngslagsins í Salnum í Kópa- vogi á sunnudaginn. Lagið, sem var upphafslag tónleikanna, var Viltu fá minn vin að sjá, um „sveininn þann sem ég ann, fríðari engan finna má  …“ Hanna Dóra Sturludóttir mezzósópran söng með tilþrifum og flottri raddbeitingu (sem hún gerði líka eftir hlé). Verra var að líf legur píanóleikurinn var heldur sterkur og yfirgnæfði sönginn. Píanóleikur- inn var í höndum Matthildar Önnu Gísladóttur, sem stóð sig annars mjög vel á tónleikunum. Í þessu tiltekna atriði var hann hins vegar fullmikið af því góða. Fyrst væmið – svo betra Eins og á öðrum tónleikum raðar- innar voru fjórir söngvarar og tveir píanóleikarar. Ekki þó allir í einu, nema í aukalaginu, sem var Viki- vaki eftir Valgeir Guðjónsson. Eftir að Hanna Dóra hafði sungið þrjú lög var röðin komin að Agli Árna Pálssyni tenór. Hann f lutti fyrst frekar væmið lag eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson, Ó, lífsins faðir, sem kom ekki sérlega vel út. Hin t vö lög in vor u mik lu skemmtilegri. Annað var Fyrir- látið mér eftir Jón Ásgeirsson og hitt Frændi, þegar fiðla þegir eftir Gunnstein Ólafsson. Bæði lögin hittu beint í mark og Egill söng tignarlega og með sannfærandi til- finningu. Stígandin í túlkuninni var markviss og röddin sérlega glæsileg. Sömu sögu er að segja um lögin eftir hlé, sem voru eftir Sigvalda Kaldalóns og Árna Thor- steinsson. Með minni rödd Harpa Ósk Björnsdóttir sópran var líka góð, en rödd hennar var þó talsvert minni. Máríuvers eftir Pál Ísólfsson – það undurfagra lag – hefði að ósekju mátt vera stærra um sig. Sömu sögu er að segja um Svanasöng á heiði eftir Sigvalda Kaldalóns og Síðasta dansinn eftir Karl O. Runólfsson. Harpa stóð sig talsvert betur eftir hlé í lögum eftir Jórunni Viðar, Hildigunni Rúnars- dóttur og Pál Ísólfsson; sennilega var hún þá komin almennilega í gang. Ákaflega grípandi Fjórði söngvarinn á tónleikunum var Unnsteinn Árnason bassi, sem ég minnist ekki eftir að hafa heyrt í áður. Hann var prýðilegur, með sérlega ómþýða, en líka djúpa og kraftmikla rödd. Hann söng m.a. ljúft lag eftir Oliver Kentish, Heim- þrá, sem og Krumma eftir Tryggva M. Baldvinsson, einnig mjög f lott. Sverrir konungur eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, sem var eftir hlé, var líka ákaflega grípandi. Eins og áður sagði voru tveir píanóleikarar á tónleikunum. Matthildi Önnu hef ég þegar minnst á, en hin var Hrönn Þráins- dóttir, sem spilaði ávallt mjúklega og með næmri tilfinningu. Tónleikarnir voru á óvanalegum tíma, klukkan hálf tvö, sem er snið- ugt skipulag. Fínt er að fara á tón- leika svo snemma á sunnudeginum og eiga svo megnið af deginum eftir að þeim lýkur. Þetta var gaman. n NIÐURSTAÐA: Yfirleitt mjög skemmtilegir tónleikar. Fríðari engan finna má Íris Tanja Fly- genring og Þórunn Lárus- dóttir takast á í verkinu Samdrættir eftir Mike Bartlett. MYND/DÓRA DÚNA LEIKHÚS Samdrættir eftir Mike Bartlett Tjarnarbíó í samvinnu við Silfra Productions Leikstjórn: Þóra Karítas Árnadóttir Leikkonur: Íris Tanja Flygenring og Þórunn Lárusdóttir Þýðing: Kristín Eiríksdóttir Leikmynd og búningar: Sean Mackaoui Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson Sviðshreyfingar: Inga Maren Rúnarsdóttir Tónlist og hljóðmynd: Valgeir Sigurðsson Listræn ráðgjöf: Filippía I. Elísdóttir Sigríður Jónsdóttir Íslenski dugnaðurinn. Eitt af heið- ursmerkjum þjóðarinnar frá örófi alda. Vinna helst allan sólarhring- inn, hvort sem er í launastarfi eða fyrir heimili. En potturinn var, og er, víða brotinn, haldið saman af árhundraða gömlum þykjustuleik og andlegu þroti. Kapítalisminn kollríður nú samfélaginu öllu, bæði nærumhverfinu og vinnustaðnum, og tæknin er varðhundurinn sem gætir þess að þegnarnir hagi sér. Hvað gerist þegar mörk persónulífs- ins og atvinnulífsins verða óskýr? Hverjir græða á dæmalausum dugn- aði þegar öllu er á botninn hvolft? Samdrættir er tilraun enska leik- skáldsins Mike Bartlett til að takast á við þenslumörk kapítalismans, eða mögulegt markaleysi. Íris Tanja Flygenring og Þórunn Lárusdóttir leika tvo starfskrafta fyrirtækis sem virðist hafa lítinn annan til- gang heldur en að láta sölutölurnar hækka, leikstjóri er Þóra Karítas Árnadóttir. Sýningartími er knapp- ur en fjölbreytnin er svo sannarlega ríkjandi í Tjarnarbíó þessa dagana. Sem dæmi er hægt að sjá tvo ólíka tvíleiki í húsinu, Samdrætti og Venus í feldi, sem eiga þó sameigin- legt að etja persónunum saman á vinnustað sínum og nota leiksvið hússins á óhefðbundinn máta. Dæmisögur frekar en drama Að Samdráttum, sem á uppruna sinn í útvarpi, og höfundi þess. Á síðastliðnum árum hefur höfundar- verk Bartlett vakið aðdáun í heima- landinu og er hann naskur á að finna samtímaátök til að nota sem grunnstef í leikritum sínum. Höf- undur tekur aðstæður eða ástand í samfélaginu, kyndir undir þeim og ýkir upp í mögulegum niður- stöðum. Vandamálið er að leikrit hans eru dæmisögur frekar en drama um manneskjur af holdi og blóði. Samdrættir er engin undantekn- ing. Stefna leikritanna virðist alltaf sú sama, persónur breytast lítið og átökin verða að lokum ótrúverðug. Hann nær aldrei hugmyndafræði- legri dýpt eða tekst að búa til per- sónur líkt og sumir framtíðarspá- menn í leikhúsinu eins og meistari Caryl Churchill. Ekki er hægt að lasta þýðingu Kristínar Eiríksdóttur sem leysir verkefnið lipurlega. Sterkur leikur Íris Tanja leikur Emmu, unga konu á framabraut, sem berst í bökkum við að feta sig upp fyrirtækjastigveldið. Á móti henni situr nafnlaus stjórn- andi með óljóst verksvið, leikin af Þórunni. Í röð stuttra atriða, þar sem Emma er yfirleitt kölluð inn á skrifstofu stjórnandans, takast þær á um ábyrgð, regluverk og persónu- legan harmleik. Íris Tanja kemur hlutverkinu ágætlega til skila, þá sérstaklega í seinni hluta sýningar- innar þegar Emma örvinglast. En erfitt er að skilja af hverju Emma ríg- heldur í starfið og lætur valta svona yfir sig, það er handritsins. Þórunn finnur margskonar blæ- brigði í annars flatri persónu, konu sem er algjörlega óþekkt stærð. Hún heggur með brosi, segir aldr- ei allan sannleikann og spígsporar um skrifstofuna, ráðandi í ríki sínu. Virkilega sterkur leikur, sem er ekki auðvelt þegar efniviðurinn er rýr. Fyrirtæki eru ekki fólk Í annað sinn á stuttum tíma er áhorfendum boðið að sitja á sviðinu í Tjarnarbíó frekar en út í sal. Í þetta skiptið er setið á hvítum skrifborðs- stólum fyrir miðju sviðsins og leik- urinn er allt um lykjandi. Lausnir Þóru Karítasar og Sean Mackaoui er hugvitsamlegar og spenna upp framvinduna, áhorfendur eru alltaf á iði, óvissir í hvern fótinn á að stíga. Búningar Sean eru sömuleiðis vel Markaleysi málsvara kapítalismans heppnaðir, strigaskór mæta pinna- hælum. Dragtin sigrar stutterma- skyrtuna. Tónlist og hljóðmynd Val- geirs Sigurðssonar kraumar undir og undirstrikar vaxandi spennu vel. Aftur á móti eru dansuppbrotin hjá- kátleg og passa illa inn í sýninguna. Lagabreytingar síðastliðinna ára umbreyttu fyrirtækjaumhverfinu. Í sumum löndum eru hlutafélög með sömu réttindi og manneskjur, algjörlega aftengd stjórnendum eða eigendum. En fyrirtæki eru ekki fólk, kapítalismi er ekki lífræn vera, manneskjur bera ábyrgð. Nafnlausi stjórnandinn hér er aldrei mann- gerð, þó að molni aðeins undan henni, og Emma virðist hjálparlaus gegn aðdráttaraflinu. Málefni Sam- drátta eru áríðandi og mikilvæg en undir lokin eru áhorfendur komnir á upphafsreit. n NIÐURSTAÐA: Dæmisaga byggð á áhugaverðum grunni en hefur lítið nýtt að segja. Í sumum löndum eru hlutafélög með sömu réttindi og mann- eskjur, algjörlega aftengd stjórnendum eða eigendum. En fyrir- tæki eru ekki fólk. FRÉTTABLAÐIÐ MENNING 3725. FEBRÚAR 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.