Fréttablaðið - 25.02.2023, Page 58

Fréttablaðið - 25.02.2023, Page 58
Ég er alltaf að sjá einhver skordýr eða dýr sem ég hef aldrei heyrt um eða séð áður Ásdís Nína hefur síðustu sjö mánuði starfað sem sérfræð- ingur hjá UNDP í Simbabve. Hún vinnur að loftslagsmál- um í borginni Harare. Hún segir nánast allt öðruvísi en á Íslandi en segir aðlögunina þó hafa verið furðulega auðvelda. lovisaa@frettabladid.is Ásdís Nína Magnúsdóttir hefur frá því síðasta sumar starfað fyrir Þró- unaráætlun Sameinuðu Þjóðanna í Harare í Simbabve. Hún sinnir þar starfi sérfræðings á sviði lofts- lagsmála en staðan er svokölluð ungliðastaða á vegum Sameinuðu þjóðanna en stöðurnar sem standa Íslendingum til boða byggja á því alþjóðlega samstarfi sem íslenska ríkið á í. „Ég f lutti út og hef störf í ágúst og hef verið hér síðan þá. Ég sinni stöðu sérfræðings og vinn mest að loftslagsverkefnum sem eru starf- rækt hér en það verkefni sem ég vinn mest að og leiði heitir Climate Promise 2. Verkefnið er rekið af UNDP og er starfrækt í 120 löndum. Tilgangur þess er að veita ríkjum aðstoð við að uppfylla aðgerðir sem þau hafa sett sér í aðgerðaáætlun gagnvart Parísarsáttmálanum,“ segir Ásdís Nína og útskýrir að öll ríki sem hafi skuldbundið sig að sáttmálanum þurfi að gera slíka aðgerðaáætlun. Margir enn ekki með rafmagn „Það eru mörg lönd sem hafa ekki tæknilega þekkingu eða fjármagn til að geta uppfyllt aðgerðirnar ein síns liðs og þar kemur Climate Promise inn,“ segir hún og að stofn- unin vinni náið með stjórnvöldum að því að innleiða aðgerðirnar. „Við gerum ekkert án þess að það sé samstarf og gert í samvinnu við stjórnvöld,“ segir Ásdís en hún segir að fyrri reynsla hennar hjá Umhverf- isstofnun, í stjórnsýslu, nýtist henni mjög vel í þessu verkefni auk þess sem hún hafi sinnt svipuðu verkefni þar og því sé hún að vinna með sömu hugtök að einhverju leyti. „En áhrif loftslagsvárinnar eru mjög ólík hér auk þess sem aðgerð- irnar sem stjórnvöld hafa valið sér eru mjög ólíkar. Á Íslandi er áhersla á orkuskiptin og að klára þau en hér hefur stór fjöldi ekki aðgengi að raf- magni,“ segir hún og að um 25 til 50 prósent þjóðarinnar hafi aðgang að rafmagni. „Inn í þessum tölum er líka fólk sem hefur aðeins aðgang að raf- magni hluta dags, kannski bara einu sinni í viku eða nokkrar klukkustundir á dag,“ segir hún og að fókus þeirra í verkefninu sé að koma endurnýjanlegri orku til fólks. „Að þau byrji ekki á jarðefnaelds- neyti, heldur á sól-, vind- eða vatns- orku,“ segir hún og að það séu rík tækifæri til þess í landinu. Langir dagar en góðir Vinnudagarnir í Simbabve eru níu klukkustundir. Ásdís er mætt til vinnu um átta og búin um fimm. „Þegar ég kem heim reyni ég að hreyfa mig og elda kvöldmat en um helgar reyni ég að gera eitthvað skemmtilegt. Við höfum vanið komu okkar á bændamarkað um helgar. Það eru svo mikil fríðindi að fá ávexti og grænmeti sem er ræktað hér. Þetta eru bestu bananar í heimi og vatnsmelónurnar eru ótrúlegar,“ segir hún en kærastinn hennar kom með henni út. Ásdís hefur búið í sex löndum og segir að aldrei hafi henni gengið eins vel að eignast vini en stór hluti þeirra er fólk sem einnig er í landinu í sama tilgangi, til að vinna og er án fjölskyldu. Kemur rafmagni til fólks í Í störukeppni við gírafa. Með nemendum í loftslagsvænum landbúnaði. MYNDIR/AÐSENDAR Ásdís fer hverja helgi á bændamarkað og nær sér í ferska ávexti og grænmeti. Ásdís í siglingu á Zambesi-ánni. „Við höfum reynt að ferðast og ég hef fengið að gera það sem hluta af vinnunni. Það er það langskemmti- legasta, þegar ég fer í vettvangs- ferðir að hitta fólkið sem við erum að vinna verkefnin með. Að hitta fólkið er skemmtilegasti parturinn við starfið.“ Hún segir að eitt af því sem hún hafi haft gaman af að kynnast sé mikill líffræðilegur fjölbreytileiki. „Ég er alltaf að sjá einhver skordýr eða dýr sem ég hef aldrei heyrt um eða séð áður. Ég stoppa stundum úti á götu og samstarfsfólk mitt skilur ekkert hvað ég að gera. Þá er ég bara að skoða einhverja magnaða bjöllu,“ segir hún og hlær. Hvetur fólk til að sækja um JPO Hvað varðar matinn segir hún jarð- hnetur algengar og einskonar graut úr maísmjöli sem fólk notar sem meðlæti með nærri öllum mat. „Það kallast sadza og þau elska það. Það er eiginlega meginuppi- staðan í mataræðinu,“ segir hún en það er búið til úr maísmjöli og vatni. „Þetta er svo notað með til að borða annan mat en pottréttir og kássur eru algengar.“ Hún segir að það hafi verið ágætis aðlögun að flytja en að sem starfsmaður SÞ hafi verið hugsað vel um hana. Hún hvetur fólk sem vill vinna innan kerfis Sameinuðu þjóðanna til að sækja um JPO-stöðu en um er að ræða góða leið til að koma sér inn í kerfið. n Nánar á frettabladid.is Simbabve 38 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 25. FEBRÚAR 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.