Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Side 21

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Side 21
19 aðeins sumarbúskapur, sem ég áformaði, fyrst í stað. „Þú þolir þetta ekki, maður á þínum aldri“, „ertu orðinn vitlaus, maður, að sleppa starfsaðstöðu, til þess að leggja í slíkt ævintýri“, „mest er ég hissa á, að nenna þessu“, og fleira slíkt kvað við í eyrum, en ég svaraði fáu og lét mér nægja, að brosa út í annað munn- vikið. Ég vissi nefnilega meira en þeir. Ég hafði nefnilega „eignast hálft konungsríki" fyrir tíu þúsund krónur, en sú saga var þar að baki, að maður sem vissi sínu viti, og gert hafði uppdrátt af landareigninni, hafði sagt við mig, er hann lét mér í té uppdrátt af henni, — „eiginlega er þetta nú hálft konungsríki“ — og það hafði ég eignast fyrir tíu þúsund krónur. Og þessi orð urðu mér minnisstæð og yljuðu, en ekki var hann á sama máli hreppsnefnd- armaðurinn, sem sagði, er hann heyrði um kaupin, að ég „hlyti að vera brjálaður, að kaupa „Holtin“ þessu verði“. En það getur nú verið svona og svona með konungsríki, Gráni minn, fyrr og síðar. Skrykkjótt mun oft ganga og margt í rústum í sumum, fyrr og síðar, og eins á eyðijörðum, sem að minnsta kosti einn maður hafði talað um við mig með virðingu og aðdáun í röddinni sem konungsríki — hálft konungsríki, ætlaði ég að segja — af þeirri sannfæringu, að þar mætti stórvirki vinna, þótt slíkt yrði ekki mitt hlutskifti, en vissulega var ég bjartsýnn, °g byggðist bjartsýnin þó nær einvörðungu á þeim innri styrk, sem það veitti, að láta til skarar skriða, og leitast við að vera trúr æskuhugsjónum sínum, og komast þannig í sátt við sjálfan mig og tilveruna. f græna haga Minnisstæðust er mér jafnan morgunstundin í Tungu, er halda skyldi til hinna nýju heimkynna. Það var á vordegi og bjart veður, þó eigi alheiðskýrt. Vanastur hafðirðu verið því, er þú varst leidd- ur úr húsi að morgni, að þú værir beizlaður og aktýgi á þig lögð, en ég lagði aðeins múl við þig, og þú kunnir því vel, og varst léttur í spori og skimaðir títt til beggja hliða, er ég teymdi þig fáförnustu götur í grend við Rauðará að sjónum, og alla leið vestur á uppfyllingu. Kul var á norðan og sjórinn gáraður á ytri höfninni. Mörg skip lágu í höfninni og hópar verkamanna lögðu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.