Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 27

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 27
25 því góða, sem jarðneskt líf hefir að oss rétt, og vekur minningar, margs konar minningar, bros á barns vörum, lóukvak á vori, hnegg í haga, leitandi vinar eða fagnandi og ótal aðrar, sem koma eins og ósýnilegar loftbylgjur og hræra strengi sálarinnar, og eru uppbót fyrir aðrar, sem voru þungar sem gnauð hafsins eða kald- ur hríðarsúgur á Þorra. Minnzt góðra og glaðra liðinna daga Á kyrrum stundum ævinnar, hafa vaknað á ný minningar frá þessum liðnu dögum, sem urðu tilefni umhugsana um það, hve gott það er, að hafa átt þær stundir, að hafa unað við lítinn heim en fagran, fyrst í bernsku og svo síðar, á miðri ævi á stuttu skeiði. Ég minnist þá hinna mörgu góðu stunda í litla eldhúsinu í kjallara gamla hússins í Þverholtum með kolakynntu eldavélinni. Glugg- arnir vissu gegn suðri og gluggakisturnar aðeins handarlengd ofar túninu, og oft opinn á sumrin sá glugginn, sem hægt var að opna, og þá ekki ótítt Gráni minn, að þú kæmir í heimsókn, í von um, að þér yrði hyglað einhverju matarkynns, og urðu konur þá að hafa snör handtök oftlega, því að þér var ekki gefin biðlund, og áttir það til að teygja höfuð og háls inn yfir borðið, loka glugganum í snarheitum, og færa þér út á tún gamla þvottafatið, sem safnað var í matarúrgangi handa þér. En undir niðri þótti okkur öllum gaman að þessum heimsóknum þínum, en tækifærin til þeirra gáfust þér, er þú varst í notkun á túni um sláttinn Og í þetta litla eldhús komu margir og þar var mikið rabbað og oft glatt á hjalla. „Ja, nú er hlegið í Þverholtum", sagði Ingi á bakka einu sinni. 1 þessari eldhúskytru varð það mér eitt sinn umhugsunarefni, er ég sat þar og horfði á börnin teiga volga mjólkina, úr könnum sínum, er ég sjálfur var barn í sveit, og hafði vakað yfir túninu og kannan mín fleytifull af ærmjólk beið mín, og hugur minn varð gagntekinn sömu tilfinningum og þá, gagntekinn gleði yfir góðum kynnum við menn og málleysingja, yfir að vera þar sem ég var, í heimi sem var lítill en fagur, gagn- tekinn trausti, og gleði yfir lífinu, með tilhlökkun í brjósti til næstu stundar, til næsta dags. Og enn kom það fram í hugann, á valdi minninganna, að þetta hugarfar mitt. þá kunni að hafa
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.