Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Side 31

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Side 31
29 holtum og haga, yfir tjörninni og stekknum og bænum, og svo vítt sem sæi til fjalla og jökla í austri og vestri. Um kvöldið yrð- irðu enn í tjóðri undir miðnæturbilið og skafa döggvott grasið af hverjum þúfnakollinum af öðrum, óþjáður af öllu og allra síst af lystarleysi, enda sílspikaður jafnan. Mjólkurbíllinn var aðeins ókominn, er vestur yfir ána kom. Ég átti þarna nokkra kolapoka, sem mjólkurbílstjórinn hafði kom- ið með kvöldinu áður. Ég spretti frá svo að þú gætir kroppað þarna smástund og fór að koma pokunum fyrir á kerrunni. Þegar bíllinn var kominn stigu tveir eða þrír farþegar út, en í stýrishús- inu var rúm fyrir 4—5 farþega, en brúsar og annar flutningur á palli aftan þess. Var þetta í upphafi „jeppa-aldar“ og engir komnir á þessar slóðir. Farþegunum varð starsýnt á þig, og einn þeirra, aldraður síð- skeggur, púaði í rauða skeggið sitt og tautaði: „Hver á þennan hest?“ „O, það er nú ég,“ svaraði ég og færði mig nær. Hann hafði víst ekki komið auga á mig. „Ha? Þú? Og hvar fékkstu klárinn?“ „Ég keypti hann fyrir sunnan“. „Já, aldeilis. Stríðalinn, sterklegur, duglegur að draga?“ „Það geturðu bókað,“ sagði ég upp á reykvísku, drjúgur yfir hesteigninni. „Já, ekki að tvíla, ekki að tvíla, — og líklega skap í fantinum“. Hann hálf hreytti þessu úr sér, eins og honum þætti til heyra, að láta fantsorðið fylgja lofinu, og var mér skemmt. Bílstjórinn, sem hafði fengið mætur á þér, Gráni minn, er við fluttum þig úr Nesinu vestur að vaðinu, hjálpaði mér, að setja þig fyrir kerruna. Einhver farþeganna hafði á orði, að kerran væri nær fullhlaðin, og hesturinn drægi þetta ekki nema á sléttum vegi, við horfðum kankvíslega hvor á annan, ég og bílstjórinn, en höfðum engin orð um. Þeir þekktu þig ekki hinir, Gráni minn. Ég vissi, að ég mundi ekki ofbjóða kröftum þínum, en var við búinn að kippa af pokum, er að haftinu kom, ef þyrfti. Og sterkleg voru átök þín, bæði í ánni og upp dálítinn bratta hinum megin, og furðu léttstígur varstu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.