Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 34

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 34
32 „Engin hætta“, sagði Ingi glaðklakkalega. „Ég sé, að aktygin eru komin á þann gráa“, og beindi nú orðum sínum til mín. „Ég lét strákinn fara með mjólkurbrúsana vestur yfir ána. Hann ætti að vera kominn af stað í veginn með Brún gamla og kerruna. Smástund var rætt um daginn og veginn, pest og niðurskurð og fjárskipti, og svo af stað haldið, og komu hinir um leið og við. Og svo var tekið til við að stinga fyrir, kasta úr og hlaða kant, og sóttist verkið vel. Vagnhestarnir voru að kroppa við mel- jaðarinn, og börnin sátu á þúfnakollum og horfðu á, eilítið von- svikin yfir, að ekki var farið að bera ofan í fyrr en að kaffitíma loknum, því að ætlunin var að bera ofan í eftir því sem hægt var, svo að minna væðist upp. Loft var skýjað, en úrkomulaust, og hið bezta vinnuveður. Man ég vel hve mig verkjaði í bakið, vinnan var fullstrembin fyrir minn pappírsbúk, enda ekki farinn að þjálfast eftir vetrarkyrrsetuna, en glaður var ég, gamli vinur, glaður yfir að vera í þessum hópi, og þarna sem ég var, og mest af því, að þetta verk var hafið, og ég var bjartsýnn. Og því skyldi ég ekki vera bjartsýnn? Hafði ekki draumur bernskuáranna ræzt? Hafði ég ekki eignast jörð, og hest, hvítan hest, sem var með mér í striti dagsins og létti það, — var það ekki minn bær, sem blasti við þarna á melnum? Og þótt ég væri farinn að reskjast var ég líkamlega hraustur. Ýms vonbrigði liðinna daga voru gleymd á þessum stundum, um hið liðna skipti engu, fannst mér, það var framtíðin, sem skipti máli. Var ég ekki að leggja veg, heim að bænum mínum, um mitt land, heim að bænum, sem ég vissi, að ég gæti unað ólifða daga, ef giftan fylgdi? Og þú, minn hvíti hestur, varst meira en vinur og starfsfélagi, þú varst tákn drauma minna, en þá óraði mig heldur ekki fyrir því, sem ég síðar varð að þola. Einhver hafði orð á, er við drukkum kaffið, að nú hyllti þó undir, að „kerrufært yrði, alténd í þurrki“. Og bætti svo við: „Allt af verður nú áin farartálmi á stundum". „Ekki er lækurinn betri, hann getur orðið verri, þegar hann bólgnar upp. Verst er hvað þessar krónur hrökkva skammt. Það vinnst, að gera þetta slarkfært, en það þarf skurði og mikinn of- aníburð, annars veðst allt upp undir eins og bleytir", sagði Ingi. Og Ingi reyndist sannspár um þetta, en allar götur varð því
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.