Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 70

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 70
68 Hún var farin. Guglielmo stóð þarna einn, lostinn skelfingu, yfir því sem hann hafði hugsað og sagt. Honum fannst allt ljóst nú, það var eins og hrópað væri í eyru hans: „Skilurðu ekki?“ Nei, hann hafði ekki skilið neitt. Hann hafði látið móður sína leiða sig. 1 blindni hafði hún leitt hann út á brún, þar sem var hyldýpi fyrir neðan. Nú var hann ekki í vafa lengur um allt, sem gerst hafði. Nú sá hann allt í sínu rétta Ijósi. Hversu oft bar það ekki við, er hann gekk á fund önnu, að það var sem andlit henn- ar ljómaði, er hún sá, að það var hann, sem kominn var. Þegar heimsóknir hans fóru að strjálast var hún döpur. Og svo veiktist hún. Og svo liðu öll þessi ár, og hún leitaði ekki hamingju í faðmi neins annars ... en því hafði hún aldrei sagt neitt? Fannst henni, að hún lítillækkaði sig með því? Eða var hún smeyk um, að hann mundi vísa henni á bug? Nei, hún hafði miskilið hann, eins og hann hafði misskilið hana. Og nú? Þessi óvænta opinberun! Anna hafði skipt litum, hönd hennar titrað ... Hún elskaði hann enn. „Nei,“ sagði hann svo við sjálfan sig, „það getur ekki verið“. — En hjartað sló ákaft í brjósti hans — hún elskaði hann, hún elskaði hann. En hann nam skyndilega staðar á þessum hugsanaferli og það var sem sál hans andvarpaði nístingssáran ... á þessari stundu var bam að fæðast, í húsi hans, hold af hans holdi og bein af hans beinum, barn hans, og líf þess var framhald lífs hans á jörð- unni. En hann sat þarna og hugsaði um sína glötuðu gæfu, þegar mikil hamingja loks barst honum — honum yrði í dag sonur fædd- ur. Og þó gat hann ekki hrundið frá sér hugsununum um önnu. Það var allt svo óljóst, en einhvern veginn fannst honum, að hamingjan, sem hann hafði farið á mis við og hin nýja, mikla hamingja, hlytu að sameinast, og fullkomnast, og upphefja hvor aðra ... „Guglielmo!“ Læknirinn stóð fyrir framan hann fölur og fár. Guglielmo spratt á fætur og spurði: „Hvað er — er nokkuð að?“ „Já,“ sagði læknirinn alvörugefinn. „Hún er í mikilli hættu. — Það skeður svo margt óvænt stundum. Ég hefi enn von — en ég
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.