Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 73

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 73
71 Leið eigi á löngu, þar sem hann var iðjusamur mjög og vel- gengni hans hélst og vinsældir, að hann safnaði miklum auði. Keypti hann sér höll og tók sér virðulegt nafn: Maestro Basilio da Milano. Skömmu síðar veittist honum sú ánægja að verða þess var, að ýmsar konur í Pisa af göfugum og góðum ættum litu til hans þeim augum, að hann þurfti ekki að draga í efa, að þær mundu síður en svo ótilleiðanlegar að giftast honum. Og margar voru þær hinar ungu og fögru meyjar, sem hann fékk tækifæri til að virða fyrir sér mæta vel. Úr miklum skara var að velja og fór svo að lokum, að hann hneigði hug til stúlku nokkurrar, sem hafði misst föður sinn og móður. Stúlka þessi var ekki auðug, en ágætlega ættuð. Hún færði honum því ekki neinn auð, en átti þó húsið, sem hún bjó í. Fór hið besta á með þeim og ól hún hon- um nokkur böm. Liðu árin hvert af öðru, efni þeirra jukust jafnt og þétt, og var sambúð þeirra hin bezta. Þau áttu þrjá sonu og eina dóttur. Giftist dóttirin, er hún hafði aldur til, og einn son- anna kvongaðist, og var hvort tveggja hjónabandið farsælt. Yngsti pilturinn var mjög bókhneigður, en um þann þriðja er það að segja, að hann var þrákálfur hinn mesti og talinn heimskur. Hafði hann hina mestu óbeit á hverskonar námsiðkunum og sýndi yfir- leitt ekki í neinu áhuga fyrir að vilja menntast og mannast. Hann var geðillur, oft viðutan og varð engu tauti við hann komið. Tæki hann eitthvað í sig var ógerlegt að fá hann ofan af þvl, hversu fráleitt sem það var. Læknirinn var að lokum til neyddur að losna við pilt þenna, þar sem hann gat ekki með neinu móti breytt honum til batnaðar, og afréð loks að senda hann upp í sveit, en læknirinn hafði er hér var komið sögu, eignast nokkur sveitarsetur. Var það eitt hans mesta ánægjuefni, er hann var þreyttur á erli og hávaða borgarlífsins, að skreppa upp í sveit og dveljast þar á einhverju setri sínu, sér til hressingar og hvíldar. En um það bil tíu árum frá því er hann kom strákbjálfanum, syni sínum, er Lazzaro nefndist, upp í sveit, sem að framan greinir, gaus upp sótt í Pisa og hrundi fólkið niður. Fengu menn mikla hitasótt og er hitinn fór að réna seig á menn mók, sem fæstir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.