Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 99

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 99
97 valdi stóð, til þess að vinna að því, að föðurland hans næðist úr óvinahöndum, og var náinn félagsskapur með honum og hertogan- um Francesco Sforza, og fór hann oft til Trento og hélt stöðugt áfram tilraunum sínum og ráðabruggi til þess að fá hertogann til þess að hverfa aftur til Milano. En þrátt fyrir þetta gleymdi hann aldrei konu sinni, sem hann unni hugástum. Hann hugsaði um hana hverja stund, og það lagðist miklu þyngra á hann, að geta ekki verið með henni eða séð hið fagra andlit hennar, en að vera meinað að vera í Milano. Camilla þessi, sem Cornelio unni svo heitt, var mjög ung kona. Hún var aðeins tuttugu og eins árs og bar hún af öllum hinum fögru konum í Milano að fegurð. Nú var það svo, að henni geðj- aðist eigi síður að Cornelio, en honum að henni, en eigi höfðu þessar hneigðir þeirra haft neinar alvarlegar afleiðingar. En hann hafði elskað hana lengi og af heilum, einlægum huga, og um til- finningar hennar í hans garð var svipað að segja, enda hryggði það hana meira en orð fá lýst, er hann varð að hverfa á brott, og saknaði hún hans sárt. Þau höfðu enn eigi getað rætt saman að neinu ráði og tjáð hvort öðru ást sína munnlega, en þau höfðu skrifazt á, og var það ekill konunnar, sem bar bréfin milli þeirra. Gerði hann þetta af fúsum vilja. Hann hafði verið ekill móður hennar og hafði hinar mestu mætur á Camillu. Var nú svo komið, ef Cornelio hefði eigi horfið á braut, að þau, ef tækifæri hefði gefizt, hefðu getað fullnægt innstu þrám sínum. En nú bar svo við, er Cornelio bjó í Mantua, ekki sem snauður útlagi, heldur frekar sem auðugur, aðalsmaður, virtur af öllum, að kona af aðalsætt þar í borg varð ástfangin af honum svo mjög, að hún greip til þess ráðs að skrifa honum og tjá honum hrein- skilnislega frá hinni miklu ást, sem hún bar í brjósti til hans. Sendi hún þernu sína, þá er hún bezt treysti, með bréfið, en Cornelio ávarpaði þernuna sem hér segir: „Kona góð, segið húsmóður yðar, að ég sé henni mjög skuld- bundinn fyrir að hafa látið svo í Ijós, hvern hug hún ber til mín, þar sem mér er ljóst, að hún ann mér langt um fram verðleika mína. Veldur það mér miklum sársauka, að ég get eigi endurgold- ið henni ást hennar, þar eð ég hefi heitið annarri konu tryggðum, og þar sem ég er svo bundinn, get ég eigi frjáls talizt. En í sann- 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.