Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Blaðsíða 106
104
honum, að taka engan þjóna sinna með sér til Milano, heldur
skilja þá eftir í Mantua, en fá heldur í för með sér þjóna, sem
reyndir voru að áreiðanleik og aldrei höfðu til Milano komið. Réði
hann því þrjá þjóna til fararinnar og undirbjó nú hana að öðru
leyti.
Þegar að kveldi þessa sama dags lagði hann af stað svo lítið
bar á og fór hann þær leiðir sem hann hafði ráðgert, og gekk
ferðin að óskum og kom hann til Milano á þriðju stundu nætur,
eins og hann hafði sagt við Delio, og fór hann þegar til húss
Ambrogio, reynds og góðs vinar.
Hann bað einn af þjónum sínum að berja að dyrum og biðja
Ambrogio að koma niður þegar, þar sem heiðursmaður nokkur
væri kominn langt að og vildi hafa tal af honum.
Því næst blístraði Cornelio á þann hátt, að Ambrogio, er hann
vaknaði við, vissi þegar hver kominn var. Klæddi hann sig í skyndi
og fór niður og opnaði húsið.
,,Hver er þar?“ spurði hann í varúðar skyni.
Cornelio gaf þá Ambrogio merki, án þess að svara, til sönnun-
ar því hver hann var, og þegar Ambrogio hafði á tvennan hátt
sannfærst um, að það var Cornelio, sem kominn var, skipaði hann
svo fyrir, að blysin, sem þjónar hans höfðu borið út á tröpp-
urnar, skyldu borin inn aftur, og að svo búnu fagnaði hann vini
sinum innilega.
Hann leiddi hann inn í herbergi á neðstu hæð hússins og lét
engan vita hver kominn var, nema einn þjóna sinna, sem hann
treysti sem sjálfum sér.
Þetta var í febrúarmáuði og dögum saman hafði hvorki rignt
né snjóað og hafði færð því ekki spillzt, en ryk var mikið á vegum
öllum. Kom Cornelio því allur rykugur til húss vinar síns og lítt
þekkjanlegur, en ferðin hafði gengið vel.
Þegar morgnaði sendi Cornelio eftir klæðskera nokkrum, sem
hann stundum hafði beðið fyrir bréf til Camillu. Manni þessum
var vel til Cornelio og var fegnari en frá verði sagt að hitta hann
aftur og ræddust þeir við góða stund. Cornelio gaf því næst klæð-
skeranum bréfið og bað hann um að koma því til Camillu.
Þegar Camilla fékk bréfið varð hún hvorttveggja í senn glöð
og hrygg yfir komu elskhuga síns til Milano. Hún var glöð vegna