Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 123

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1980, Page 123
IN MEMORIAM Jóhanna G. Smith F. 15. 2. 1922 - D. 10. 8. 1955 Hinn 10. þ. m. lézt í Landakotsspítala að afstöðnum löngu og hörðu sjúkdómsstríði Jóhanna Guðmundsdóttir Smith, eiginkona Thorolfs Smith blaðamanns. Jóhanna var fædd að Litlu-Brekku í Borgarhreppi á Mýrum 15. dag febrúarmánaðar 1922, dóttir Guðmundar bónda Þorvaldssonar og konu hans, Guðfríðar Jóhannesdóttur fyrrum ljósmóður, frá Gufá í sömu sveit. Ólst Jóhanna upp hjá foreldrum sínum í stórum og mannvænlegum systkinahópi. Hún var af traustum, gömlum og góðum stofni, því að ættir hennar má rekja til hinna fornu Mýramanna, og kom snemma í ljós, að hún hafði „hvíti ok yfir- bragð“ þess kyns, svo sem sagt var um Helgu hina fögru, og í hennar heimahögum sleit hún barnsskónum, þótt aldir skildu milli. Þegar í bernsku einkenndi Jóhönnu — Hönnu, eins og hún jafn- an var nefnd af ættingjum og vinum, — látleysi og hógværð sam- fara fegurð sem ber göfugu hugarfari vitni, en eðallyndi hennar og bliða geislaði jafnan frá henni, alla hina sorglega skömmu ævi hennar, jafnt á gleðinnar sem sorgarinnar og þjáningarinnar stund- um. Jóhönnu heitinni lék snemma hugur á að menntast, og þeim er þekktu hana bezt mun ekki hafa komið á óvænt, er hún að loknu stúdentsprófi 1945, valdi sér læknisfræðina til náms, því að löngun til að græða og líkna var henni í blóð borin. Er Jóhanna var við nám í Noregi nokkurn tíma kynntist hún eftirlifandi manni sínum og hneigðu þau þegar hugi saman. Þau voru gefin saman í hjóna-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.