Veiðimaðurinn - 01.12.1959, Blaðsíða 11
SVFR
VEIÐIMAÐURINN
DES.
MÁLGAGN STANGAVE7ÐIMANNA Á ÍSLANDI 1959
Ritstjóri: Víglundu: Möller, Útgefandi: Stangaveiðifélag Reykjavikur
Ægissiðu 92, Reykjavík. Afgreiðsla Bergstaðastrœti 12B, Reykjavik.
Simi 13755. Prentað i Ingólfsprenti.
Tk tfftiAmótuin.
ÞÓTT talan 50 þyki merkileg, þegar
menn hafa lokið þeim áfanga í árum,
mun það tœplega þykja efni til frásagn-
ar eða afmœlisskrifa, að 50 hefti eru kom-
in út af fálesnu tímariti eins og Veiði-
manninum. En þar sem svo vill til, að
þetta hefti er jafnframt hið siðasta i 20
ára œviáfanga ritsins, og með þvi ncesta
hefst þriðji áratugurinn i lifi þess, teljum
við, sern að þvi stöndum, rétt að minna
lesendurna á þessi tímamót.
Verksvið Veiðimannsins var skýrt
markað, þegar i upphafi. Hann skyldi
vera málgagn islenzkra stangaveiði-
manna. Ýmsir hafa skilið þetta á þann
veg, að efni hans ælti eingöngu að fjalla
um stangaveiði og það sem að henni lýt-
ur. Og þeim skilningi hefur ncer undan-
tekningarlaust verið fylgt við efnisvalið.
Af þvi leiðir vitanlega, að ritið er mjög
litið keypt af öðrum en þeim, sem ein-
hvern áhuga hafa fyrir stangaveiði. Öfl-
un efnis er og miklum mun erfiðari en
hjá ritum þar sem fjölbreytni er meiri.
Þeirri hugmynd hefur oft verið varpað
fram, að taka upp þætti um aðrar grein-
ar sportveiði, til þess að auka fjölbreytni
ritsins og fjölga kaupendum. Vœri fróð-
legt að fá álit lesenda og tillögur um
þetta atriði. Það er mjög œskilegt að les-
endur tímarita sendi ritstjórnunum á-
bendingar og tillögur um efnisval. Þann-
ig koma oft fram góðar og gagnlegar hug-
myndir. Einhvern tíma var á það bent
i bréfi, að of lítið vœri í ritinu af frœði-
legum greinum um lif vatnafiska. Annair
vildi hafa meira en verið hefur af
bundnu máli, einkum stökum, og benti
á, að hjá eins hagyrtri þjóð og íslending-
um hlytu oft að verða til snjallar visur
við árnar. Þetta er eflaust rétt, en furðu
fáar þeirra berast þó Veiðimanninum.
Veioimaðurinn
1