Fréttablaðið - 04.03.2023, Síða 4

Fréttablaðið - 04.03.2023, Síða 4
Það verður erfitt að vinna þetta fylgisfall til baka. Eiríkur Bergmann, stjórnmála- fræðingur Við fáum þrjá mánuði í röð sömu stóru heild- armyndina. Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmála- fræðingur 3 hnúfu- bakar hafa haldið til í Hafnarfjarðarhöfn að undanförnu. 20 sentimetra rifa kom á laxeldiskví með 115 þúsund seiðum í Ísafjarðardjúpi. 15 prósenta útborg- un í íbúð gæti gufað upp á einu ári vegna verðbólgu og lækkandi íbúðaverðs. 10,2 prósenta verð- bólga mælist nú á Íslandi. 34 ár eru síðan sala á áfengum bjór var leyfð hér- lendis. Þrjú í fréttum | tölur vikunnar | Haraldur Þorleifsson stofnandi Ueno var meðal þeirra sem var sagt upp störfum hjá Twitter um liðna helgi. Hátt í tvö hundruð misstu vinnuna, þar á meðal háttsettir starfsmenn á borð við Harald sem seldi Ueno til Twitter á árinu 2021. Hann hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan sem yfirhönn- uður. Kvaðst Haraldur ekki sjá eftir neinu í færslu á Twitter eftir tíðindin. Helgi Pétursson formaður Landssambands eldri borgara segir Gráa herinn ætla að leita til Mannréttinda- dómstóls Evrópu vegna tapaðs dómsmáls þriggja meðlima félagsins sem snýst um tekjuskerðingarreglur almanna- tryggingalaga. „Við teljum ein- faldlega að Hæstiréttur hafi ekki tekið afstöðu til okkar kæruatriða og förum því með málið á megin- landið,“ segir Helgi. Guðjónína Sæmunds- dóttir verkefnastjóri sem stýrir verk- efninu Stuðningi við fylgdarlaus ungmenni, segir erfitt að ímynda sér stöðu fylgdarlausra barna. „Um leið og þau verða 18 ára eru þau ein og við viljum að þau séu tilbúin að takast á við það sem bíður þeirra, sama hvort það er í framhaldsskóla eða á vinnumark- aði. Við horfum ekki á neina eina leið, aðra en að þau séu tilbúin.“ n Erfitt verður fyrir forystufólk stjórnarflokkanna að vinna viðvarandi fylgisfall til baka að mati stjórnmálafræðings. Kristrún Frostadóttir má mjög vel við una, fjarverandi í fæðingarorlofi. bth@frettabladid.is Stjórnmál „Það er svakalega áhugavert að ríkisstjórnin er alveg kolfallin,“ segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur um niður- stöður þjóðarpúls Gallup. „Þetta er magnað, því þessi ríkis- stjórn hélt fylgi ótrúlega lengi, eitt og hálft kjörtímabil,“ segir Eiríkur. „Kannanir staðfesta að þetta er varanleg þróun, ekki bara tilfallandi fall. Það verður erfitt að vinna þetta fylgisfall til baka.“ Samfylkingin heldur áfram að styrkja sig í sessi sem sá stjórnmála- f lokkur sem nýtur mestrar hylli landsmanna samkvæmt þjóðar- púlsi Gallup í febrúar. „Kristrún Frostadóttir má gríðar- lega vel við una,“ segir Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur um árangur formanns Samfylk- ingarinnar. 24 prósent kjósenda styðja Sam- fylkinguna nú en 22,5 prósent Sjálf- stæðisflokkinn. „Við fáum þrjá mánuði í röð sömu stóru heildarmyndina,“ segir Ólaf- ur. „Við erum með tvo f lokka sem teljast stórir í núverandi kerfi, allir hinir eru á bilinu 5–12 prósent.“ Framsóknarf lokkurinn hefur tapað mestu fylgi stjórnarf lokk- anna frá þingkosningunum 2021, færi úr þrettán þingmönnum í sjö. Vinstri græn hafa einnig tapað miklu fylgi, fengju nú fjóra þing- menn. Fylgi Viðreisnar er 7,7 prósent á sama tíma og stuðningur þjóðar- innar við aðild að ESB hefur vaxið. Sósíalistar fá einn þingmann nú samkvæmt þjóðarpúlsinum og eru hársbreidd frá fleiri þingsætum. Ólafur segir allt of snemmt að spá fyrir um úrslit næstu þingkosninga á grunni undanfarinna mælinga. Stuðningur við ríkisstjórn Katr- ínar Jakobsdóttur hefur ekki mælst minni frá upphafi, 40 prósent styðja nú stjórnina. Óvarlegt er að mati Ólafs að túlka könnunina sem teikn um forystu- vanda þótt Viðreisn græði ekki fylgi á ESB-sveiflunni. Stuðningur ráðist af forgangsröðun kjósenda. Einnig bendir Ólafur á að ríkis- stjórn Katrínar mælist í stuðningi á svipuðum stað og fyrir Covid. „Covid er væntanlega megin- skýringin á því á að stjórnin hélt ekki bara velli milli kosninga heldur bætti við sig árið 2021.“ Ef Sósíalistar koma mönnum inn á þing gæti orðið erfiðara en ella að mynda ríkisstjórn að mati Ólafs. Ólíklegt sé að þeir flokkar sem jafn- an séu í stjórn muni veðja á samstarf með Sósíalistum. Eiríkur Bergmann segir merkilegt að marktækur munur sé orðinn á stærð Samfylkingarinnar, umfram Sjálfstæðisflokkinn. „Spennan núna er Sósíalistarnir,“ segir Eiríkur. Píratar virðast sigla lygnan sjó, Flokkur fólksins er inni og áhuga- vert að Viðreisn, ákafasti Evrópu- sambands-aðildarflokkur landsins, að sögn Eiríks, nái ekki að lyfta sér á því máli. „Heldur er það Samfylkingin sem er í forystu þeim megin á sama tíma og formaðurinn er fjarverandi í fæð- ingarorlofi. Þessi könnun gefur tilefni til þess að ríkisstjórnarborðið nötri mjög hressilega,“ segir Eiríkur. n Ríkisstjórnarborðið nötri hressilega Ríkisstjórn Katrínar Jak- obsdóttur er kolsprungin samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Stjórn- málafræðingur segir að ríkis- stjórnarborðið nötri hressilega. fréttablaðið/ eyþór olafur@frettabladid.is fjár m ál a m ar k a Ð u r Íslands- banki neitar að svara spurningum Fréttablaðsins um það hvort sátta- ferli bankans við Fjármálaeftirlit Seðlabankans vegna útboðs á 22,5 prósenta hlut ríkisins í bankanum í mars 2022 taki til allra mála starfs- manna bankans vegna útboðsins. Fréttablaðið sendi stjórn bankans í vikunni spurningar sem viku að því hve margir starfsmenn bankans hefðu keypt í útboðinu og á hvaða gengi. Einnig var spurt hvort ein- hverjir starfsmenn hefðu selt, hve- nær og á hvaða gengi. Þá var spurt hvort sáttaferli bank- ans við Fjármálaeftirlitið tæki til allra mála allra starfsmanna vegna útboðsins. Bankinn vísaði til þess að þegar hefði komið fram að átta starfs- menn bankans hefðu keypt hluti í útboðinu og allir kaupendur hefðu keypt á sama gengi. Ekki yrðu veittar upplýsingar um viðskipti einstakra hluthafa sem ekki séu til- kynningaskyldir. Íslandsbanki neitar að tjá sig um efni athugunar Fjármálaeftirlitsins á meðan hún stendur yfir. Samkvæmt upplýsingum frá Fjár- málaeftirlitinu er athugun málsins ekki lokið en það tjáir sig ekki að öðru leyti. Sáttaferli kemur aðeins til greina viðurkenni brotlegur aðili brot sín og ef um alvarlegri brot er að ræða, á borð við innherjasvik, eru þau tilkynnt til lögreglu en ekki sett í sáttaferli. Það að athugun standi enn yfir gefur til kynna að annað hvort hafi Íslandsbanki ekki viðurkennt brot í tengslum við útboðið eða að um alvarleg brot sé að ræða sem ekki verður lokið með sáttaferli. n Fátt um svör frá Íslandsbanka Íslandsbanki neitar að tjá sig um yfirstandandi athugun Fjármála- eftirlitsins. fréttablaðið/SiGtryGGUr 4 FRéttiR FRÉTTABLAÐIÐ 4. mARs 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.