Fréttablaðið - 04.03.2023, Síða 6
Minkum er troðið í
loftþéttan kassa og
þeir kæfðir til dauða
með eiturgufum.
Rósa Líf Darra-
dóttir, hjá
Samtökum um
dýravelferð
Ég væri til í að fá svona
dúsu til að mæta hærra
verði á mat fyrir kett-
ina mína.
Björn M. Sigur-
jónsson, tals-
maður Samtaka
um dýravelferð
gar@frettabladid.is
fjölmiðlar Þórarinn Þórarinsson,
blaðamaður á Fréttablaðinu, hefur
fengið tilnefningu dómnefndar til
Blaðamannaverðlauna BÍ fyrir við-
tal ársins.
Tilnefninguna fær Þórarinn fyrir
helgarviðtal sitt við Hrafn Jökuls-
son heitinn.
„Í viðtalinu ræðir Hrafn um bar-
daga sinn við Surtlu, mein sem
fannst í honum mánuði áður en
viðtalið var tekið og átti eftir að
bera hann ofurliði mánuði síðar, og
atburði árin áður en meinið fannst.
Texti viðtalsins er kraftmikill og
viðmælandinn birtist lesandanum
ljóslifandi af lestrinum,“ segir í
umsögn dómnefndar Blaðamanna-
félagsins.
Í sama f lokki hlutu einnig til-
nefningu Lillý Valgerður Péturs-
dóttir, á fréttastofu Stöðvar 2,
Vísis og Bylgjunnar, fyrir viðtal
við Arnar Þór Ómarsson og Petru
Bergrúnu Axelsdóttur á Langanesi
um aðdraganda andláts tveggja
ára dóttur þeirra úr Covid-19, og
Sólveig Klara Ragnarsdóttir á RÚV
fyrir viðtal við kynsegin ungmenn-
in Dagbjörtu Heiðu Sigþórsdóttur,
Iðunni Birnu Þórisdóttur og Alex
Bergmann Einarsson og foreldra
þeirra.
Sjá má tilnefningar í öðrum
f lokkum á frettabladid.is. Verð-
launin verða veitt næsta laugar-
dag. n
Tilnefndur fyrir viðtal
við Hrafn Jökulsson
Viðtalið við Hrafn Jökulsson birtist í
lok ágúst í fyrra.
Fréttablaðið/anton brink
Þórarinn
Þórarinsson,
blaðamaður
Mmm ...
Hvaða kjams fær
þitt atkvæði
í kvöld?
bth@frettabladid.is
StjórnSýSla Staðgengill formanns
úrskurðarnefndar um upplýsinga-
mál hefur sent blaðamanni Frétta-
blaðsins Birni Þorlákssyni svarbréf
vegna kæru Fréttablaðsins. Fram
kemur í svarinu að ráðuneytið hafi
óskað eftir fresti til að leita álits
Evrópusambandsins á afhendingu
afrits af bréfi forseta framkvæmda-
stjórnarinnar til forsætisráðherra.
Fréttablaðið birti 9. febrúar síð-
astliðinn upplýsingar úr bréfi Katr-
ínar Jakobsdóttur til Ursulu von der
Leyen, forseta framkvæmdastjórnar
ESB.
Katrín falaðist með bréfi sínu eftir
fríum losunarheimildum frá flugi til
Íslands vegna sérstakra aðstæðna.
Ursula ritaði Katrínu svarbréf.
Þegar falast var eftir afriti af svar-
bréfinu synjaði ráðuneytið þeirri
ósk. Fréttablaðið kærði synjunina
til úrskurðarnefndar um upplýs-
ingamál.
Fréttablaðið telur efni svar-
bréfsins eiga erindi við almenning.
Í rökstuðningi synjunar sagði að ef
bréfið yrði af hent skapaðist hætta
á að traust er lendra stjórn valda eða
al þjóða stofnana til ís lenskra stjórn-
valda myndi skaðast. Af hending
bréfsins gæti tor veldað samskipti. n
Leita álits út af kæru Fréttablaðsins
Úr bréfi Katrínar til Ursulu.
Dýraverndarsinnar vilja að
Ísland fari að ráði 22 annarra
Evrópuríkja og banni loð-
dýraeldi, enda farið það á svig
við lög um velferð dýra.
ser@frettabladid.is
DýravernD Samtök um um dýra-
velferð á Íslandi ætla að standa fyrir
vitundarvakningu um loðdýraeldi á
Íslandi í marsmánuði.
Þau vilja með því vekja almenn-
ing til vitundar um slæma meðferð
á dýrunum og skora á stjórnvöld að
setja bann við loðdýraeldi.
Íslensk stjórnvöld færu þá að
dæmi 22 Evrópuríkja sem hafa
bannað loðdýraeldi þar sem það
samrýmist ekki lögum um velferð
dýra í Evrópu.
„Það er ekki nokkur lifandis leið
að líta svo á að loðdýraræktin hér
á landi fari ekki í bága við dýra-
verndarlög,“ segir Björn M. Sigur-
jónsson, talsmaður samtakanna.
„Dýrunum er haldið eins langt frá
náttúrulegum aðstæðum sínum og
hugsast getur,“ bætir hann við.
Loðdýraeldi sé andstætt öllum
sjónarmiðum um dýravelferð, hafi
enga þjóðhagslega þýðingu og sé
þess utan vafasamt frá umhverfis-
verndarsjónarmiði – og hafi loks
enga þýðingu fyrir byggðastefnu
eða landbúnað.
Samtök um Dýravelferð á Íslandi
skori því á matvæla- og land-
búnaðarráðherra að leggja fram
áætlun sem miði að því að loðdýra-
eldi verði lagt af og bannað innan
fjögurra ára.
Rósa Líf Darradóttir er annar
l iðsmaðu r samt akanna. Hú n
segir tilveru minka í loðdýraeldi á
Íslandi þá dapurlegustu sem hugs-
ast getur.
„Frá fæðingu til dauðadags dvelja
þeir í litlu vírnetsbúri. Fætur þeirra
fá aldrei að hvíla á öðru undirlagi
en mjóum vírum,“ segir hún og
bætir því við að af lífun þeirra sé
þar að auki einkar ógeðfelld og
sársaukafull.
„Minkum er troðið í loftþéttan
kassa og þeir kæfðir til dauða með
eiturgufum. Engum blöðum er um
það að f letta að meðferð loðdýra
er í hróplegri mótsögn við dýra-
velferðarlög,“ lýsir hún.
„Svo er þessi bissness, sem vel að
merkja er aðeins stundaður af níu
bændum, svo lélegur að það þarf að
borga með honum,“ segir Björn, en
loðdýrabændur hafi verið styrkir
um 160 milljónir að undanförnu
til að bæta þeim upp verðhækkun
á fóðri.
„Ég væri til í að fá svona dúsu til
að mæta hærra verði á mat fyrir
kettina mína,“ segir Björn M. Sigur-
jónsson. n
Vilja setja algjört bann við
loðdýraeldi hér á landi
Loðdýrabændur hafa fengið 160 milljónir í ríkisstyrki til að bæta þeim upp verðhækkanir á fóðri. Fréttablaðið/Getty
6 FréTTir FRÉTTABLAÐIÐ 4. mARs 2023
LAUGArDAGUr