Fréttablaðið - 04.03.2023, Page 16

Fréttablaðið - 04.03.2023, Page 16
Það er algjör nostalgía að grugga í þessu. Hver var fegurðardrottning hvaða ár, hver fór í júró? Hvað kostaði ferð til Mallorca? Þetta er alls konar sem ég skoða. Skáksaga leikskólans Laufás- borgar nær aftur til ársins 2008. Um helgina | Við mælUm með | Yesmine ætlaði sér aldrei að starfa við matargerð. bjork@frettabladid.is Anna Margrét Káradóttir ætlar næstu fjóra sunnudaga að ferðast aftur í tímann með hlustendum Rásar 2 í þátt­ unum Tíðarandinn. bjork@frettabladid.is Anna Magga, eins og hún er alltaf kölluð, lýsir sjálfri sér sem Þor­ lákshafnarmeyju sem búsett sé í Reykjavík. „Ég er menntuð leikkona og ásamt því að starfa sjálfstætt á því sviði og sem söngkona vinn ég sem aðstoðarforstöðukona í félagsmið­ stöð. Og svo auðvitað útvarpskona líka. Ég elska fjölbreytni, vil hafa sem nóg og fjölbreyttast að gera,“ segir Anna Magga. Í þættinum Tíðarandanum, sem hefur göngu sína á morgun, sunnu­ dag, ferðast hún aftur í tímann og skoðar lögin sem verða tvítug, þrítug, fertug og fimmtug á árinu ásamt því að skoða tíðarandann hverju sinni. „Hugmyndin á bak við Tíðarand­ ann kom út frá lagalista á Spotify. En ég var að fylgja lagalista á Spot­ ify með lögum sem urðu tuttugu ára fyrir nokkrum árum og hugs­ aði að það ætti að vera hægt að gera seríu úr svona og taka fyrir f leiri ár,“ útskýrir Anna Magga. Eitt ár í hverjum þætti Þættirnir verða á dagskrá á sunnu­ dögum í mars, frá 11 til 12.20, fram að hádegisfréttum. „Ég byrja á árinu 1973, fimm­ tugu lögunum, tek svo 1983 í næsta þætti, svo 1993 og enda á 2003, tek sem sagt eitt ár fyrir í hverjum þætti. Svo fer ég yfir hvað var að gerast í samfélaginu hverju sinni.“ Anna Magga segist hafa legið yfir gömlum auglýsingum og tímaritum í undirbúningsvinnunni. „Og ég er auðvitað búin að klára internetið í leit að fróðleik, þetta hefur ekki verið neitt smá gaman. Það er algjör nostalgía að grugga í þessu. Hver var fegurðardrottning hvaða ár, hver fór í júró? Hvað kost­ aði ferð til Mallorca? Þetta er alls konar sem ég skoða.“ Íslenskt og erlent í bland Aðspurð segist hún velja íslensk og erlend lög í bland. „Ég passa vel upp á fjölbreytni, að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Ég vel mismunandi tónlistar­ stefnur og svo var ég líka að reyna að passa upp á kynjahlutföllin,“ segir hún og bætir við að það hafi orðið auðveldara því nær sem dreg­ ur okkar tíma. „Hlutföllin voru ekki alveg jöfn fyrst um sinn, því miður, sem sýnir bara breytingarnar í gegnum árin, sem er vel.“ Aðspurð hvaða tímabil sem hún tekur fyrir sé í uppáhaldi hjá henni sjálfri svarar Anna Magga: „Ég ætti auðvitað að segja fæðing­ arárið mitt, 1983, en ég verð að segja 1993 því ’90­músíkin er og verður alltaf í uppáhaldi hjá mér. Ég er næntís­krakki svo það var virkilega erfitt að velja lög fyrir þetta tímabil, enda langaði mig að velja svo mörg.“ Með vasadiskó á ferðalögum Hún lýsir sér sem alætu á tónlist og gamalli sál. „Ég drakk í mig tónlistina sem foreldrar mínir og eldri bræður hlustuðu á og fékk í hendur plötu­ safn foreldra minna fyrir ekki svo löngu og þar eru heldur betur ger­ semar. Ég var líka mjög mikið í því að stela geisladiskum frá bræðrum mínum. Ég man mjög sterkt eftir því þegar ég fann Kirsuber­diskinn frá Nýdanskri inni hjá bróður mínum og hlustaði á hann, ég var átta ára og algjörlega dolfallin yfir þessari tónlist.“ Anna Magga segist alltaf hafa verið háð tónlist, bæði að hlusta á hana og syngja hana. „Á ferðalögum mínum um landið með foreldrunum sat ég aftur í með vasadiskóið og söng hástöfum með því sem ég var að hlusta á, algjörlega í mínum heimi, greyið foreldrarnir, segi ég nú bara,“ segir hún og hlær. „Ef ég var orðin óþolinmóð að sitja í bíl sögðu foreldrar mínir mér að ég mætti velja kassettu á næstu bensín­ stöð sem við myndum stoppa á og ég varð alveg alsæl. Ég gleymi því aldrei þegar ég fann nýjustu kass­ ettuna með Vinum vors og blóma á bensínstöðinni á Kirkjubæjar­ klaustri, litla veislan! Já, eða SSSól­ kassettuna í Vík í Mýrdal,“ segir hún að lokum. n Algjör nostalgía út mars bjork@frettabladid.is Yngsta og efnilegasta skáklið lands­ ins, Skákbörn, lið Laufásborgar, stefnir á heimsmeistaramótið í skólaskák sem fer fram á Grikklandi í apríl. Liðið efnir til skákhátíðar á Eiðistorgi í dag, laugardag, sem liðar í fjáröflun fyrir ferðina. Skáksaga leikskólans Laufásborg­ ar nær aftur til ársins 2008. Upphaf­ lega var markmiðið að kenna elstu börnunum að þekkja taflmennina og mannganginn en nú læra öll þriggja til fimm ára börn leikskólans að tefla. Það er til mikils að vinna enda hafa rannsóknir sýnt jákvæð áhrif skákkennslu á einbeitingu, námsgetu, ímyndunarafl og fleira. Skákbörn, lið leikskólans, hefur á að skipa þrettán börnum og stefnir hópurinn á Heimsmeistaramótið Efnilegasta skáklið landsins heldur hátíð Skákbörn, lið leikskólans Laufásborgar stefnir á heims- meistaramótið í skólaskák í næsta mánuði. fréttablaðið/ valli í skólaskák í Grikklandi í næsta mánuði. Sem liður í þeirri fjáröflun efnir foreldrafélagið Hrókur alls fagnaðar til skákhátíðar fyrir börn og fullorðna á Eiðistorgi í dag milli klukkan 14 og 16. Klukkan 14 verður tef ld risa­ skák, á stóru skákborði með stórum skákmönnum, og munu strákarnir í Chess after dark keppa við börnin ásamt þjálfara sínum. Klukkan 15 verður svo listaverka­ uppboð þar sem boðin verða upp listaverk eftir marga þekkta lista­ menn, til að mynda Hildigunni Birgisdóttur, Þorvald Jónsson, Godd, Þórdísi Erlu Zoega, Ragnheiði Þorgrímsdóttur og fleiri. Eins stendur til boða að styrkja börnin með kaupum á múslí, ullar­ vörum, happdrættismiðum eða kaffi og öðrum veitingum. n Dömplingum Veitingastaðurinn Dragon Dim Sum hefur nú verið opnaður á Geirsgötu 9. Hugmyndin á bak við staðinn er að nýta hráefni sem í boði er á Íslandi til að búa til kínverska dömplinga. Mat­ seðillinn er einfaldur, bragðsterkur og virkilega góður. Við mælum sérstaklega með Chicken Wonton sem inniheldur kjúkling, gulrætur, hnetur, rautt karrí og chilli. Söngvakeppnisstemningu Söngvakeppni sjónvarpsins er á dag­ skrá í kvöld og loks kemur í ljós hver mun keppa fyrir hönd Íslands í Euro­ vision í vor. Söngvakeppnin er kjörið tækifæri til að skapa stemningu og gleði. Sama hvort það er snakk og Voga­ídýfa með fjölskyldunni, júrópartí með vinunum eða horft undir sæng mælum við með söngva­ keppnistemningu í kvöld. n Anna Margrét Káradóttir býður hlust- endum Rásar 2 upp á ferðalag aftur í tímann alla sunnudaga í mars. fréttablaðið/ ernir Yesmine Olsson er hvað þekktust hér á landi fyrir Bollywood­dansa og austurlenska matargerð, helst indverska. Sjálf er Yesmine fædd í nágrannalandi Indlands, Srí Lanka, þaðan sem hún var ættleidd til sænskra hjóna og ólst upp í litlu sjávarþorpi í Svíþjóð. Yesmine og systir hennar, sem ættleidd var frá sama stað, voru aldar upp á hefðbundnum sænskum mat, smörrebröd og sænskum kjötbollum. En svo mjög fannst þeim vanta upp á kryddið að þær stálust tvær saman, á fermingaraldri, alla leið yfir til Kaupmanna­ hafnar, á meðan foreldrar þeirra voru við vinnu. Þar fundu þær litla búllu þar sem boðið var upp á indverskt lambakarrí og eftir það varð ekki aftur snúið, hún, sem áður hafði aldrei smakkað indverskt, var heilluð. Yesmine ætlaði sér aldrei að starfa við matargerð. En hún, sem hefur búið á Íslandi í tæpa þrjá áratugi, upplifir að því lengra sem hún fer frá rótunum, því fastar togi þær. „Ættleiðingin hefur að mörgu leyti stjórnað ferðalagi mínu. Ræturnar hafa stýrt mér. Þú sérð að hér er ég – að elda indverskan mat og dansa Bollywood,“ segir Yesmine sem nú hefur opnað veitingastað þar sem hún segist brjóta allar reglur og blanda saman ólíkri matargerð, sem er eins og hún: Fjölþjóðleg og fersk! n Römm er sú taug 16 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 4. mARs 2023 lAUgARDAgUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.