Fréttablaðið - 04.03.2023, Síða 28
Við óskum eftir að ráða öflugan einstakling í starf framkvæmdastjóra Markaðs- og áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins. Hér er um að ræða nýtt og
spennandi starf sem felur m.a. í sér að móta nýja starfsemi á heimsmælikvarða. Leitað er að drífandi og skipulögðum leiðtoga sem býr yfir framúrskarandi
samskiptahæfni og skapandi hugsun.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511 1225. Áhugasamir
einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Allar umsóknir eru trúnaðarmál og verða nöfn umsækjenda ekki birt opinberlega.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er æskileg
• Reynsla og þekking á stjórnun, verkefnastjórnun og gagnagreiningu
• Reynsla og þekking á stefnumótun og áætlanagerð
• Reynsla og þekking á markaðsmálum
• Góð þekking á höfuðborgarsvæðinu og ferðaþjónustu
• Góð samskiptahæfni og skipulögð vinnubrögð
• Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku
• Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæð vinnubrögð
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á stjórnun og daglegum rekstri
• Samskipti og samstarf við stjórnvöld og hagsmunaaðila
• Umsjón og eftirfylgni með ferðamálaþingi og öðrum fundum, kynningum
og ráðstefnum
• Mótun, innleiðing og eftirfylgni með starfs- og fjárhagsáætlun
• Mótun, innleiðing og eftirfylgni með áfangastaðaáætlun
• Umsjón með markaðssetningu og kynningu svæðisins
• Stefnumótun, vöruþróun og nýsköpun í samstarfi við ferðaþjónustuna
Markaðs- og áfangastaðastofa höfuðborgarsvæðisins er ný sjálfseignarstofnun sem sett er á fót í samstarfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ferðamálasamtaka
höfuðborgarsvæðisins.
Framkvæmdastjóri
Viltu gera höfuðborgarsvæðið að eftirsóknarverðum áfangastað?
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu,
getu og reynslu starfsmanna.
Hver einstök ráðning er mikilvæg
fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis
og viðkomandi einstaklings að vel
takist til.
Hafðu samband við okkur og sjáðu
hvað við getum gert fyrir þig.
RÁÐNINGAR