Fréttablaðið - 04.03.2023, Síða 51

Fréttablaðið - 04.03.2023, Síða 51
Aukalagið, þegar við vorum klappaðir upp, var klukkutími og korter. Þetta var sveitall, svona af gamla skólanum. Marinó Lilliendahl, tónlistarmaður Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Þetta gerðist | | 4. Mars 2000 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Örlygur Sveinsson Tindaflöt 2, Akranesi, lést fimmtudaginn 16. febrúar. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 17. mars klukkan 13. Þökkum hlýhug í okkar garð. Sesselja Óskarsdóttir Jón Ragnar Örlygsson Ólöf Árnadóttir Björg Örlygsdóttir Arnar Matthíasson Garðar Örn Þorvarðarson Sara Guðmundsdóttir Tryggvi Rúnar Árnason Hjördís Inga Jóhannesdóttir Ragnheiður, Kristófer Árni og aðrir aðstandendur Hjónaball Hrunamanna hefur verið haldið árlega frá 1943 og verður stærra en nokkru sinni fyrr í ár. arnartomas@frettabladid.is Hjónaball Hrunamanna er haldið ár hvert á Flúðum og er einn vinsælasti viðburður svæðisins. Það er sérstakur hátíðarbragur yfir ballinu í ár sem fagn- ar nú 80 ára afmæli. „Þetta var í fyrstu kallað hjóna- skemmtun og byrjaði þá í rauninni sem kaffiboð árið 1943,“ segir Sigurjón Snær Jónsson, einn af skipuleggjendum balls- ins. „Þá voru þetta einhverjir tveir, þrír karlar sem stóðu að viðburðinum sem var haldinn í gamla barnaskólanum sem stóð niðri við sundlaugina á Flúðum.“ Kaffiboðið var heldur settlegt og fóru krakkar í skólanum með leikþátt fyrir gestina. Viðburðurinn varð strax að árlegri venju og vatt statt og stöðugt upp á sig. „Fólkinu í sveitinni fjölgaði og svo var ákveðið að hætta með kaffið og vera með alvöru mat,“ segir Sigurjón. „Það var strax ákveðið að hafa ekki þorra- mat heldur alvöru hangikjöt og svoleiðis kræsingar.“ Upp kom sú hugmynd að vísur yrðu samdar um sveitunga og það sem gerst hafði á svæðinu, svo bættust við tón- listaratriði og að lokum var komin hefð fyrir þessu rokna balli sem haldið er enn þann dag í dag. Stærsta ballið til þessa Ballið var fyrst um sinn haldið í sam- komusalnum í skólanum en færðist síðar yfir í félagsheimilið sem byggt var 1969. Þar var 330 manna hámarksfjöldi sem var farinn undir rest að þrengja að ballgestum. „Það var komið á þann stað að það þurfti að neita fólki um aðgöngu því það var varla hægt að standa upp til að fara á klósettið,“ lýsir Sigurjón og hlær. „Nú er þetta í fimmta skipti sem við höldum ballið í íþróttahúsinu og þetta er stærsta hjónaballið frá upphafi því við erum komin í um 420 gesti.“ Gestirnir eru að mestu Hrunamenn eða fólk sem hefur tengingu í sveitina. Sigurjón segir að á listanum í ár sé eitt borð af fjörutíu og þremur þar sem hann kannast ekki við nöfnin. Og aldursbilið er breitt. „Ég var búin að heyra í einni sem er áttatíu og fjögurra ára sem langaði að mæta,“ og svo er þetta niður í tvítugt.“ Eru piprandi Hrunamenn ekkert öfundssjúkir vegna ballsins? „Þetta heiti er kannski aðeins farið út,“ svarar Sigurjón og bendir á að hann og Erna Edda Arndal sem, ásamt stórri ballnefnd, halda ballið í ár, séu ekki einu sinni gift enn þá. „Fyrst það eru ekki einu sinni hjón að stýra þessu þá er aðeins minna horft til þess í dag.“ Aukalag í lengra lagi Ballið í fyrra var algjör sprengja að sögn Marinós Lilliendahl hjá Stuðlabandinu sem tróð þar upp í fyrra. „Aukalagið, þegar við vorum klapp- aðir upp, var klukkutími og korter,“ segir hann og hlær. „Þetta var alveg alvöru sveitaball, svona af gamla skólanum.“ Marinó rifjar upp hvernig fólk á öllum aldri steig villtan dans í salnum fram til klukkan fjögur um nóttina. Eftir að her- legheitunum lauk var fólk svo samstíga í fráganginum. „Maður finnur fyrir miklum samhug hérna í sveitinni,“ segir hann og bendir á að tímasetningin  hafi nú kannski haft eitthvað að gera með hversu mikil stemningin var. „Við spiluðum í fjóra tíma og fjörutíu mínútur sem var alveg svakalegt. Þetta var  líka eitt af fyrstu böllunum eftir Covid svo það var ein- hver andi sem sveif þarna yfir öllu.“ n Hjónaball Hrunamanna fagnar áttatíu ára afmæli Tölvuleikjaheimurinn umturnaðist árið 1994 þegar sony gáfu frá sér leikjatölvuna Playstation. Vélin hafði upphaflega átt að vera samstarfsverkefni milli sony og Nintendo en eftir að síðarnefndi leikjarisinn kúplaði sig frá verkefninu ákvað sony að halda þróun vélarinnar áfram upp á eigin spýtur. Playstation var öflugasta leikjatölva sem sést hafði þegar hún kom á markaðinn og bauð upp á vandaðri þrívíddargraf- ík en fólk hafði vanist fram að því. Leikjaúrvalið var gríðarlegt og gátu margir minni framleiðendur látið ljós sitt skína. Það var því ekki skrítið að leikjaheimurinn hafi verið á iði þegar sony tilkynnti um arftaka Playstation í mars 1999. Playstation 2 kom fyrst á markaðinn í Japan um ári síðar og átti eftir að skjóta keppinautum sínum ref fyrir rass. Playstation 2 seldist í alls 150 milljón eintökum og er enn þann dag í dag mest selda leikjatölva heims. Þótt vélin sé í miklu dálæti hjá milljónum geta fáir státað sig af meiri ást á vélinni en breskur maður sem gekk áður undir nafn- inu Dan Holmes. Hann elskaði Playstation 2 svo mikið að hann lét breyta eftirnafni sínu í Playstation 2. Geri aðrir betur. n Playstation 2 kemur á markaðinn Frá Hjónaballinu í fyrra þar sem stuðlabandið spilaði fyrir breiðan aldurshóp langt fram eftir nóttu. Mynd/Stuðlabandið Ballið er gríðarlega vinsælt hjá Hrunamönnum sem fjölmenna ár hvert. FréTTablaðið tímamót 314. mars 2023 LaUGaRDaGUR Ástkær faðir minn, bróðir okkar, unnusti minn og sonur minn, Jónas Oddur Jónasson lést þann 13. febrúar síðastliðinn. Útför fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 8. mars kl. 13.00. Alda Lárusdóttir Rökkvi Jökull Jónasson Pétur Jökull Jónasson Jón Atli Jónasson Herborg Drífa Jónasdóttir Grímur Jónasson Jónína H. Jónsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Borghildur Skúladóttir sem lést á Landspítalanum þann 23. febrúar sl. verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þann 9. mars nk. kl. 13.00. Sérstakar þakkir til starfsfólks Taugalækningadeildar B2 á LSH fyrir auðsýnda hlýju og góða umönnun. Skúli Róbert Þórarinsson Hrafnhildur Jónsdóttir Þórarinn Þórarinsson Hallfríður Þórarinsdóttir Þórunn Þórarinsdóttir Unnur María Þórarinsdóttir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.