Fréttablaðið - 04.03.2023, Síða 58

Fréttablaðið - 04.03.2023, Síða 58
benediktboas@frettabladid.is Eyjólfur Kristjánsson kom í Íþrótta- vikuna með Benna Bó sem sýnd er á Hringbraut á föstudagskvöldum. Eyfi er einn af okkar bestu sonum í Eurovision. Hann samdi fyrst lag í keppnina árið 1986 og aftur 1987 og braut þá blað í sögunni í laginu Ástarævintýri en hann notaði þá vindvél – eitthvað sem Eurovision- aðdáendur þekkja vel síðan. Hann fór fjórum sinnum út sem bakrödd og söng hið ódauðlega lag um Nínu. „Ég á lag í fyrstu keppninni. Það vissi enginn hver samdi það lag af því því var skilað inn nafnlaust á þeim tíma en það er lagið Ég lifi í draumi sem Björgvin Halldórsson söng. Ég meina, aðalkeppnin var haldin í Björgvin í Noregi, af hverju sendum við ekki Björgvin til Björg- vinjar? C’mon,“ sagði hann léttur. Um vindvélina sagði hann að séra Davíð Þór Jónsson hefði komið með hugmyndina. „Það var nefnilega alls ekki ég, en auðvitað lógískt eftir á. Í viðlaginu segir: Ég er vindurinn sem þýtur. Þegar við erum að taka upp lagið í myndveri sjónvarpsins þá datt honum þetta snjallræði í hug. Þetta var sko engin smá vindvél því hún var eins og gott traktorsdekk. Þetta er eins og í Írak þegar þeir slökktu olíueldana í gamla daga. Ég man að þegar var kveikt á þessu í fyrsta sinn þá fukum við Ingi Gunn- ar út af sviðinu. Þá var þetta á hæsta og alveg svakalegt,“ sagði hann og hló. Eyjólfur er þó ekkert að fylgjast með. „Mér fannst gaman að þessu þegar á þessu stóð en ég hef varla heyrt lögin sem eru að keppa núna.“ Benedikt Bóas þáttarstjórn- andi sagði þá að hann myndi ekk- ert spyrja hver færi til Liverpool í lokakeppnina. „Ég get alveg sagt eitthvað, en lagið sem vinnur fer áfram,“ sagði Eyjólfur og hló enn.n Vindvélin feykti Eyfa næstum því út af Eurovision-sviðinu Eyfi samdi líklega eitt þekktasta Eurovision-framlag Íslands. mynd/aðsend Fimm hesta kapphlaup í Gufunesi Draumur í veruleikaformi sigga Ózk (900 9901) „Ég er svo ótrúlega spennt að stíga á svið á laugar- daginn og gera þetta aftur. Ég er svo ótrúlega þakklát fyrir allan stuðning og get ekki beðið eftir að fá fleiri til að syngja og dansa með. Þetta er algjör draumur í veruleikaformi.“ Úrslitin í Söngvakeppninni ráðast í Gufunesi í kvöld. Þá verður ljóst hvort það verður Sigga Ózk, Bragi, Celebs, Diljá eða Langi-Seli og Skuggarnir sem verður fulltrúi Íslands í Eurovision í maí. Keppend- urnir geta ekki beðið. odduraevar@frettabladid.is Hlakkar til að syngja á ensku Bragi (900 9902) „Ég er rosalega spenntur fyrir laugardeginum. Það verður gaman að prófa að flytja lagið á ensku og reyna að gera enn betur. Ég er sannfærður um að öll lögin verði æðisleg og vonandi getum við hjálpað fólki að eiga gott partí- kvöld.“ Hlakkar til að gera þetta aftur diljá (900 9904) „Stemmingin hjá mér og teyminu er frábær. Það var svo góður andi yfir öllum í undanúrslitunum og dagurinn allur var svo skemmtilegur að ég get ekki beðið eftir að fá að gera þetta aftur.“ Fóru aftur í fimmta gír eftir ósigurinn Celebs (909 9903) „Við erum svo sannarlega spennt, mjög gaman að fá að vera með svona óvænt, þetta wildcard kom skemmtilega á óvart! Við vorum að koma okkur fyrir aftur á jörðinni í ósigurs-vikunni okkar, en svo fengum við að heyra að við fáum að vera með á úrslitakvöldinu og þá fór allt aftur í fimmta gír og við erum bara á fullu í undirbúningi fyrir flutninginn.“ Loftið er hlaðið rafmagni Langi seli og skuggarnir (900 9905) „Stemningin fyrir úrslitin hjá okkur í Langa Sela og Skuggunum er hrika- lega góð. Þátttakan í Söngvakeppninni er búin að skila okkur margfalt meiri gleði og skemmtilegheitum en við áttum von á og það er óhætt að vitna í orð skáldsins, „Loftið er hlaðið rafmagni“. odduraevar@frettabladid.is Viðburðarstjórarnir Hafdís Björk Jensdóttir og Alexandra Eir Andrés- dóttir eru ábyrgar fyrir öllu sem við- kemur baksviði Söngvakeppninnar. Þær hafa vægast sagt verið á fullu undanfarna daga. „Við höfum oft sagt að starfslýsing okkar endi í raun hvergi. Við förum reyndar ekki upp á svið og syngjum ekki,“ segir Hafdís hlæjandi og Alex- andra tekur undir. „Það koma sko ótal fyrirspurnir, oft á síðustu stundu sem við þurf- um að bregðast við. Þá þurfum við að skjótast og redda málunum og stundum er þetta eitthvað sem þarf að finna út úr og tekur tíma,“ segir Alexandra. „En við segjum það alltaf að það eru engin vandamál, það eru bara lausnir. Það skiptir öllu máli að halda í gleðina og jákvæðnina,“ segir Hafdís. „Það er ótr ú lega gaman í vinnunni, við hjálpumst öll að og gerum þetta skemmtilegt og það er andinn sem svífur hér yfir, það eru lausnir við öllu og við finnum út úr því.“ Þær svara því hlæjandi að sérþarf- ir keppenda séu ekki miklar, það sé enginn sem krefjist þess að fá bara blá M&M til að mynda. „En ef það er eitthvað þá er eina rétta svarið: Já, ekki málið!“ segir Hafdís hlæjandi. Þær hafa báðar starfað við Söngvakeppnina undanfarin ár og segja að jákvæðnin sé einmitt það mikilvægasta til þess að halda í. „Því umhverfið skiptir svo miklu fyrir þá sem eru að taka þátt. Það er stress og við erum hluti af því að skapa gott og þægilegt umhverfi.“ n Engin vandamál og bara lausnir Þær stöllur eru límið baksviðs. FréttaBLaðið/anton Brink Það skiptir öllu máli að halda í gleðina og jákvæðnina. Hafdís Björk Þetta var sko engin smá vindvél því hún var eins og gott trak- torsdekk. 38 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 4. mARs 2023 lAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.