Veiðimaðurinn - 01.12.1972, Side 8
með því að veita styrki til kynningar á
málinn og til námsverkefna það varðandi,
að dreifa upplýsingum til einstaklinga og
stofnana, sem tengd eru laxamálum, og
að hafa samvinnu við slíkar stofnanir.
Alþjóðalaxastofnunin er sjálfseignarstofn-
un. Fær hún tekjur sínar að mestu með
framlögum einstaklinga og félaga, og eru
þau misjöfn að upphæð. Minnstu framlög
eru 5.00 dollarar. í stjórn stofnunarinnar
eiga sæti 24 menn. Hún hefur sér til að-
stoðar alþjóðlega ráðgjafanefnd með 26
fulltrúum frá laxveiðilöndunum, og á
greinarhöfundur sæti í nefndinni af Islands
hálfu. Þá er einnig starfandi 7 manna ráð-
gjafanefnd um vísindaleg efni. Fram-
kvæmdastjórinn er Willfred M. Carter,
fiskifræðingur. Hann korn í heimsókn til
íslands síðastliðið sumar til þess að kynna
sér laxamálin hér á landi. Flutti hann er-
indi á Hótel Loftleiðum í Reykjavík um
Alþjóðalaxastofnunina og laxamál, á vegum
Landssambands ísl. stangaveiðifélaga og
Stangaveiðifélags Reykjavíkur.
Laxarannsóknarstofnunin.
Laxarannsóknarstofnuninni (The Atlantic
Salmon Research Trust Limited) var kom-
ið á fót í Englandi árið 1969. Markmið
hennar eru þau sömu og Alþjóðalaxastofn-
unarinnar vestan hafs og starfar hún með
svipuðum hætti. Með þessum stofnunum
er náin samvinna, meðal annars er alþjóða-
ráðgjafanefndin fyrir báðar. Gengust þær
í sameiningu fyrir alþjóðlegum laxamála-
fundi í St. Andrews í Kanada daganna 20.
til 22. september sk, og verður síðar sagt
nánar frá honum. Framkvæmdastjóri Laxa-
rannsóknarstofnunarinnar er Sir Hugh
MacKenzie, fyrrverandi aðmíráll.
CASE.
Árið 1970 voru stofnuð samtök í Banda-
ríkjunum, sem kalla sig Nefnd vegna neyð-
arástands í laxamálum (Committee on the
Atlantic Salmon Emergency, skammstafað
CASE). Nefndin hefur það markmið, að
vinna að ræktun laxastofnanna í laxalönd-
unum, en beinir athöfnum sínum sérstak-
lega gegn ógnun úthafsveiðanna við laxa-
stofnana, en þær veiðar eru aðallega stund-
aðar af Dönum. Nefndin hefur talið, að
Danir muni aðeins láta af „ránveiði“ sinni,
ef þeir verði beittir stjómmálalegum- og
efnahagslegum þvingunum. Nefndin hefur
sent frá sér mörg fréttabréf um gang út-
hafsveiðanna og ráðstafanir, sem hún legg-
ur til, að verði gerðar til þess að stöðva
þær. Þá skýrir hún frá starfi sínu og þróun
þessara mála á alþjóðavettvangi. Formaður
nefndarinnar er Richard A. Buck, sem ver-
ið hefur hér á landi við laxveiðar að und-
anförnu, en kunnastur nefndarmanna mun
vera söngvarinn og leikarinn Bing Crosby.
Norður-Ameríku laxaráðið.
Enn má nefna samtök, sem láta sig laxa-
málin snerta. Er það Norður-Ameríku laxa-
ráðið (The North American Atlantic Salmon
Council), sem stofnað var 1971. Standa að
ráðinu 15 samtök, sem fjalla beint og ó-
beint um laxveiðimál eða náttúruvemdar-
mál. Meðal stofnenda var Alþjóðalaxastofn-
unin og er framkvæmdastjóri hennar,
Willfred M. Carter, einnig framkvæmda-
stjóri fyrir hin nýju samtök. Markmið þess-
ara samtaka eru í aðalatriðum þau sömu
°g Alþjóðalaxastofnunarinnar og Laxarann-
sóknarstofnunarinnar. Eitt veigamesta atr-
iði markmiða þessara samtaka er að leit-
ast við að fá alþjóðlega viðurkenningu fyrir
6
VEIÐIMAÐURINN