Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Blaðsíða 21
Aðalfundur
L. S.
Aðalfundur Landssambands stangar-
veiðifélaga var haldinn á Hótel Esju í
Reykjavík 25.-26. október s.l. Fundinn
sóttu 82 fulltrúar frá 14 af aðildarfélögum
L.S., auk gesta. Fundarstjórar voru Grett-
ir Gunnlaugsson og Friðrik Þ. Stefánsson,
en fundarritarar Svend Richter og Olafur
O. Jónsson.
Avarp varaformanns
Rafn Hafnf]örð, varaformaður L.S.,
setti fundinn og mælti á þessa leið:
Kæru félagar.
Ég býð ykkur öll hjartanlega velkomin
til þessa 36. aðalfundar Landssambands
stangarveiðifélaga.
Sérstaklega vil ég bjóða þá velkomna,
sem hafa lagt á sig langa ferð, svona í byrj-
un vetrar. Einnig þá sem sitja nú aðalfund
L.S. fyrsta sinni og má þar sérstaklega
nefna fulltrúa Stangveiðifélags Austur-
Húnvetninga, sem gengu til liðs við okkur
á þessu ári.
Það hefur fallið í minn hlut sem varafor-
manns L.S. að standa hér í stafni, í stað
formannsins okkar Gylfa Pálssonar, sem
því miður getur ekki verið hér vegna vetr-
ardvalar í Danmörku.
Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka
Gylfa ánægjulegt samstarf. Hann hefur
verið ötull talsmaður okkar stangveiði-
manna, - verið laginn við að koma málefn-
um okkar á framfæri við fjölmiðla og
framámenn þjóðarinnar, - enda maðurinn
sérlega vel máli farinn og frambærilegur
fulltrúi.
Hann hefur átt hvað mestan þátt í því
að breyta ímynd L.S. útávið hin síðari ár,
eða eins og hann orðaði það sjálfur við
setningu veiðimannaráðstefnunnar s.l.
vor: ,,Nú spyrja menn ekki lengur - Lands-
samband stangarveiðifélaga hvað er það - er
það eitthvað - ertu að meina Stangaveiði-
félagið? - með stórum staf og greini“.
Kæru félagar, mér fínnst tilhlýðilegt
við setningu þessa aðalfundar að við sam-
einumst öll í því að senda Gylfa Pálssyni
símskeyti héðan frá fundinum er hljóði
þannig: Aðalfundur L.S. haldinn að Hótel
Esju fyrsta dag vetrar 1986 þakkar þér
heilshugar frábœra forustu í þágu stang-
veiðiíþróttarinnar, með ósk um að við fáum
að njóta starfsorku þinnar um ókomin ár.
Stjórn L.S. hefur valið þessum aðal-
fundi kjörorð það er blasir hér við á veggn-
um og fundargögnum: Verndum villta fisk-
stofna í ám og vötnum landsins.
Það er ætlun okkar í stjórninni, að þetta
kjörorð verði sem rauður þráður í gegnum
alla okkar starfsemi næsta ár og fái náð fyrir
augum þess fjölmiðlafólks sem vill stang-
veiðiíþróttinni vel.
Hvers konar náttúruvernd er nú mjög
til umfjöllunar um víða veröld og megum
VEIÐIMAÐURINN
19