Veiðimaðurinn - 01.12.1986, Síða 63
Sá stærsti
var 30 pund
Einn 30 punda lax veiddist s.l. sumar. Það
var Guðmundur B. Olafsson, sem veiddi
þennan stærsta lax sumarsins í Dalsárósi
i Víðidalsá 10. ágúst. Þetta var hængur,
105 sm langur og 54 sm í ummál. Hann tók
rauða Frances nr. 8. Guðmundur landaði
fískinum niðri á Skipstjórabreiðu, um
300 m neðan við Dalsárós, eftir 4 klst.
og 40 mín. viðureign.
Næststærsta laxinn sem veiddist á stöng
í sumar fékk Grétar Olafsson 31. ágúst á
Iðunni í Hvítá í Arnessýslu. Var það 29
punda hængur, 106 sm langur og 65 sm í
ummál. Laxinn var grútleginn og hefur
því verið vel yfir 30 pundum, þegar hann
gekk úr sjó. Hann tók Rækju nr. 4. Viður-
eigninni lauk eftir þrjá stundarfjórðunga,
þegar laxinn var tekinn með sporðgríp úti í
ánni.
Þá er vitað um tvo 28 punda laxa, sem
veiddust á stöng, annan í Víðidalsá, hinn
í Vatnsdalsá, og 27 punda laxa í Vatnsdalsá
og Laxá í Aðaldal.
Langt er síðan eins margir laxar, 20
pund eða meira, hafa veiðzt og á síðasta
sumri. I Laxá í Aðaldal skiptu þeir nú
mörgum tugum, og í Vatnsdalsá og Víði-
dalsá veiddust nokkrir tugir. I a.m.k. 25
ám fengust laxar af þessari stærð, í sumum
þeirra í fyrsta sinn í mörg ár.
Elliðaárnar
Ásgeir Ingólfsson fyrrum framkvæmda-
stjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur,
sem er manna kunnugastur Elliðaánum,
er höfundur bókarinnar EHiðaárnar,
vönduðustu veiðibókar sem gefin hefur
verið út á íslandi til þessa. Bókin er um 200
blaðsíður, prýdd rúmlega hundrað Ijós-
myndum og í sextíu síðna veiðistaðalýs-
ingu lýsa Ásgeir og Þórarinn Sigþórsson
tannlæknir því, hvar best er að veiða á flugu
og maðk í Elliðaánum. • Þá fylgir bókinni
vandað kort sem sýnir rétt nöfn hylja og
kennileita við árnar. • Myndirnar eru teknar
með sérstöku tilliti til lýsingarinnar. Er slíkur
samleikur mynda og orða nýmæli í veiðibókum.
Jólabók veiðimannsins!
ISAFOLD
VEIÐIMAÐURINN
61