Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Blaðsíða 6
RITSTJÓRASPJALL
Þegar skammdegisskuggarnir lengjast og birt-
an dofnar er ástæða til að líta um öxl og kanna
hvað helst hafi einkennt liðið veiðisumar og hvað
borið til tíðinda. I mínum huga er
einkum þrennt sem ástœða er til
að dvelja við.
Laxagengd varð öllu meiri en
búist hafði verið við. Kýlaveiki
kom upp í Elliðaám, Kollafirði
og Hellisá á Síðu. Hafbeitarstöð-
in í Hraunsfirði komst í þrot.
Fiskifrœðingar fóru varlega í
að spá um göngur sumarsins,
voru þó heldur svartsýnir, sérstaklega um veiði-
horfur norðanlands. Um Norðurlandsárnar er
það að segja að spáin gekk eftir á austurhluta
svœðisins en útkoman varð mun betri en vœnta
mátti á Norðurlandi vestra. Veiði varð einnig
meiri í Vopnafjarðaránum en vonir stóðu til og
töluverð gengd af smálaxi gefur vœntingar um
stórlax þar að ári.
Á Vestur- og Suðvesturlandi varð aukning um
19%. A Suðurlandi dróst laxveiðin lítið eittsam-
an en sjóbirtingsveiði í Skaftafellssýslum hefur
glœðst að mun og eru gamlir „vatnakarlar“
komnir með glampa íaugu og þykjast eygja betri
tíma.
Af einstökum ám veiddist mest
í Borgarfjarðaránum, í Norðurá
um 1700 laxar og Þverá um 1650
laxar. Uppúr LaxááÁsumkomu
um 1560 á tvœr stengur.
Samkvæmt þeim bráðabirgða-
tölum um laxveiði á stöng, sem
hér er byggt á, virðist heildarveið-
in vera um 34 000 laxar. Aukn-
inginfrá ífyrra er um 22%. Sé hins vegar miðað
við meðaltalsveiði tímabilsins 1974-1994 hefur
afli dregist saman um 5%.
Þetta eru staðreyndirnar í málinu og þeim
verða veiðimenn að hlíta. Þeir, sem veiddu vel í
veiðiferðum sínum, eru að vonum ánægðir og
þess fullvissir að nœsta sumar verði þeim ekki
lakara heldur jafnvel enn betra. Hinir, semýmist
komu öngulsárir eða þurftu að una rýrum afla,
hugga sig við það að varla geti útkoman orðið
Málgagn veiðimanna 51. árgangur nr. 148, des. 1995.
Ritstjóri: Gylfi Pálsson.
Ritnefndarfulltrúi SVFR: Kristján Guðjónsson
Auglýsingastjóri: Ásgeir Heiðar.
Útlitsteikning: Guðmundur R. Steingrímsson
Útgefandi: Fróði hf. í samvinnu við
Stangaveiðifélag Reykjavíkur.
Héðinshúsinu, Seljavegi 2.
Sími: 515 5500. - Áskriftarsími: 515 5555
Fax: 515 5599
Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson.
Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir.
Aðalritstjóri: Steinar J. Lúðvíksson.
VEIÐIMAÐURINN kemur út þrisvar á ári.
Verð í áskrift kr. 2.007. Sé greitt með
greiðslukorti er áskriftargjald kr. 1.806.
Verð í lausasölu kr. 699,00 m/vsk. pr. eintak.
Prentvinnsla: G. Ben. Edda prentstofa hf.
6
VEIÐIMAÐURINN