Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Blaðsíða 64
Frá aðalfundi LS.
Ljósmynd Rafn Hafnfjörð.
ADALFUNDUR LS1995
Aðalfundur Landssambands stanga-
veiðifélaga var haldinn að Hótel Sögu 11.
nóvember sl. Jón G. Baldvinsson var end-
urkjörinn formaður.
Á fundinum mættu rúmlega 40 fulltrúar
7 stangveiðifélaga af svæðinu frá Borgar-
nesi að Selfossi. í Landssambandinu hafa
flest verið 26 félög.
Aðalerindi fundarins flutti Gísli Jóns-
son, dýralæknir fisksjúkdóma, og lýsti
smitleiðum og ferli kýlaveikinnar sem get-
ur orðið mjög skæð við tilteknar aðstæður,
svo sem vatnsskort, hátt hitastig og þétt-
setu, sérstaklega í fiskeldi. Gísli sagði að
veiðimenn þyrftu að sýna aðgæslu þegar
farið væri á skömmum tíma milli vatna-
svæða, hann teldi nauðsynlegt að sótt-
hreinsa veiðitæki sem notuð hefðu verið í
hugsanlega sýktu veiðivatni. Hins vegar
hvatti hann veiðimenn til að halda ró sinni
og reynsla annars staðar sýndi að veikin
færi hraðast fyrst en síðan hægði á henni.
Við næðum aldrei að uppræta sjúkdóminn
en yrðum að beita öllum ráðum til að milda
afleiðingar hans.
Miklar umræður urðu um framtíð LS og
kom í ljós að fjárhagsstaða margra aðildar-
félaga er slæm og því yrði að lækka allan
tilkostnað og útgjöld sem þeim væri gert að
greiða. Stjórn LS þyrfti að skerpa stefnu-
mið og leiðir í hagsmunabaráttu fyrir félög-
in, leita nýrra tekjustofna til að fjármagna
rekstur sambandsins, breyta lögum í sam-
ræmi við kröfur tímans, vinna að kynning-
arstarfi, efla tengslin við stangaveiðifélög-
in og fylkja þeim undir fána Landssam-
bandsins.
Ályktunartillögur voru samþykktar um
að skora á stjórnvöld
að efla löggæslu til að hindra ólöglegar
laxveiðar í sjó
að leita leiða til að hefta útbreiðslu
kýlaveiki
að hætta við áform um að sameina
Veiðimálastofnun öðrum rannsókn-
arstofnunum landbúnaðarins.
Loks samþykkti fundurinn að stjórn LS
skyldi endurskoða þátttöku sambandsins í
NSU, Nordisk Sportsfiskerunion.
GP
64
VEIÐIMAÐURINN