Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Blaðsíða 28
Uppsveifla í vatninu
— Hvernig sérð þú fyrir
þér að hægt verði að byggja
upp urriðastofninn í Soginu?
„Ég held að menn eigi að
byrja á því að kanna hvort
riðmöl vanti í árfarveginn. Ef Ósvaldur Knudsen meðfallega silungsveiði úr Soginu.
að það kemur í ljós að slíka möl skortir þá
verður að aka henni þangað. Það kostar
eitthvað af peningum sem er sjálfsagt að
Landsvirkjun greiði. Ég veit að urriðinn er
þar enn til staðar. Ég veit að menn eru
farnir að veiða talsvert meira af honum
upp á síðkastið en áður var. Sumir segja að
vísu að það sé vegna þess að sleppt var ein-
hverjum tugum þúsunda urriða af Öxarár-
stofni í vatnið. Ég dreg reyndar í efa að það
sé skýringin því sleppifiskurinn er ekki
orðinn 10-14 punda þungur, eins og fisk-
arnir sem farnir eru að veiðast. Hitt tel ég
sennilegra að almenn uppsveifla sé í Þing-
vallavatni núna, menn eru farnir að veiða
þar meira af bleikju nú en áður og hefur
þróunin verið í þessa átt undanfarin ár.
Fyrir tveimur árum voru menn að veiða
mikið af hálfs punds bleikju, í fyrra var
mikið um hálfs annars punds bleikju og ég
spái því að næsta sumar verði talsvert mik-
ið af bleikju á Þingvöllum."
„Steingrímsstöðin var
hið stóra slys“
Össur hefur lengi verið ákafur silungs-
veiðimaður. „Égveiði alltaf dálítið, reynd-
Sveinn Benediktsson og Benedikt Sveinsson,
sonur hans, með fiska úr Efra-Sogi. Myndin er
tekin áriðl937, en Benedikt Sveinsson, Alþingis-
forseti, veiddi þessafiska.
ána með sterkum flaumnum. Það gerðist
reyndar einu sinni að veiðimaður uggði ekki
að sér og straumurinn hreif með sér bæði
mann og bát og fannst maðurinn síðar
drukknaður langt niðri í Sogi. En það var
þarna sem menn fengu stórurriðann og síðla
hausts veiddust alltaf þarna fiskar, á milli 15
og 20 punda þungir, og nánast á hveijum
einasta degi.
Efra-Sogið er alveg ein-
stakt vatnsfall, það eru mjög
fá straumvötn sem komast í
hálfkvisti við það. Þar koma
bæði til staðhættir í ánni
sjálfri, en einnig getur fiskur-
inn leitað út í vötnin í fæðu-
leit“.
28
VEIÐIMAÐURINN