Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Blaðsíða 44
barna- og unglingastarfið verið aukið veru-
lega á síðustu tveimur árum. Þar er stefnt
að því að auka þátttöku þeirra í stangaveiði
með því að auka fræðslu og auka framboð
á heppilegum veiðisvæðum fyrir þennan
mikilvæga hóp. í því skyni hefur SVFR
samið við veiðifélag Elliðavatns um að fé-
lagar í SVFR geti veitt þar ókeypis. Með
þessu er t.d. ætlunin að hvetja til fjöl-
skylduveiði. Rætt hefur verið við kast-
nefndina að halda sérstök kastnámskeið
fyrir unga fólkið. Haldin hafa verið nám-
skeið í fluguhnýtingum fyrir börn og ungl-
inga. Haldið var sérstakt veiðimót fyrir
börn og unglinga í Elliðavatni sl. vor með
aðstoð Landssambands veiðifélaga, Veiði-
félags Elliðavatns og Reykjavíkurborgar
og síðast en ekki síst þá bauð SVFR öllum
börnum og unglingum í félaginu til veiða í
Elliðaám undir leiðsögn færustu manna.
Félögin þurfa að vera í góðu sambandi
við félaga sína. Eitt af því, sem margir telja
æskilegt, er útgáfustarfsemi ýmiss konar.
Utgáfa fréttarbéfs á okkar tímum, tímum
tölvutækninnar, er mun einfaldara verk en
áður var. SVFR gefur út fréttabréfið
„Veiðifréttir" auk þess sem félagið gefur út
„Veiðimanninn“ í samstarfi við Fróða hf.
Stangaveiðifélög eiga að vera opin fé-
lög. Upplýsingar, er varða málefni félag-
anna og félagsins, eiga að vera aðgengileg-
ar öllum félagsmönnum. Á sl. ári tók
SVFR upp þá nýbreytni að birta af og til
úrdrátt úr fundargerðum stjórnar í Veiði-
fréttum.
Eins og áður hefur verið nefnt þurfa fé-
lagar að sjá ávinning í því að ganga í stanga-
veiðifélögin, helst umfram það eitt að geta
sótt um veiðileyfi á veiðisvæðum félags
síns. Ymis félög, eins og t.d. Stangaveiði-
félag Reykjavíkur hafa gefið út sérstök fé-
lagskort. Félagskorti SVFR fylgja ýmis
hlunnindi, s.s. afsláttur í veiðivöruverslun-
um, á vöðluverkstæðum, í reykhúsum
o.s.frv. Með þessu er verið að sýna félög-
um í verki að þátttaka í SVFR er eftirsókn-
arverð og það á fleiri sviðum en bara í
beinni veiði.
Fiskarnir
Veiðifélög þrífast ekki án veiðisvæða.
Helst þurfa þau að vera fjölbreytt og
spanna yfir sæmilega breytt svið m.t.t.
verðlagningar. Þau stangaveiðifélög, sem
ekki hafa samið beint við veiðiréttareig-
endur, ættu að íhuga samstarf við stærri
félög því í mörgum tilvikum er framboð
veiðileyfa meira en eftirspurn. Eins er ekki
úr vegi fyrir stangaveiðifélög að ganga
saman til samninga um veiðisvæði.
Á síðastliðnu ári bauð SVFR félögum
sínum veiði á 22 veiðisvæðum í 13 ám og
vötnum. Þar vantar ekki fjölbreytileikann,
því í boði er allt frá góðri og ódýrri (ókeyp-
is) silungsveiði í Elliðavatni til frábærrar
laxveiði í aflahæstu á landsins, Norðurá.
Það hefur verið markmið stjórnarinnar að
halda a.m.k. óbreyttu framboði og svo
virðist sem það náist fyrir næsta ár. Verð
veiðileyfa mun ekki hækka á milli ára.
Lokaorð
Eg hef komið víða við. Kjarninn í þess-
ari umfjöllun minni er einfaldlega sá að
þrátt fyrir breytingar eiga stangaveiðifélög
alla möguleika á að halda stöðu sinni, þau
þurfa einfaldlega að breyta starfsemi sinni í
takt við breytta tíma. Breyttar aðstæður
gefa okkur fjölmörg sóknarfæri og það er
okkar að nýta þau.
Höfundur rekur Framnes hf., situr
í stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur og
veit fátt skemmtilegra en stangaveiði.
44
VEIÐIMAÐURINN