Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Blaðsíða 53

Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Blaðsíða 53
til staðar, mikill dauði á sér einungis stað ef umhverfisskilyrði eru erfið fiskinum og hann verður fyrir mikilli streitu. Fátítt er að kýlaveiki leiði til aflabrests. Kýlaveiki á íslandi Miðað við útbreiðslu sjúkdómsins á síð- ustu árum má segja að aðeins hafi verið spurning um hvenær hann kæmi hingað en ekki hvort. Astæðan fyrir því að íslenskur lax smitast getur verið sú að hann gengur með laxi annarra landa í hafinu. Alltaf eru líka einhverjir laxar sem villast af leið. Þetta á þó einkum við um eldislaxa sem sloppið hafa úr eldiskvíum og rata síður til baka. Lax í eldi hefur víða smitast og getur því verið smitberi jafnvel þó að hann hafi verið bólusettur. I sjávarveiði á laxi við Færeyjar hefur síðustu ár verið allt upp undir 40% aflans lax upprunninn úr eldi. Einungis þarf einn smitbera sem villist upp í íslenska á til að sjúkdómurinn sé kominn. Kýlaveiki uppgötvaðist fyrst í Elliðaán- um í laxi sem fannst dauður eða nær dauð- ur á grind við teljara í ánum seinni hluta júlímánaðar. Starfsmaður Rafmagnsveitu Reykjavíkur kom með laxinn á Veiðimála- stofnun þaðan sem hann var sendur á fisk- sjúkdómadeildina á Keldum. Næstu daga fundust fleiri laxar. I byrjun ágúst var til- kynnt um að kýlaveiki hefði greinst. Þá kom einnig í ljós að í seiðum, sem sleppt var um vorið, var kýlaveiki. Um Hvíta- sunnu komu upp afföll í seiðunum og voru þau úrskurðuð sýkt af umhverfisbakteríum og sett á lyfjameðferð sem virkaði vel. Að seiðin skyldu smitast af árvatninu um vorið bendir eindregið til að smit hafi verið í ánum haustið 1994. Fram á haust fundust svo nokkrir tugir laxa dauðir eða verulega sýktir af kýlaveiki í ánum. Arnar voru gengnar daglega til þess að leita að og fjarlægja dauða fiska. Einungis örfáir laxar, sem voru sýnilega sýktir, veiddust enda ólíklegt að sjúkur lax bíti á færi. Einnig fundust nokkrir urriðar með kýlaveiki. Eftir veiðitíma nú í haust var öllum ný- gengnum (lúsugum) laxi, sem gekk í kist- una við rafstöð, safnað og hann sendur í rannsókn í fisksjúkdómadeildina á Keld- um. Þetta var gert til að meta hvort lax væri að koma sýktur úr hafi og ef svo væri hver uppruni þess fisks væri, en hreistursýni var tekið af öllum fiski sem fór í greiningu. Talsvert erfitt mun vera að greina kýla- veiki í fiski og jafnvel þó að fiskur sé smit- aður er ekki víst að bakterían greinist í þeim prófum sem gerð eru. Til að svo megi verða þarf magn baktería að vera talsvert í fiski. Nær útilokað er að sýking hafi náð sér upp á þeim stutta tíma sem þeir voru í ánni. Laxarnir voru lúsugir, en laxalús eins og þeir voru með lifir einungis skamman tíma í ferskvatni (2 sólarhringa). Niðurstaða rannsóknanna varð sú að af þeim löxum sem fóru í greiningu voru 3 laxar með kýla- veikismit. Þar af voru 2 af náttúrulegum uppruna en einn upprunninn úr göngu- seiðasleppingu, annað hvort þá í hafbeitar- stöð eða í veiðiá. Öll gönguseiði sem sett hafa verið í Elliðaárnar hafa verið merkt svo að fiskurinn hlýtur að vera ættaður annars staðar frá, því hann var ómerktur. Annað hvort hafa þessir laxar sýkst í hafi eða áður en þeir fóru í sjó. Náttúrulegu laxarnir eru væntanlega úr Elliðaánum og gætu því hafa smitast þar. Ef svo er þýðir það að kýlaveiki var komin í árnar 1993. Hvað varðar þriðja fiskinn þá getur hann verið úr hafbeitarstöð eða veiðiá annarri en Elliðaánum og hafa sýkst þar, sem þýðir þá að sjúkdómurinn er útbreiddari en talið er. Um þetta er hins vegar ekkert hægt að fullyrða. í hafbeitarmóttöku laxeldisstöðvarinnar í Kollafirði greindust einnig laxar með kýlaveiki, sem í fyrstu var talið að hefðu VEIÐIMAÐURINN 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.