Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Side 18

Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Side 18
Höfundur á „útkikki“. laus við alt sem heitir streita. Þessi eigin- leiki kemur sér alltaf vel í veiði. Pétur tók að sér fyrstu skotvakt og var greinilegt á öllu að þar kunni hann vel við sig. Af og til hallaði hann sér fram í stóln- um til þess að geta betur virt fyrir sér agn- völlinn og umhverfi hans. Stöku sinnum þreifaði hann eftir neftóbaksdósinni sem sjaldan er langt undan og færði ilmandi tóbakið í nef sér og gaf um leið frá sér lágvært dæs. Það var áreiðanlegt að honum leiddist ekki. í skotstöðu. fyllingu. Þetta ásamt ýmsu fleiru, svo sem atvik og uppákomur úr fyrri veiðiferðum þar sem bæði byssur og veiðistangir komu við sögu, var aðalumræðuefni okkar þetta skammdegiskvöld. Auðvitað verða öll samtöl við kringumstæður sem þessar að fara fram á lágu nótunum. Annað er ekki leyfilegt. Smám saman færðist ró yfir heim- ilislífið. Bjarni skreið í koju og innan skamms gáfu lágvær puffhljóð til kynna að hann ferðaðist um í landi draumanna. Þessi hæfileiki hans að geta sofnað nánast á slaginu hvenær sem er og hvar sem er hefur oft vakið hjá mér öfund. En þetta sýnir jafnframt að hann er í góðu jafnvægi og Ekki dottar afreksmann uppi í tófuhúsi. Rifuna út um rýnir hann og rær með dós afsnúsi. Sjálfur sat ég í gesta- stólnum og lét hugann reika. Ég hafði sagt við fé- laga mína eftir að hafa virt fyrir mér umganginn á æt- isvellinum að tófa á mann eftir nóttina væri hreint ekki fjarstæðukennd ályktun. Ekki höfðu þeir tekið afgerandi undir þessa bjartsýni mína, en heldur ekki neitað því að þetta væri mögu- legt miðað við aðstæður. Oftar en ekki höfðu tófurnar verið frek- ar morgunsæknar og flestar sótt í ætið á tímabilinu frá kl. 5 - 8 að morgni. Þetta var þó engin regla og þess vegna nauðsynlegt að fylgjast vel með öllu, því að dýrin gera oft stuttan stans. Örfáar mínútur, jafnvel sekúndur, geta ráðið úrslitum um það hvort dýr næst. Þess vegna má vaktmaður aldrei sofna á verðinum. Lærifaðir okkar í refaveiðum, Theodór Gunnlaugsson, sem áratugum saman stundaði refaveiðar árið um kring, segir á einum stað í bók sinni A Refaslóðum: „Frá 18 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.