Veiðimaðurinn - 01.12.1995, Síða 36
FLUGUHNÝTINGAÞÁTTUR
í UMSJÓN BJARNA R. JÓNSSONAR
KLASSÍSKAR LAXAFLUGUR
Laxaflugur hafa lengi skipað sérstakan
sess á meðal veiðiflugna . Einkum hinar
svokölluðu klassísku laxaflugur. Það kann
að vera erfitt að átta sig á hvaða flugur
myndu teljast klassískar og hverjar venju-
legar. Almennt er talað um að fjaðraflug-
ur, sem eiga rætur að rekja til Englands og
Skotlands og eru frá átjándu og nít-
jándu öld, séu hinar eiginlegu klass-
ísku flugur. Þessar gömlu flugur
hafa flestar mjög ákveðið form og
eru mikil listasmíð. Þær hafa nánast
allar sömu einkennin, t.d. stél, vöf,
skegg og væng. I nútíma flugugerð
er formið miklu frjálsara og hnýtar-
ar sleppa oft einhverjum af þessum
þáttum. Breytileikinn í gömlu flug-
unum var aðallega í litum og mis-
munandi efnismiklum vængjum og
margar þessara flugna eru með
mjög flóknum vængjum. Þegar
gerð flugnanna er skoðuð kemur
berlega í ljós að fluguhnýtarar
þessa tíma voru engu lakari en færustu
menn í dag. Þó höfðu þeir ekki sömu að-
stæður og við höfum í dag. Sumir áttu ekki
einu sinni öngulheldu til að festa öngulinn í
og ekki höfðu þeir jafn góða lýsingu og við
höfum nú. Maður getur ímyndað sér að
það sé nokkuð vandasamt að hnýta flug-
una „Jock Scott“ númer 12 við kertaljós og
án öngulheldu.
Eitt höfðu gömlu hnýtararnir þó um-
fram okkur; fjaðrir af framandi fuglum
voru auðfengnari í þá daga heldur en nú.
Margir þeirra fugla, sem notaðir voru
fjaðrir af eru nú í útrýmingar. I þá daga
sigldu Englendingar um allan heiminn og
komu með ýmislegt forvitnilegt heim.Þá
veltu menn ekki fyrir sér hvort einhverjir
fuglar væru sjaldgæfir eða jafnvel í útrým-
ingarhættu. Þetta setur okkur í vanda í dag
því sum þessara efna er nánast útilokað að
verða sér úti um. Við neyðumst því til að
nota þau efni, sem til taks eru, ef ætlunin er
að hnýta klassíkar flugur. Það má svo deila
GREEN HIGHLANDER
Stélrót: Silfurtinsel
Stél: Hausfjöður af gullfasana og „sum-
mer duck“.
Kragi: Svört strútsfjöður.
Búkur: !4 gyllt flos, % grænt selshár
(þel).
Vöf: Ávalt silfurtinsel.
Hringvöf: Græn hanafjöður.
Skegg: Gular hanafanir (eða hænu).
Undirvængur: Hálsfjaðrir af gullfasana.
Vængur: Giftar saman gular, rauðgular
og grænar gæsafanir og doðru- og pá-
fuglafanir (vængur) og fanir úr stéli
gullfasana.
Hliðar: Giftar saman fanir úr urtönd og
þverrákóttri brúðandarfjöður. Yfir
allan vænginn koma svo fanir úr
stokkandarfjöður.
Kinnar: Skógarhani og indversk kráka
... yfir alla fluguna kemur svo haus-
fjöður úr gullfasana og á hvora hlið
koma horn sem eru úr gulum og blá-
um páfagauk.
Haus: Svartur.
Bjarni R.
Jónsson. Ljós-
mynd Bragi
Þ.Jósefsson.
36
VEIÐIMAÐURINN