Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Side 15

Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Side 15
I S * ', l m HKI Peter Eiscnman. Wexner Center, Columbus, Ohio. hreinsa út, skera niður og byrja síðan frá grunni. Svo víðtækur var niðurskurðurinn að eftir stóðu einungis fáein grunnatriði. Hliðstæð þróun átti sér stað í nútímamálaralist; menn settu sér þöngar skorður, unnu með eitt form, einn lit. Mies van der Rohe sagði „Less is more” og beitti skurðarhnífnum grimmt. Líta má á fimm punkta Le Corbusier, sem stefnuyfirlýsingu módernismans á þriðja áratugnum: stólpar, aðskilnaður burðargrindar og veggja, frjáls grunnmynd, frjáls framhlið, þakgarður. Skóla- byggingar Bauhaus-skólans í Dessau frá 1925-26 eftir Walter Gropius, þýski sýningarskálinn á heimssýningunni í Barcelona 1929 eftir Mies van der Rohe, og einbýlishús Le Corbusiers, Villa Savoie í Poissy, frá 1928-29 eru meðal þekktustu dæma um arkitektúr þriðja áratugarins. í þessum byggingum var kominn mótaður nútímastíll sem síðar hlaut nafnið alþjóðlegi stíllinn og hann lagði undir sig heims- byggðina. Við höfum hann fyrir augunum í flestum borgum. Það er víst að bera í bakkafullan lækinn að tíunda einkennin: einföld, hrein, geometrísk form, slétt þök, gluggabönd, skraut- leysi og hvítur litur. Þegar alþjóðlegi stíllinn hafði verið við lýði um nokkurt skeið fór að örla á gagnrýni á hann. Hann þótti of strang- ur og ósveigjanlegur. Finnski arkitektinn Alvar Aalto fór snemma að beita lífrænum formum og náttúrlegum efnum til að gera arkitektúr sinn manneskjulegri, eins og bóksafn hans í Viipuri frá 1927-35 og húsgagnahönnun hans bera vitni um. Stíll Le Corbusiers tók líka breytingum. Skúlptúrölsk form leystu af hólmi geometríuna sem ráðandi var í fyrri verkum hans, en pílagrímakapellan Notre Dame-de-Haut í Ronchamp frá 1950- hIII 55 er eitt besta dæmið um þessa stílþróun hjá Le Corbusier. Árin eftir síðari heimsstyrjöldina urðu alþjóðlega stílnum að ýmsu leyti andsnúin, þrátt fyrir að stíllinn hefði verið tekinn í sátt af þjóðfélaginu og væri nú andlit eða ímynd stórfyrirtækja. Þótt stíllinn héldi áfram að þróast og taka breytingum höfðu þær vonir sem við hann voru bundnar ekki ræst. Utópía þriðja áratugarins var steinrunnin og formalisminn einn stóð eftir. I hugum sumra var módernisminn ígildi leiðans; hann hreyttist í andlitslausan kúgara sem blasti við hvert sem litið var. Hann var alls staðar eins, ópersónulegur og leiðinlegur. Setning Mies van der Rohe „Less is more” var nú höfð 13

x

Arkitektúr og skipulag

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.