Arkitektúr og skipulag - 01.04.1992, Síða 19
MODERNISMI
OG
POSTMÓDERNISMI
Umræða um bygging-
arlist hefur að
undanförnu oft
snúist um þessi tvö
hugtök en eg held ég leiði hjá mér
þessi rnikið notuðu orð en reyni
að leita upphafsins eftir því sem
hægt er í stuttri grein.
Fyrir nokkru hlýddi ég á erindi
eins virts kollega í húsakynnum
Arkitektafélags Islands. Þar var
Modernismi, Funktionalismi,
Bauhaus, allt hengt á sama
snagann og skilgreint sem þau
tímamót sem mörkuðu
skilnað við fortíðina. Svo væru
menn í Postmodernismanum, sem
fyrirlesari gaf það ágæta heiti
„Tilvitnunarstefna”, að leita
sambands við fortíðina, með því
að taka upp í byggingarnar
eftirlíkingar ýmissa byggingar-
hluta frá fyrri tímum. Þetta
viðhorf kom aftur fram hjá dr.
Magga Jónssyni í útvarpserindi
núna nýverið.
Á Islandi hafa menn lítið rætt
tískufyrirbrigði í byggingarlist
seinni tíma. Tískublöðin í
arkitektúr sem berast okkur utan
úr heimi kynna þessar stefnur
jafnharðan sem þær verða til og
jafnvel áður.
HANNES KR. DAVÍÐSSON
arkitekt
Stefnurnar verða einnig að veru-
legu leyti til í tímaritunum.
Hugleiðingar dr. Magga urðu mér
nokkurt umhugsunarefni, það er
að segja tengslin við fortíðina.
Ef svipast á um eftir breyttum
viðhorfum í byggingarlist, sem
margir tengja Bauhaus, en á sér í
raun miklu eldri rætur, þá verður
að líta aftur til miðbiks 19.
aldarinnar og iðnbyltingarinnar
ensku sem kölluð var. Hún hreif
framleiðsluna frá fólkinu sem
hafði haft hana með höndum,
handverksmönnunum, og færði
almenningi fjöldaframleiddar
eftirlíkingar af ýmsum hlutum.
Menn bjuggu til smækkaðar
eftirmyndir af ýmsum högg-
myndum fortíðarinnar og gáfu
þeim ýmis hlutverk, t.d.
hurðarhúna og lampafætur og
fleira og fleira.
Þetta var ódýr „menning” fyrir
almenning og fólk keypti þetta
grimmt og hagvöxturinn jókst.
Steypujárnsarkitektúrinn kom
fram á sviðið sem tilraun í þá átt
að „prefabrikera” byggingahluta,
einnig komu fram merkilegir
hlutir á nítjándu öldinni sem
afleiðing af stálvalsaverkunum,
svo sem Kristalshöllin í London
Dæmi um postmódernisma. Bygging í New York 1978 - 83. Arkitekt Philip Johnson. Hér er verið að leika sér með eitt
tilbrigði af þessu barokk stílmótífi en ekki verður sagt að það skapi nein tengsl við þá fortíð, þegar menn unnu af alvöru og
einlægni að byggingarlist. Þegar Philip Johnson fór að klæmast á þessu stílatriði sem toppstykki á skýjakljúf, þá var það
hróp hans á markaðnum. En ég sé í því aðeins sambandsleysi við þá fortíð sem birtist okkur í Colosseum og íþróttahúsi
Nervis. Philip Johnson var einn af amerísku modernistunum.
17